Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla
á Ísafirði. Tillaga að matsáætlun.

Fyrirhugaður
varnargarður ofan Seljalandsvegar og blokkanna við Urðarveg,
áður en skógur hefur tekið við sér. Séð frá Torfnesi (myndvinnsla: Ómar Smári
Kristinsson)
Ísafjarðarbær
kynnir tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum ofanflóðavarna
neðan Gleiðarhjalla. Tillöguna má nálgast á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, www.isafjordur.is,
og á heimasíðu Náttúrustofu Vestfjarða, www.nave.is.
Framkvæmdaraðili er Ísafjarðarbær en Framkvæmdasýsla
ríkisins hefur umsjón með framkvæmdunum. Umsjón með mati á umhverfisáhrifum
hefur Náttúrustofa Vestfjarða og er Þorleifur Eiríksson verkefnastjóri. Verkís
og Ísafjarðarbær koma að verkinu með ýmislegum hætti, til dæmis með ráðgjöf og
hönnun garðanna. Fleiri aðilar/stofnanir koma einnig að verkinu.
Tillöguna
má hlaða niður á þessari síðu ásamt teikningum. Öllum er frjálst að koma með
ábendingar og/eða athugasemdir og skulu þær hafa borist skriflega til
Skipulagsstofnunnar, Laugavegi 166 í Reykjavík.
Frestur
til athugasemda er til 6. September 2011.
Tillaga vegna mats á umhverfisáhrifum ofanflóðavarna neðan Gleiðarhjalla.
Fylgiskjöl með tillögu að matsáætlun:
Teikning 1
er garður A
Teikning 2 er garður A
og garður 3
Teikning 3 er
garður 3
Teikning 4 er
garður 4a og 4b
Hættumatskort er
hættumatskort fyrir Skutulsfjörð
Drög af tillögu að matsáætlun má nálgast (hér)
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Þorleifur Eiríksson
|