Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík. 

        Sími: 4567005, fax 456735, 

        netfang:  nave@nave.is

        Kennitala: 610397-2209


Forsíða           

Stjórn

Starfsmenn

Rannsóknarbátur

Verkefni                    

Skýrslur

Bókaskrá

Lög og reglur

Samstarf og nefndir

Tenglar

Náttúrustofur

Náttúrugripasafn

 

 

Breiðafjarðarnefnd http://www.breidafjordur.is

 

Nefndin hefur það hlutverk að vera umhverfisráðherra til ráðgjafar um það sem lýtur að framkvæmd laga nr. 54/1995, um vernd Breiðafjarðar. Jafnframt skal nefndin í samráði við sveitarfélögin láta gera verndaráætlun þar sem fram kemur hvernig ná skuli þeim markmiðum sem sett eru með vernd svæðisins og senda hana til ráðherra til staðfestingar.

 

Í starfi sínu skal nefndin gæta samráðs við sveitarstjórnir, náttúruverndarnefndir, Náttúruvernd ríkisins, minjaverði og yfirvöld þjóðminjavörslu. Skal nefndin gefa ráðherra skýrslu um störf sín árlega.

 

Nefndin er skipuð til fjögurra ára í senn. Héraðsnefndir Dalasýslu, A-Barðastrandasýslu, V-Barðastrandasýslu og Snæfellinga tilnefni einn fulltrúa hver, Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur á Vesturlandi og Vestfjörðum einn sameiginlega og einn tilnefndur af Þjóðminjaráði. Umhverfisráðherra skipar einn án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. 

 

Aðsetur nefndarinnar er hjá Náttúrustofu Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur. 

 

Netfang: breidafjordur@stykkisholmur.is.
 

Nefndin, Verndaráætlun fyrir Breiðafjörð, Lög um vernd Breiðafjarðar, nr. 54/1995, Lög um selaskot á Breiðafirði og uppidráp,  nr. 30/1925,


     

Fréttir

Fuglaupplýsingar

Fuglafréttir

Snjóflóðavarnir/

hættumat

Fornleifar   

Náttúruminjar

Skólpmengun

SNS-Samtök náttúrustofa

Nýjast á síðunni

Kalkþörungar

Aðalbláber