Náttúra Vestfjarða og ferðamennska
Ráðstefna haldin í Hömrum á Ísafirði 15. og 16. apríl 2005
Að ráðstefnunni standa: Ferðamálasamtök Vestfjarða, Fjórðungssamband Vestfirðinga, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Náttúrustofa Vestfjarða. Í verkefnisstjórn sitja: Arnar S. Jónsson, Áslaug Alfreðsdóttir, Aðalsteinn Óskarsson, Rúnar Óli Karlsson og Þorleifur Eiríksson.
Verkefnisstjóri er Anna Guðrún Edvardsdóttir. Netfang: arun@nave.is. Sími: 456 7207, GSM 864 0332
Dagskrá ráðstefnunnar Fyrirlestrar á ráðstefnunni Skráning á ráðstefnuna Glærusýningar
24. maí 2005
Glærusýning Rúnars Óla Karlssonar um vöruþróun í vestfirskri ferðaþjónustu er komin á vefinn - sjá glærusýningar
20. maí 2005
Glærusýning Sveins Kára Valdimarssonar sem ber yfirskriftina "Hlutverk rannsóknarstofnana í náttúruvísindum í tengslum við ferðaþjónustu" er komin á vefinn - sjá glærusýningar
18. maí 2005
Glærusýning Torfa Tuliniusar um verkefnið "Vestfirðir á miðöldum" er komin á vefinn - sjá glærusýningar
10. maí 2005
Glærusýning Böðvars Þórissonar um fuglaskoðun við Djúp er komin á vefinn - sjá glærusýningar
9. maí 2005
Tvær glærusýningar til viðbótar komnar á vefinn - sjá glærusýningar
3. maí 2005
Ráðstefnuritið er komið á vefinn - sjá glærusýningar
29. apríl 2005
Ein glærusýning til viðbótar er komin á vefinn - sjá glærusýningar.
28. apríl 2005
Glærusýningar fjögurra fyrirlesara eru komnir á vefinn - sjá glærusýningar.
12. apríl 2005
Upplýsingar um einn fyrirlesara eru komnar á vefinn - sjá fyrirlestrar ráðstefnunnar.
11. apríl 2005
Upplýsingar um tvo fyrirlesara eru komnar á vefinn - sjá fyrirlestrar ráðstefnunnar. Þá hefur Flugfélag Íslands ákveðið að styrkja ráðstefnuna.
8. apríl 2005
Einn fyrirlesarinn forfallaðist en annar kom í staðinn. Dagskráin er komin á vefinn með tímasetningum einstakra fyrirlestra - sjá dagskrá ráðstefnunnar.
7. apríl 2005
Upplýsingar um einn fyrirlestur til viðbótar hefur verið settur inn á vefinn - sjá fyrirlestrar ráðstefnunnar.
6. apríl 2005
Enn bætist við fyrirlesari - sjá dagskrá ráðstefnunnar. Þá hafa verið settar inn upplýsingar um einn fyrirlesara - sjá fyrirlestrar ráðstefnunnar.
5. apríl 2005
Þá hefur einn fyrirlesari bæst í hópinn - sjá dagskrá ráðstefnunnar. Upplýsingar um þann fyrirlesara og annan til er búið að setja inn - sjá fyrirlestrar ráðstefnunnar.
4. apríl 2005
Upplýsingar um tvo fyrirlesara til viðbótar eru komnar á vefinn - sjá fyrirlestra ráðstefnunnar
1. apríl 2005
James McLetchie frá Skotlandi og Philippe Patay hafa bæst í hóp fyrirlesara - sjá dagskrá ráðstefnunnar
30. mars 2005
Nú hafa upplýsingar um þrjá fyrirlesara til viðbótar verið settar á vefinn
23. mars 2005
Búið er að setja upplýsingar um nokkra fyrirlesara og fyrirlestra í viðbót við þá sem fyrir voru
22. mars 2005
Verið er að afla styrkja til ráðstefnuhaldsins. Eftirfarandi aðilar hafa nú þegar ákveðið að leggja ráðstefnunni lið með styrkveitingu:
Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Umhverfisráðuneytið.
Fréttatilkynning
Dagana 15. – 16. apríl nk. verður haldin ráðstefna á Ísafirði sem ber yfirskriftina “Náttúra Vestfjarða og ferðamennska”. Þeir sem standa að þessari ráðstefnu eru: Ferðamálasamtök Vestfjarða, Fjórðungssamband Vestfirðinga, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Náttúrustofa Vestfjarða.
Eins og nafn ráðstefnunnar gefur til kynna verður þema hennar náttúra Vestfjarða og hvernig hægt sé að tengja hana ferðamennskunni á svæðinu þannig að hagsmunir ferðaþjónustuaðila og ferðamanna fari saman. Markmið ráðstefnunnar er að leitast við að svara mjög sértækum spurningum um náttúru og ferðamennsku, s.s. hvaða náttúrufyrirbæri eru á Vestfjörðum, hvar eru þau, hverjir vilja skoða þau, hvenær og hvað má það kosta.
Um er að ræða tveggja daga ráðstefnu, frá hádegi á föstudegi og fram til kl. 16 á laugardegi. Fyrirlesarar koma úr ýmsum áttum og munu fjalla um þetta málefni út frá mörgum sjónarhornum. Fyrirlestrarnir ná yfir allt sviðið, s.s. ferðaþjónusta, ferðamennska, markaðssetning, menning svæðisins, náttúruvísindi, rannsóknir, öryggi ferðamanna, aðgengi inn á svæðið og innan þess.
Ráðstefnugjaldið er kr. 3.000 og er innifalið í því aðgangur að ráðstefnunni, ráðstefnurit, kaffi og meðlæti. Hafi menn einungis áhuga á að vera annan daginn kostar það kr. 2.000.