Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

                          

 

<--Snjóflóðavarnir




vestfirskar fréttir | bb.is | 7.08.02 | 16:13



Snjóflóðavarnir í Bolungarvík í bið að minnsta kosti fram á haust
 

Minnka mynd...


Varnarmannvirkin sem ætlunin er að byggja til að verja byggðina í Bolungarvík.

Málefni snjóflóðavarna í Bolungarvík eru í biðstöðu og verða það áfram í það minnsta fram á haust. Vegna ákvörðunar Ofanflóðanefndar um að láta yfirfara forsendur úrskurðar matsnefndar eignarnámsbóta er ekki hægt að ganga frá samkomulagi við eigendur þeirra húsa sem fara eiga undir varnargarð. Liggur því ljóst fyrir að lítið verður gert þar til þeirri yfirferð verður lokið. „Ég býst við því að ef að allt gengur eftir verði hægt að kynna hættumat fyrir Bolungarvík í septemberlok. Þegar því er lokið mun bæjarstjórn fjalla um málið og taka afstöðu til framhalds þess.
 

Meðan ekki er hægt að ganga frá samkomulagi við eigendur húsanna er málið þó enn í biðstöðu“, segir Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík.
 




Þessi frétt/grein er prentuð af bb.is | © H-prent 2001