Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

                          

 

 

 

Aðalbláber - líffræði og nýting

Verkefnið "Aðalbláber - líffræði og nýting" er samstarfsverkefni fjögurra stofnana, sem eru: Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Skjólskógar á Vestfjörðum, Náttúrustofa Vestfjarða og Búnaðarsamtök Vesturlands.

Yfirumsjón með verkefninu hefur Aðalsteinn Óskarsson (Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða), en verkefnisstjóri er Arnlín Óladóttir (Skjólskógar á Vestfjörðum/ Náttúrustofa Vestfjarða). Aðrir í verkefnisstjórn eru Sæmundur Þorvaldsson ( Skjólskógar á Vestfjörðum), Þorleifur Eiríksson (Náttúrustofa Vestfjarða) og Sigurður Jarlsson (Búnaðarsamtök Vesturlands).

Markmið verkefnisins er að kanna líffræði aðalbláberja (Vaccinium myrtillus) með hugsanlega nýtingu í huga.

Verkefnið hófst árið 2002 og þá var sótt um styrk til Framleiðnisjóðs og nú (2003) hefur borist vilyrði um einnar miljónar styrk.

Fyrstu stig í verkefninu eru:

1)    Safna sem víðtækustu heimildum um aðalbláber (Vaccinium myrtillus)..

2)    Gera tilraun með ræktun aðalbláberja frá græðlingum.

3)    Gera frumathugun á vinnslumöguleikum berjanna.

4)   Setja upp fasta reiti, þar sem verður fylgst með nokkrum vaxtarþáttum..

5)    Gera samantekt á ræktunartækni, sem nýtt er erlendis við þessa ræktun.

6)    Gera áætlun um framhald rannsókna og leita eftir samstarfi.

Skýrsla um verkefnið er komin út og údráttur á íslensku og ensku hér fyrir neðan.

Rannveig Þórisdóttir og Sylvia Schulz. 2004. Samanburður á nokkrum vaxtarsvæðum aðalbláberja með tilliti til ákveðinna umhverfisþátta. Náttúrustofa Vestfjarða NV nr. 18-04.

Útdráttur abstract

Heimildir um aðalbláber

Tenglar um aðalbláber