|
Verkefnið „Samspil
náttúru og mannlífs að fornu og nýju” varð
til í viðræðum Önnu Guðrúnar Edvardsdóttur, Ragnars Edvardssonar og Þorleifs
Eiríkssonar sem mynda verkefnahóp en Anna Guðrún er verkefnisstjóri. Verkefnið
fékk styrk úr sjóði iðnaðarráðuneytisins kr. 500.000 auk þess sem Náttúrustofa
Vestfjarða styrkir verkefnið með jafnhárri upphæð. Unnið er að því að fjármagna
verkefnið enn frekar.
Markmið verkefnisins er að skapa atvinnugrundvöll fyrir
vísinda- og fræðimenn á ýmsum sviðum náttúru- og félagsvísinda, fornleifafræði,
sögu og menningar á Vestfjörðum. Meginmarkmiðið er að auka atvinnumöguleika
háskólamenntaðs fólks á Vestfjörðum með því að skapa ný atvinnutækifæri.
Verkefnisstjóri hefur aðsetur á Náttúrustofu Vestfjarða og er
hlutverk hans að kanna ástand gagna sem fjalla um vestfirsk málefni, leggja fram
áætlun um að skrá gögn á samræmdan hátt í samvinnu við stofnanir á svæðinu og
samræma vinnu annarra samstarfsstofnana. Gagnagrunnurinn verði hýstur á
Náttúrustofu Vestfjarða og mun nýtast vísinda- og fræðimönnum auk háskólanema.
Þá er einnig hlutverk verkefnisstjóra að kynna Vestfirði,
fyrir vísinda- og fræðimönnum svo og háskólum, sem áhugavert rannsóknarsvæði og
starfsstað til rannsóknastarfa.
Ferðamannaiðnaðurinn nyti góðs af slíkri markaðssetningu því
hægt væri að tengja hana náttúru- og menningartengdri ferðamennsku.
Náttúrustofan heldur utan um og hýsir öll gögn og þangað munu vísinda- og
fræðimenn og háskólanemar leita vanti þá upplýsingar, aðstöðu og búnað til
frekari rannsóknar.
Með þessu næst vonandi það markmið að fjölga háskólamenntuðu
fólki á svæðinu og fjölga atvinnutækifærum í atvinnugreinum sem ekki hafa verið
til á svæðinu.
|