|
Náttúrustofa Vestfjarða hefur
haft umsjón með mati á umhverfisáhrifum snjóflóðavarna í Bolungarvík. Innan
þessa mats er úttekt á fornminjum á tilvonandi framkvæmdarsvæði og hefur Ragnar
Edvardsson haft umsjón með þeim hluta.
Á því svæði sem varnargarður á
að byggjast stóð áður bærinn Tröð og benda heimildir til að hann hafi verið í
byggð allt frá því um 1100 eða jafnvel fyrr. Búið var í Tröð langt fram á 20.
öld.
Við fornleifaskráningu 1996
voru skráðar 13 minjastaðir á því svæði sem fyrirhugaður varnargarður á að
standa. Flestir þessir minjastaðir munu annaðhvort eyðileggjast eða verða raskað
við framkvæmdirnar.
Ragnar Edvardsson,
fornleifafræðingur hefur unnið að undirbúningi fornleifarannsóknar á svæðinu.
Meginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna ástand og dreifingu minja á
framkvæmdarsvæðinu í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að mikilvægum
menningarminjum verði eyðileggingu að bráð. Áætlað er að rannsóknin fari fram
árið 2003.
|