|
Nám kalkþörungasets úr Arnarfirði. Mat á umhverfisáhrifum. 2002. Jarðfræðistofa
Kjartans Thors. Íslenska Kalkþörungafélagið ehf. (skýrsla).
Skipulagsstofnun auglýsir matsskýrsluna og liggur hún frammi til kynningar til
20. desember. Á því tímabili er hægt að gera athugasemdir við niðurstöður hennar
og skila þeim til Skipulagsstofnunar.
Skýrslan er grundvöllur þess að hægt sé að sækja um námuleyfi fyrir væntanlega
verksmiðju í Arnarfirði, en verksmiðjan mun vinna afurðir úr hráefninu sem dælt
verður úr setlögunum. Í skýrslunni er lýst áhrifum á lífríki og samfélagslegum
áhrifum fyrirhugaðrar vinnslu.
Athugasemdir Arnþórs Garðarsonar, Agnars Ingólfssonar og Guðmundar Víðis
Helgasonar við matsskýrluna (athugasemdir).
Skipulagsstofnun
fellst á fyrirhugað kalkþörunganám.
Mánudag 3. mars kynnti
Skipulagsstofnun, Íslenska Kalkþörungafélaginu ehf. (sem er í eigu
Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða hf.) að stofnunin féllist á fyrirhugað
kalkþörunganám í Arnarfirði. (meira) (úrskurður).
|