Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík. 

        Sími: 4567005, fax 4567351 

        netfang:  nave@nave.is

        Kennitala: 610397-2209


Forsíða           

Stjórn

Starfsmenn

Verkefni                    

Skýrslur

Bókaskrá

Lög og reglur

Samstarf og nefndir

Tenglar

Náttúrustofur

Náttúrugripasafn

 

 

Rannsóknir á Verminjum á norðanverðum Vestfjörðum

Síðan 1999 hafa staðið yfir fornleifarannsóknir á verminjum á norðanverðum Vestfjörðum. Rannsóknin er hluti doktorsverkefni Ragnars Edvardssonar við City University of New York, Graduate Center og er unnin í samvinnu við Náttúrustofu Vestfjarða.

Rannsóknin er fjölþætt en meginmarkmið hennar er að kanna þróun og eðli verstöðva á tímabilinu 900 – 1500. Sérstök áhersla er lögð á rannsókn á þróun verstöðva í átt til fiskveiðiþorpa á síðmiðöldum.

Rannsóknin felur í sér, m.a. úttekt og uppmælingu á verstöðvum í Ísafjarðar- og Strandasýslum og fornleifauppgreftri á völdum stöðum.

Á tímabilinu 1999 – 2001 voru fjölmargar verstöðvar frá ýmsum tímabilum Íslandssögunnar mældar upp og skráðar. Sumarið 2002 hófst fornleifauppgröftur á tveim verstöðvum; Sauratúni í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu og Skálavík í Bolungarvíkurkaupstað í Ísafjarðarsýslu. Enn á eftir að ganga endanlega frá uppgraftrargögnum en frumathugun bendir til þess að verstöðin á Sauratúni hafi byggst snemma en farið í eyði um 1500. Verstöðin í Skálavík hefur sennilega byggst snemma en róið var þar fram á 20. öld. Sennilega var búið á Sauratúni eingöngu á vertíð en þess á milli var hún í eyði. Verstöðin í Skálavík hefur að öllum líkindum gengið í gegnum mörg þróunarferli og líklegt er að á 14. og 15. öld hafi hún, eins og Bolungarvík þróast í lítið fiskveiðiþorp. Á síðari hluta 17. aldar hnignar stöðinni og allt fram á byrjun 19. aldar róa þaðan bara bændur í Skálavík. Um aldamótin 1900 tekur verstöðin svo aftur að þróast í fiskveiðiþorp en vegna sérstakra ástæðna nær hún aldrei að verða að fiskveiðiþorpi.

Næsta sumar verður haldið áfram uppgreftri á Sauratúni og í Skálavík.

Fréttir

Fuglaupplýsingar

Fuglafréttir

Snjóflóðavarnir/

hættumat

Fornleifar   

Náttúruminjar

Skólpmengun

SNS-Samtök náttúrustofa

Kalkþörungar

Aðalbláber

Strandalavegur

Jaðrakan