|



vestfirskar fréttir
| bb.is | 17.03.03 | 08:55


Dauðir fuglar finnast víða við
Ísafjarðardjúp og í Jökulfjörðum
|
 |
|

Einn af dauðu fuglunum fimm sem fundust í Skutulsfirði.

|
Þorleifur Eiríksson hjá
Náttúrustofu Vestfjarða segir að nokkuð hafi fundist af dauðum fuglum inn
um Djúp og allt vestur um til Ísafjarðar og eitthvað hafi fundist í
Jökulfjörðunum líka. „Þetta er ekki mjög mikill fugladauði, það varð meira
vart við þetta í fyrra. Þessir fuglar eru allir mjög horaðir en við tókum
sýni úr stuttnefjum inn í Ísafirði og þau eru á leiðinni til
Náttúrufræðistofnunar til greiningar. Við viljum ganga úr skugga um hvort
eitthvað grunsamlegt sé hér á ferðinni en sennilega eru fuglarnir
einfaldlega að drepast úr hor“, segir Þorleifur. Í gær fundust fimm
fuglahræ, sennilega af langvíum, inni í Skutulsfjarðarbotni í fjörunni
rétt innan við brúna yfir Tunguá.
Þorleifur segir talsvert mikið af
fuglum hafa fundist á þessum slóðum í fyrravetur. „Ein hugmynd sem hefur
verið varpað fram er að ætið færist til þannig að fuglinn missir af því en
svo þegar hann er kominn inn á grunnslóð þar sem er æti, þá hafi hann
hreinlega ekki afl til að til að kafa og veiða“, segir Þorleifur.
Hræin eru sum hver illa leikin en Þorleifur segir hrafna, máva og minka
kroppa í þau og gera sér að góðu. „Þau ættu að vera horfin mjög
fljótlega“, sagði hann.
|