|
Skömmu eftir opnun
Náttúrugripasafns Bolungavíkur, árið 1998, afhentu erfingjar Steins
Emilssonar (1893-1975) jarðfræðings, safninu steina- og jarðfræðisafn hans.
Safnið er mikið að vöxtum, í 44 kössum, og er sennilega með stærstu sýnasöfnum í
jarðfræði sem koma úr einkaeigu.
Safnið er að mestu í
upprunalegum kössum og hafa einstakir gripir (steinar eða jarðvegssýni) ekki
verið skráðir nema að litlu leyti.
Að auki voru fjölmörg sýni úr
safni StE til vörslu og til sýnis í Grunnskóla Bolungavíkur, einnig var eitthvað
í geymslu hjá Bolungavíkurkaupstað. Þessir hlutir eru nú einnig í vörslu
Náttúrugripasafnsins.
Stór hluti sýnanna hefur ekki
verið fullgreindur og þarf til að koma aðstoð jarð- eða steinafræðings.
Mörgum sýnanna fylgja aðeins tilvísanir í dagbækur StE, og standa vonir til þess
að Náttúrugripasafnið fái brátt aðgang að þeim svo hægt verði að halda áfram
flokkun, skráningu og rannsókn steinasafnsins.
|