Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um Stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

  English

                                  

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

 

Sjóminjasafnið Ósvör

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Haftyrðill (Alle alle)

 

Haftyrðill er af ættbálki Charadriiformes og ætt Alcidae (svartfugla). Tvær undirtegundir eru þekktar; A.a. polaris er við Frank Josef land og líklega frá Severmaya Zemlya til Berings haf. A.a. alle er sá sem við þekkjum og er útbreiðslusvæðið hans frá Kanada og til Nova Zemlya. A.a. polaris er stærri, með lengri gogg og stærri vængi.

 

Haftyrðillinn er minnsti svartfugl Norður-Atlantshafs en aftur á móti stærsti svartfuglastofn þess sama svæðis. Heildarfjöldi varpfugla er ca 12 milljón para og um 10 milljón verpir við NV Grænland. Hann verpir einu eggi seint í júní og unginn fleygur seint í ágúst. Helstu afræningjar yfir varptímabilið eru heimskautarefurinn (Alopex lagopus), máfar og jafnvel ísbjörn (Thalarctos mairtimus). Helsta fæða hans eru smáir hryggleysingjar þá helst lítlil krabbadýr (rauðáta) og Amphipoda (marflær). Þegar varptímanum lýkur þá tekur hann á sig talsvert ferðalag, um 3500 km aðra leiðina. Þeir fuglar sem eru við NV Grænland hafa vetrastöðar við Nýfundnaland. Haftyrðlastofninn hefur haldist nokkuð stöðugur á meðan aðrir svartfuglastofnar eins og stuttnefja (Uria lomvia) hafa dalað. Þó eru ýmis hættumerki vegna olíuframkvæmda við NV Grænland.

 

Hér á Íslandi verpti 150-200 pör í byrjun 20. aldar en í lok hennar verpti eitt par og er líklega hætt núna. Yfir vetramánuðina eru þeir þó algengir og þá sérstaklega á Norðurlandi og Austfjörðum. Eru komnir hingað í nóvember og síðustu hóparnir farnir í mars.

 

Haftyrðillinn er alfriðaður hér við land en alltaf lenda fáeinir í skotlínu eða menn vita ekki betur.

 

Heimildir:

Ævar Petersen 1998. Íslenskir fuglar.

Handbook of the Birds of the World. Volume 3. Hoatzin to Auks. 1996

 

Fréttir

 

30.04.2003. Haftyrðill í Ísafjarðarhöfn

Í dag sáu starfsmenn Náttúrustofunnar (PS/BÞ/ÞE) haftyrðil (Alle alle) í Ísafjarðarhöfn.

 

06.01.2003. Dauður haftyrðill

Þeir Danél S. Bergsson, Ingólfur J Lingberg og Stefán Lingberg Haldórssynir komu með dauðan haftyrðil (Alle alle) á N.V. sem þeir fundu við Bakkastíg 12 í Bolungarvík. Ekki er óalgegnt að sjá haftyrðla inn í kaupstöðum en þeir eru mjög litilir og hrekjast auðveldlega undan veðri. Hvort þessi fugl hafi fengið sér göngu upp á Bakkastíg eða stærri fuglar hafi borið hann þangað er ekki vitað. Inn í botni Skutulsfjarðar hafa verið að sjást dauðir svartfuglar undanfarna daga og ekki ólíklegt að þar séu einhverjir haftyrðlar í þeirrra hópi. Það má benda á að lokum að Náttúrugripasafn Bolungarvíkur er með tvö eintök af haftyrðli og auðvitað alla íslenska fugla og mikið af flækingum.