I. KAFLI
Markmið, gildissvið o.fl.
Markmið.
1. gr.
1.1
Markmið reglugerðar þessarar er að vernda almenning og umhverfið, einkum vatn
og umhverfi þess, gegn mengun af völdum skólps. Einnig er það markmið að koma
á samræmdri og kerfisbundinni söfnun, meðhöndlun og hreinsun skólps frá
íbúðarbyggð, svo og hreinsun skólps frá tilteknum atvinnurekstri.
Gildissvið.
2. gr.
2.1
Reglugerðin gildir um söfnun, hreinsun og losun skólps frá þéttbýli og
tiltekinni atvinnustarfsemi og um atvinnurekstur hér á landi og í
mengunarlögsögunni. Reglugerðin gildir um athafnir einstaklinga eftir því sem
við á.
2.2 Reglugerðin gildir ekki um
losun skólps frá skipum.
Skilgeiningar.
3. gr.
3.1
Atvinnurekstur er hvers konar starfsemi og framkvæmdir.
3.2 Ármynni eru árósar á
mörkum ferskvatns og strandsjávar.
3.3 Besta fáanlega tækni er
framleiðsluaðferð og tækjakostur sem beitt er til að lágmarka mengun og myndun
úrgangs. Tækni nær til framleiðsluaðferðar, tækjakosts, hönnunar
mannvirkja, eftirlits og viðhalds búnaðarins og starfrækslu hans. Með
fáanlegri tækni er átt við aðgengilega framleiðsluaðferð og tækjakost (tækni)
sem þróaður hefur verið til að beita í viðkomandi atvinnurekstri og skal tekið
mið af tæknilegum og efnahagslegum aðstæðum. Með bestu er átt við
virkustu aðferðina til að vernda alla þætti umhverfisins.
3.4 Efnafræðileg súrefnisþörf
(COD) er mælikvarði á magn lífrænna efna í vatni, mælt með staðlaðri
aðferð.
3.5 Eftirlitsaðilar eru
viðkomandi heilbrigðisnefnd og Hollustuvernd ríkisins og einnig faggiltir
skoðunaraðilar sem starfa samkvæmt reglugerð þessari með takmarkaðar heimildir
í samræmi við 24. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
3.6 Ferskvatn (ósalt vatn)
er vatn sem kemur fyrir á náttúrlegan hátt, hefur lítinn saltstyrk og er
yfirleitt nýtanlegt til töku og vinnslu sem neysluvatn.
3.7 Ferskvatnsmörk er sá
staður í á þar sem selta hækkar vegna nálægðar sjávar á fjöru enda sé miðað
við lítið rennsli í ánni.
3.8 Fjöruborð er flæðarmál.
3.9 Fjörumörk er flóðhæð,
mörk aðfalla og útfalla.
3.10 Fráveita er
leiðslukerfi, þ.m.t. safnræsi, og búnaður til meðhöndlunar og hreinsunar
skólps.
3.11 Fráveituvatn er vatn (skólp,
ofanvatn, vatn frá upphitunarkerfum húsa o.fl.) sem veitt er í fráveitur.
3.12 Grunnvatn er vatn í
gegnmettuðum jarðlögum undir yfirborði jarðar.
3.13 Gæðamarkmið eru mörk
tiltekinnar mengunar í umhverfi (lofti, vatni, jarðvegi, seti eða lífverum) og/eða
lýsing á ástandi sem ákveðið er að gilda eigi fyrir svæði til þess að enn
minni hætta sé á að áhrifa mengunar gæti en stefnt er að með umhverfismörkum
og til að styðja tiltekna notkun umhverfisins og/eða viðhalda henni til lengri
tíma.
3.14 Hreinsun skólps:
Eins þreps hreinsun
er hreinsun skólps með aflfræðilegum og/eða efnafræðilegum aðferðum þar sem
svifagnir eru botnfelldar eða önnur hreinsun þar sem BOD5-gildi
skólps er lækkað um að minnsta kosti 20% áður en það er losað og heildarmagn
svifagna í skólpi er lækkað um að minnsta kosti 50%.
Grófhreinsun
er hreinsun fastra hluta úr fráveituvatni með rist, síu eða öðrum búnaði til
að koma í veg fyrir sjónmengun.
Tveggja þrepa hreinsun
er frekari hreinsun skólps en eins þreps með aðferð sem oftast felur í sér
líffræðilega hreinsun sem fylgt er eftir með botnfellingu eða öðru ferli, sbr.
kröfur í I. viðauka, 1. töflu. Rotþró með siturlögn eða sandsíu telst t.d.
vera tveggja þrepa hreinsun.
Viðunandi hreinsun
er hreinsun skólps með viðurkenndum hreinsibúnaði í samræmi við ákvæði
reglugerðar þessarar svo að gæðamarkmiðum fyrir viðtaka sé náð, sbr. I.- V.
viðauka.
3.15 Húsaskólp er skólp frá
íbúðarhúsnæði og þjónustustarfsemi sem einkum á rætur að rekja til efnaskipta
mannslíkamans og heimilisstarfa.
3.16 Iðnaðarskólp er skólp
annað en húsaskólp og ofanvatn sem losað er frá húsnæði eða annarri aðstöðu
sem notuð er til atvinnurekstrar.
3.17 Köfnunarefnissamband er
efni sem inniheldur köfnunarefni, þó ekki köfnunarefnissameindir í loftkenndu
formi.
3.18 Líffræðileg súrefnisþörf
(BOD5) er mælikvarði fyrir magn lífrænna efna í vatni mælt með
staðlaðri aðferð.
3.19 Losunarmörk eru mörk
fyrir leyfilega losun sem óheimilt er að fara yfir á einu eða fleiri tímabilum.
Mörkin geta verið tilgreind sem massi, rúmmál, styrkur eða aðrar breytur.
3.20 Mengun er þegar örverur,
efni og efnasambönd og eðlisfræðilegir þættir valda óæskilegum og skaðlegum
áhrifum á heilsufar almennings, röskun lífríkis eða óhreinkun lofts, láðs eða
lagar. Mengun tekur einnig til ólyktar, hávaða, titrings, geislunar og
varmaflæðis og ýmissa óæskilegra eðlisfræðilegra þátta.
3.21 Mengunarvarnaeftirlit
er eftirlit með þeim þáttum sem eiga að fyrirbyggja eða draga úr mengun lofts,
láðs eða lagar, eftirlit með eiturefnum og hættulegum efnum og fræðsla um
þessi mál. Vöktun umhverfisins telst til mengunarvarnaeftirlits.
3.22 Næringarefnaauðgun er
röskun á búsvæðum og jafnvægi í vistkerfi vatns sem má rekja til ofauðgunar
næringarsalta í vatni, einkum efnasambanda köfnunarefnis og fosfórs. Ofauðgun
lýsir sér oft sem aukning í frumframleiðni.
3.23 Ofanvatn er regnvatn og
leysingarvatn sem rennur í fráveitur af húsþökum, götum, gangstéttum og öðru
þéttu yfirborði.
3.24 Persónueining (pe.) er
magn lífrænna efna, næringarsalta og annarra efna sem samsvarar því sem einn
einstaklingur er að jafnaði talinn losa frá sér á sólarhring. Ein pe. af
lífrænu efni er það magn lífrænna efna í skólpi sem getur brotnað niður
líffræðilega með 60 g súrefnis á dag mælt með 5 sólarhringa lífefnafræðilegri
súrefnisnotkun.
3.25 Rotþró er tankur til
botnfellingar og hreinsunar á föstu sviflægu efni úr skólpi. Hollustuvernd
ríkisins gefur út leiðbeiningar um stærð, gerð og frágang rotþróa.
3.26 Safnræsi er kerfi sem
ætlað er að safna og veita burt skólpi frá þéttbýli.
3.27 Seyra eru þau
óhreinindi sem skilin eru frá fráveituvatni með botnfellingu, síun eða
fleytingu án síu- eða ristarúrgangs, þ.e. eftir að forhreinsun hefur átt sér
stað.
Tegundir seyru eru:
a)
seyra frá skólphreinsistöðvum, þ.e. húsaskólp eða skólp með sambærilega
samsetningu,b) seyra frá rotþróm og sambærilegum mannvirkjum,c) seyra
frá skólpstöðvum öðrum en a) og b).
3.28 Siturleiðsla er götuð
leiðsla sem lögð er í jörðu og dreifir fráveituvatni út í jarðveg.
3.29 Síður viðkvæmur viðtaki
eru ármynni og strandsjór þar sem endurnýjun vatns er mikil og losun
tiltekinnar mengunar er ekki talin hafa skaðleg áhrif á umhverfið.
3.30 Síu- og ristarúrgangur
er fastur úrgangur sem fellur til við grófhreinsun á skólpi.
3.31 Skólp er húsaskólp og
iðnaðarskólp eða blanda húsaskólps eða iðnaðarskólps og/eða ofanvatns.
3.32 Strandsjór er sjór sem
nær frá fjörumörkum og ferskvatnsmörkum í vatnsföllum að mengunarlögsögu.
3.33 Umhverfismörk eru
leyfilegt hámarksgildi mengunar í tilteknum viðtaka byggð á grundvelli
vísindalegrar þekkingar í því skyni að fyrirbyggja eða draga úr skaðlegum
áhrifum á heilsu manna og/eða umhverfið í heild. Umhverfismörk geta verið sett
til að vernda umhverfið í heild eða tiltekna þætti þess (svo sem
heilsuverndarmörk og gróðurverndarmörk).
3.34 Vatn er grunnvatn og
yfirborðsvatn.
3.35 Viðkvæmur viðtaki er
viðtaki sem gæti orðið fyrir áhrifum vegna mengunar sé ekki gripið til
verndaraðgerða eða viðtaki sem hefur orðið fyrir áhrifum vegna mengunar.
3.36 Viðtaki er svæði sem
tekur við mengun og þynnir hana eða eyðir.
3.37 Yfirborðsvatn er
kyrrstætt eða rennandi yfirborðsvatn, straumvötn, stöðuvötn, jöklar, svo og
strandsjór.
3.38 Þéttbýlissvæði er svæði
þar sem þéttbýli er nægilegt og/eða atvinnustarfsemi nægilega mikil til að
hægt sé að safna og veita skólpi til hreinsistöðva eða til staða þar sem það
er endanlega losað.
3.39 Þynningarsvæði er sá
hluti viðtaka þar sem þynning mengunar á sér stað og ákvæði starfsleyfis
kveða á um að mengun megi vera yfir umhverfismörkum eða gæðamarkmiðum.
II. KAFLI
Umsjón.Hlutverk Hollustuverndar
ríkisins og heilbrigðisnefnda.
4. gr.
4.1
Heilbrigðisnefndir, undir yfirumsjón Hollustuverndar ríkisins, skulu gera
nauðsynlegar ráðstafanir til þess að skólp verði hreinsað eftir því sem við á
samkvæmt þessari reglugerð.
III. KAFLI
Meginreglur.Almennt.
5. gr.
5.1
Heilbrigðisnefnd hefur eftirlit með öllum fráveitum.
5.2 Heilbrigðisnefnd skal vinna að
því að koma í veg fyrir og draga úr óhreinkun vatns, sjávar og stranda af
völdum hvers konar fráveituvatns í umdæminu í þeim tilgangi að koma í veg
fyrir óhollustu, náttúruspjöll og óþægindi.
5.3 Nefndin getur krafist þess að
aðilar í atvinnurekstri sem valdið getur mengun í fráveitu komi fyrir
viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn. Þetta getur átt við
almenningsskólpveitur en þó einkum fráveituvatn sem er mengað af olíu eða
eiturefnum eða mjög próteinríkt eða fituríkt fráveituvatn frá verksmiðjum eða
hvers konar öðrum atvinnurekstri.
5.4 Óheimilt er að láta hvers kyns
olíur, bensín, lífræn leysiefni eða önnur mengandi efni í fráveitur íbúðar- og
atvinnuhúsnæðis. Með slíkan úrgang fer samkvæmt reglugerð um spilliefni.
5.5 Þegar skólp, önnur fljótandi
óhreinindi eða yfirborðsvatn er leitt brott, sem og við hvers konar hreinsun
fráveituvatns, skal gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg
fyrir mengun eða óhollustu. Heilbrigðisnefnd getur gert kröfu um að
yfirborðsvatn og afrennsli hitaveitu sé leitt í sérstakar fráveitulagnir.
Losun skólps.
6. gr.
6.1
Skólpi skal farga á þann hátt að heilsu manna stafi ekki hætta af og með þeim
hætti að lífríki og umhverfi raskist sem minnst. Eigandi fráveitu ber ábyrgð á
því að fráveituvatni sé fargað í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar.
Velja skal losunarstaði skólps með það í huga að viðtaki spillist sem minnst.
Að öðru leyti skal förgunin vera í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar og
annarra reglugerða um varnir gegn vatnsmengun.
6.2 Virkni hreinsibúnaðar á skólpi
og dreifing þess í umhverfinu skal á hverjum tíma vera þannig að mengun í
yfirborðsvatni utan þynningarsvæða sé innan þeirra viðmiðunarmarka sem fram
koma í fylgiskjali með reglugerð þessari og í samræmi við aðrar reglugerðir
sem gilda um verndun vatns.
Hreinsun skólps.
7. gr.
7.1 Skólp skal hreinsa með
tveggja þrepa hreinsun eða sambærilegri hreinsun áður en því er veitt í
viðtaka nema kveðið sé á um annað í reglugerð þessari.
7.2 Skólp skal hreinsa með
ítarlegri hreinsun en tveggja þrepa ef viðtaki er viðkvæmur eða nýtur
sérstakrar verndar vegna nytja af ýmsu tagi, lífríkis, jarðmyndana eða
útivistar, auk annarra sérstakra vatnsverndunarsvæða, sbr. II. viðauka A.
7.3 Skólp skal hreinsa með a.m.k.
eins þreps hreinsun eða sambærilegri hreinsun verði viðtaki skilgreindur sem
síður viðkvæmur, sbr. viðmiðanir í II. viðauka B.
7.4 Hreinsað skólp skal endurnýtt
ef kostur er.
7.5 Að öðru leyti er vísað til VI.
kafla reglugerðarinnar og fylgiskjals 3 með reglugerðinni hvað varðar hreinsun
skólps.
Fráveituvatn frá
heilbrigðisstofnunum.
8. gr.
8.1
Hollustuvernd ríkisins skal setja sérstakar reglur um meðferð fráveituvatns
frá sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Skal þar sérstaklega kveðið á
um takmarkanir og hvernig hreinsun fráveituvatns frá þessum stofnunum skuli
hagað.
Lagnir.
9. gr.
9.1
Fráveitulögnum skal vera þannig fyrir komið og þær þannig gerðar og viðhaldið
að óhollusta eða óþægindi hljótist ekki af.
9.2 Öllu skólpi sem veitt er til
sjávar skal veitt minnst 5 metra niður fyrir meðalstórstraumsfjöruborð eða 20
metra út frá meðalstórstraumsfjörumörkum enda séu skilyrðin í 6. og 10. gr.
uppfyllt. Óheimilt er að leiða skólp þannig að frárennslisop opnist til hafna.
9.3 Vatn sem fer um
yfirfallsleiðslur vegna ofanvatns í einföldu kerfi skal veita út fyrir
stórstraumsfjörumörk í sjó og niður fyrir meðal lágmarkshæð í ferskvatni ef
mögulegt er. Við hönnun á fráveitum með einfalt kerfi er heimilt að miða við
að ofanvatn fari um yfirföll allt að 5% af tímanum eða þegar uppblandað skólp
með hitaveitu- og/eða ofanvatni er í hlutföllunum 1:5 a.m.k.
9.4 Ofanvatn skal ef kostur er
leiða í aðskilið kerfi til næsta viðtaka sem heilbrigðisnefnd metur að verði
ekki fyrir neikvæðum áhrifum. Gæta skal að ákvæðum fylgiskjals 1.
9.5 Heilbrigðisnefnd skal með
fræðslu- og kynningarstarfsemi koma í veg fyrir að mengandi efni berist í
kerfin á svæðum þar sem ofanvatn fer í sérstakt kerfi og endar í viðkvæmum
viðtaka.
9.6 Heilbrigðisnefnd getur krafist
hreinsunar á ofanvatni áður en því er hleypt í viðkvæman viðtaka. Gæta skal að
kröfum þeim sem koma fram í I. viðauka reglugerðarinnar og reglugerð um varnir
gegn mengun vatns.
9.7 Nú reynist ómögulegt vegna
landfræðilegra aðstæðna að uppfylla ákvæði 2. mgr. og er þá heimilt að leggja
til aðrar lausnir sem viðkomandi heilbrigðisnefnd metur fullnægjandi. Áður en
heilbrigðisnefnd tekur ákvörðun sína skal hún leita umsagnar Hollustuverndar
ríkisins.
Saurmengun - strandsjór.
10. gr.
10.1
Saurmengun í strandsjó sem er utan þynningarsvæða skal vera undir
umhverfismörkum sem fram koma í fylgiskjali 2 með reglugerð þessari.
Saurmengun - ár og vötn.
11. gr.
11.1
Saurmengun í ám og vötnum utan þynningarsvæða skal vera undir umhverfismörkum
sem fram koma í fylgiskjali 2 með reglugerðinni.
Seyra.12.
gr.
12.1
Óheimilt er að losa seyru í yfirborðsvatn.
12.2 Seyru sem fellur til við
meðhöndlun og hreinsun skólps skal nýta ef kostur er.
12.3 Seyru skal fargað á þann hátt
að umhverfið verði ekki fyrir skaða af völdum hennar og í samræmi við
reglugerð um seyru. Förgun seyru frá skólphreinsistöðvum er starfsleyfisskyld
og háð skráningu í samræmi við reglur þar að lútandi.
Fráveitur.
13. gr.
13.1 Á
öllum þéttbýlisstöðum, þéttbýlisvæðum, og eftir atvikum þyrpingu frístundahúsa,
skóla og ferðaþjónustumiðstöðva, skal vera fráveita. Þegar fráveita er lögð
skal fara eftir kröfum sem gilda um hreinsun skólps. Hönnun, lagning og
viðhald fráveitu skal samræmast bestu tækniþekkingu sem völ er á og ekki hafa
í för með sér óhóflegan kostnað. Við hönnun skal einkum taka tillit til eðlis
viðtaka, magns og eðlis skólps, lekavarna og yfirfalls vegna ofanvatns.
13.2 Heilbrigðisnefnd getur bannað
notkun ófullnægjandi fráveitulagna og krafist endurbóta og endurnýjunar þeirra.
13.3 Fráveituvatn einstakra húsa,
þ.m.t. íbúðarhús lögbýla, frístundahúsa og fjallaskála sem ekki verður veitt í
fráveitur, skal veitt um rotþró og siturleiðslu samkvæmt leiðbeiningum sem
Hollustuvernd ríkisins gefur út og fyrirmælum heilbrigðisnefndar eða annan
sambærilegan búnað.
13.4 Þar sem skólpi og öðru
fráveituvatni verður ekki veitt í almenna fráveitu, t.d. frá frístundahúsum,
skal veita því eftir vatnsheldum holræsum í rotþrær og skal afla fyrirmæla og
leyfis heilbrigðisnefnda hverju sinni.
13.5 Þar sem fráveitum verður ekki
við komið eða þar sem landfræðilegar aðstæður valda því að rotþró og siturlögn
eru ekki álitlegur kostur er heimilt að nota þurrsalerni. Búnaður fyrir
þurrsalerni skal vera af viðurkenndri gerð og samþykktur af heilbrigðisnefnd.
IV. KAFLI
Leyfisveitingar.Þéttbýli.
14. gr.
14.1
Heilbrigðisnefnd veitir starfsleyfi vegna fráveitu- og hreinsibúnaðar sem
notaður er við meðhöndlun og hreinsun og losun á skólpi frá þéttbýli í samræmi
við ákvæði þessarar reglugerðar, einkum ákvæði B-hluta I. viðauka og í samræmi
við ákvæði reglugerðar um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í
för með sér mengun. Sjá að öðru leyti ákvæði III. og V. kafla reglugerðarinnar.
Aðrir staðir.
15. gr.
15.1
Heilbrigðisnefnd samþykkir nýjar og endurbættar fráveitur og veitir einnig
leyfi fyrir búnaði sem notaður er við meðhöndlun og hreinsun og losun á skólpi
sem ekki fellur undir 14. gr. Heilbrigðisnefnd skal hafa náið samráð við
Hollustuvernd ríkisins áður en samþykki er veitt fyrir fráveitu- og
hreinsibúnaði samkvæmt ákvæði þessu.
V. KAFLI
Fráveitur.Fráveitukerfi.
16. gr.
16.1 Í
hverfi íbúðarhúsa, frístundahúsa, atvinnuhúsnæðis og þar sem fram fer
umfangsmikið tómstundastarf skal komið á sameiginlegu fráveitukerfi, sbr. þó
3. mgr. 18. gr. Þar sem skólpi frá einstökum húsum eða frístundahúsum verður
ekki veitt í sameiginlega fráveitu skal veita því eftir vatnsheldum lögnum í
rotþrær og siturlögn eða sandsíu eða annan sambærilegan búnað. Afla skal
fyrirmæla og leyfis hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar hverju sinni. Aðeins er
heimilt að nota rotþrær eða annan búnað sem er í samræmi við leiðbeiningar
Hollustuverndar ríkisins. Rotþró skal sýnd á holræsateikningu hússins.
Fráveitur á þéttbýlissvæðum.
17. gr.
17.1
Sveitarstjórn skal senda áætlun um nýjar og endurbættar fráveitur til
heilbrigðisnefndar. Í áætlun skulu koma fram upplýsingar um þá þætti sem
fjallað er um í I., II. og III. viðauka og um önnur atriði reglugerðar
þessarar eins og við á hverju sinni. Jafnframt skulu m.a. koma fram
upplýsingar um:
1.
Svæðið sem fráveituvatni er veitt frá og að hve miklu leyti fráveitan kemur í
stað eldri fráveitna.2. Fyrirhugað magn fráveituvatns og mengunarefna annars
vegar frá íbúðabyggð og hins vegar frá iðnaðarsvæðum, svo og um hvers konar
iðnað er að ræða.3. Fyrirhugaða hreinsun fráveituvatns, þ.ám. sérstaka
hreinsun á fráveituvatni frá iðnaði.4. Fyrirhugaðan viðtaka fráveituvatnsins
og með hvaða hætti fyrirhugað er að leiða út í viðtakann.5. Áætluð
áhrif á viðtaka af völdum fráveituvatnsins.6. Fyrirhugaða meðhöndlun
ristarúrgangs og seyru frá hreinsivirkjum og fyrirhugaðan móttökustað. 7.
Hvenær áætlað er að fráveitan verði tekin í notkun og framkvæmdaáætlun fyrir
einstaka áfanga.
Áætlun og tímamörk.
18. gr.
18.1
Safnræsi skal komið á sem hér segir:
Tímamark - ár
Magn pe. Viðtaki
a. fyrir 31. des.
2000 >15.000 allir
b. fyrir 31. des.
2005 2.000 til 15.000 allir
c. frá og með gildistöku
reglugerðarinnar
> 10.000 viðkvæmur
18.2 Safnræsi skulu uppfylla þær
kröfur sem fram koma í I. viðauka, A-hluta.
18.3 Þar sem lagning safnræsa þykir
ekki álitlegur kostur annaðhvort vegna þess að það hefur ekki umhverfisbætandi
áhrif eða það hefur í för með sér óhóflegan kostnað skal nýta önnur kerfi sem
vernda umhverfið jafn vel. Gæta skal ákvæða 9. gr.
VI. KAFLI
Hreinsun skólps á þéttbýlissvæðum.
Hönnun skólphreinsi- og dælustöðva.
19. gr.
19.1
Skólphreinsi- og dælustöðvar skulu byggðar, starfræktar og haldið við þannig
að nægilega tryggt sé að þær starfi sem skyldi við öll veðurskilyrði á staðnum.
Við hönnun stöðvanna skal taka tillit til árstíðabundinna magnsveiflna. Í
starfsleyfi skólphreinsistöðva og útrásadælustöðva skal taka mið af þeim
kröfum sem getið er í B-hluta I. viðauka eftir því sem við á hverju sinni auk
annarra ákvæða reglugerðar þessarar. Við eftirlit og mat á mengunarmælingum
skal taka mið af D-hluta I. viðauka. Magn pe. í skólpi skal reiknað út á
grundvelli mesta meðalmagns á viku sem fer um hreinsistöðina á ári að
frádregnu því sem fellur til við óvenjulegar aðstæður, t.d. við stórrigningar.
Eins þreps hreinsun. Áætlun og
tímamörk.
20. gr.
20.1 Eins
þreps hreinsun skólps, eða sambærilegri hreinsun, skal komið á sem hér segir:
Tímamark - ár
Magn pe. Viðtaki
a. fyrir 31. des.
2000 15.000 til 150.000 síður viðkvæmur/strandsjór
b. fyrir 31. des.
2005 10.000 til 15.000 síður viðkvæmur/strandsjór
c. fyrir 31. des.
2005 2.000 til 10.000 síður viðkvæmur/ármynni
20.2 Hreinsun skólps, sbr. a - c,
skal a.m.k. uppfylla kröfur sem gerðar eru til eins þreps hreinsunar, sbr.
skilgreiningu í 3. gr. Notkun síubúnaðar til hreinsunar skólps er sambærileg
eins þreps hreinsun á síður viðkvæmum svæðum.
20.3 Sveitarstjórnir skulu senda
tillögur að skilgreiningu viðtaka sem er síður viðkvæmur ásamt fullnægjandi
gögnum til Hollustuverndar ríkisins. Stofnunin metur hvort gögnin sýna góða
hæfni viðtaka til að taka við og eyða skólpi og eru í samræmi við fylgiskjal 2
og staðfestir skilgreininguna.
20.4 Áður en eins þreps hreinsun er
heimiluð skal eigandi fráveitu í samráði við heilbrigðisnefnd rannsaka
ítarlega áhrif skólps á umhverfið. Viðkomandi heilbrigðisnefnd skal hafa
samráð við Hollustuvernd ríkisins við gerð rannsóknarinnar. Þegar skólp er
losað á svæðum sem skilgreind hafa verið sem síður viðkvæm skal
heilbrigðisnefnd hafa eftirlit með og hlutast til um allar þær rannsóknir sem
staðfesta að losun hafi ekki óæskileg áhrif. Við eftirlit og mat á
mengunarmælingum skal taka mið af D-hluta I. viðauka.
20.5 Fráveituvatn sem veitt er frá
einstökum húsum, sbr. 3. mgr. 13. gr., er undanþegið rannsóknarskyldu enda sé
því veitt um rotþró og siturleiðslu eða annan sambærilegan búnað samkvæmt
leiðbeiningum Hollustuverndar ríkisins og fyrirmælum heilbrigðisnefndar.
Undanþágan gildir ekki um þyrpingu frístundahúsa.
20.6 Skilgreining síður viðkvæmra
svæða skal endurskoðuð á a.m.k. fjögurra ára fresti og skal við skilgreiningu
fara eftir þeim viðmiðunum sem koma fram í II. viðauka með reglugerðinni.
20.7 Verði viðtaki ekki lengur
skilgreindur sem síður viðkvæmt vatnasvæði skal tveggja þrepa hreinsun komið á
innan 7 ára frá því skilgreiningu var breytt.
20.8 Í undantekningartilvikum þegar
hægt er að sýna fram á að þróaðri hreinsiaðferðir hafi engin umhverfisbætandi
áhrif má hreinsa skólp með meira en 150.000 pe. sem veitt er í síður viðkvæm
svæði með eins þreps hreinsun.
Tveggja þrepa
hreinsun.
Áætlun og tímamörk.
21. gr.
21.1 Tveggja þrepa hreinsun eða
sambærilegri hreinsun skólps skal komið á sem hér segir:
Tímamark - ár
Magn pe. Viðtaki
a. fyrir 31. des.
2000 >15.000 yfirborðsvatn
b. fyrir 31. des.
2005 10.000 til 15.000 yfirborðsvatn
c. fyrir 31. des.
2005 2.000 til 10.000 ármynni/ferskvatn
Hreinsun skal uppfylla kröfur I.
viðauka, B-hluta.
21.2 Koma skal á tveggja þrepa
hreinsun eða sambærilegri hreinsun fyrir skólp, þegar skólpi er veitt í
viðtaka og viðtaki hefur hvorki verið skilgreindur sem viðkvæmt né síður
viðkvæmt svæði.
21.3 Við eftirlit og mat á
mengunarmælingum skal taka mið af I. viðauka, D-hluta.
22. gr.
22.1 Á hálendum og/eða köldum
svæðum þar sem skólp frá þéttbýli er losað í yfirborðsvatn og örðugt reynist
að beita líffræðilegri hreinsun að gagni vegna lágs hitastigs er heimilt að
beita aðferðum þar sem ekki eru gerðar eins strangar kröfur um hreinsun og
getið er í 1. mgr. 21. gr. Sérstök rannsókn skal þó fara fram áður en slík
losun er heimiluð. Gæta skal ákvæða laga um mat á umhverfisáhrifum.
Frekari hreinsun. Áætlun og
tímamörk.
23. gr.
23.1
Frekari hreinsun skólps en tveggja þrepa skal komið á sem hér segir:
Tímamark - ár
Magn pe. Viðtaki
a. frá og með gildistöku
reglugerðarinnar
_ 10.000 viðkvæmur
b. fyrir 31. des.
2000 < 10.000
viðkvæmur
23.2 Hreinsun skólphreinsistöðva
fyrir þéttbýli sem staðsettar eru á vatnasviði viðkvæmra svæða og valda mengun
á þessum svæðum skulu uppfylla kröfur I. viðauka, B-hluta og 2. töflu. Að
fenginni umsögn Hollustuverndar ríkisins er heimilt að setja mismunandi kröfur
til skólphreinsistöðva á sama vatnasvæðinu ef markmiði um 75% heildarlækkun á
köfnunarefni og fosfór er náð. Við eftirlit og mat á mengunarmælingum skal
taka mið af D-hluta, I. viðauka.
Viðunandi hreinsun.
24. gr.
24.1
Skylt er að koma á viðunandi hreinsun skólps, sbr. skilgreiningu í 14. mgr. 3.
gr. og í samræmi við meginreglur í 7. gr. og eftirfarandi tímamörk:
Tímamark - ár
Magn pe. Viðtaki
a. fyrir 31. des.
2005 < 2.000 yfirborðsvatn/ármynni
b. fyrir 31. des.
2005 < 10.000 strandsjór
VII. KAFLI
Iðnaðarstarfsemi.Skólp frá
iðnaðarstarfsemi sem losar lífrænan úrgang í eigin fráveitu.
25. gr.
25.1
Iðnaðarstarfsemi samkvæmt III. viðauka sem losar skólp sem ekki er leitt í
fráveitu fyrir þéttbýli og inniheldur lífræn efni sem brotna auðveldlega niður
í umhverfinu er háð ákvæðum um hreinsibúnað í starfsleyfi. Hreinsibúnaður skal
vera í samræmi við leiðbeiningar Hollustuverndar ríkisins.
25.2 Heilbrigðisnefnd skal fyrir
31. desember árið 2000 tilkynna Hollustuvernd ríkisins um fyrirtæki, sbr. III.
viðauka, sem losa meira en 4.000 pe. af skólpi sem ekki er veitt í fráveitu
fyrir þéttbýli og inniheldur efni sem eyðast auðveldlega í umhverfinu.
Jafnframt skal senda stofnuninni upplýsingar um kröfur þær sem gerðar eru í
starfsleyfum.
25.3 Öðrum atvinnurekstri en
greinir í 1. mgr. ber að fara eftir sérstökum reglugerðum sem gilda um losun
tiltekinna efna í vatn.
Iðnaðarskólp sem losað er í
safnræsiog fráveitur fyrir þéttbýli.
26. gr.
26.1
Iðnaðarskólp sem veitt er í safnræsi og fráveitur fyrir þéttbýli skal uppfylla
þær kröfur sem koma fram í I. viðauka, C-hluta. Í starfsleyfi
starfsleyfisskylds atvinnurekstrar skal setja kröfur um hreinsun skólps sem
uppfylla skilyrði ákvæðis þessa, svo og einstakra sérreglugerða sem varða
viðkomandi iðnaðarstarfsemi og við eiga hverju sinni.
26.2 Iðnaðarskólp sem inniheldur
önnur efni en lífræn er háð ákvæðum um hreinsibúnað í starfsleyfi og
viðeigandi reglu þar að lútandi.
26.3 Að öðru leyti fer um
iðnaðarstarfsemi samkvæmt reglugerð um megnunarvarnaeftirlit og reglugerð um
starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun.
VIII. KAFLI
Mengunarvarnaeftirlit o.fl.
Framkvæmd.
27. gr.
27.1
Eftirlitsaðili gerir eða lætur gera eftirlitsmælingar:
a. á
fráveituvatni og losun frá skólphreinsistöðvum fyrir þéttbýli til að staðfesta
að farið sé að þeim kröfum sem settar eru fram í B-hluta, I. viðauka, í
samræmi við eftirlitstilhögun þá sem mælt er fyrir um í D-hluta, I. viðauka,b.
á viðtaka sem skólpi frá skólphreinsistöðvum fyrir þéttbýli er veitt í eða
losað af iðnfyrirtækjum, sbr. VII. kafla, ef hætta er á að það valdi
merkjanlegum áhrifum á viðtaka,c. á viðtaka þar sem losað er skólp
sem hreinsað hefur verið með eins þreps hreinsun og losað í síður viðkvæman
viðtaka og sem staðfesta að losunin hafi ekki skaðleg áhrif á umhverfið.
27.2 Hollustuvernd ríkisins gefur
út leiðbeiningar um sýnatöku og rannsóknir miðað við magn fráveituvatns og
mismunandi aðstæður.
27.3 Að öðru leyti gilda ákvæði
reglugerðar um mengunarvarnaeftirlit um eftirlit og verkaskiptingu.
Stöðuskýrsla.
28. gr.
28.1
Heilbrigðisnefnd skal sjá um að annað hvert ár verði gefin út stöðuskýrsla um
förgun skólps á svæði nefndarinnar. Skýrslan skal byggjast á gögnum
sveitarstjórnar um núverandi fráveitukerfi og framtíðaráform þeirra. Að auki
skal hún byggjast á niðurstöðum úr eftirlitsmælingum heilbrigðiseftirlitsins.
Skýrsluna skal senda til Hollustuverndar ríkisins sem dregur efni þeirra saman
í sameiginlega stöðuskýrslu yfir landið.
28.2 Í upplýsingum samkvæmt 1. mgr.
komi a.m.k. fram:
1.
Hvar og með hvaða hætti fráveituvatni er veitt út í umhverfið.2. Magn
fráveituvatns frá íbúðabyggð og iðnaðarsvæðum, svo og tegund iðnaðar sem
veitir fráveituvatni í fráveitukerfið.3. Hreinsun fráveituvatns, þ.á m.
sérstök hreinsun á fráveituvatni frá iðnaði.4. Meðhöndlun og förgun
á ristarúrgangi og seyru frá hreinsibúnaði.5. Dreifing gerlamengunar
í viðtaka.6. Niðurstöður eftirlitsmælinga.
28.3 Telji Hollustuvernd ríkisins,
þegar leitað hefur verið eftir áliti umsagnaraðila, að úrbóta sé þörf skal
stofnunin leita eftir tillögum sveitarstjórnar um þær.
IX. KAFLI
Aðgangur að upplýsingum,
þvingunarúrræði, viðurlög o.fl.
Aðgangur að upplýsingum.
29. gr.
29.1 Um
aðgang að upplýsingum fer samkvæmt lögum um upplýsingamiðlun og aðgang að
upplýsingum um umhverfismál nr. 21/1993, upplýsingalögum nr. 50/1996 og lögum
um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
Þagnarskylda eftirlitsaðila.
30. gr.
30.1
Eftirlitsaðilar og aðrir sem starfa samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar eru
bundnir þagnarskyldu um atriði sem varða framleiðslu- og verslunarleynd. Sama
gildir um atriði sem þeir fá vitneskju um og leynt skulu fara samkvæmt lögum
eða eðli máls. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
30.2 Upplýsingar og tilkynningar
eftirlitsaðila til fjölmiðla skulu vera efnislega rökstuddar og þess gætt að
einstakar atvinnugreinar, stofnanir eða fyrirtæki bíði ekki tjón og
álitshnekki að óþörfu.
Valdsvið og þvingunarúrræði.
31. gr.
31.1 Til
að knýja á um ráðstafanir samkvæmt reglugerð þessari skal fylgja þeim
þvingunarúrræðum sem mælt er fyrir um í IX. kafla reglugerðar um
mengunarvarnaeftirlit þegar við á. Annars gilda ákvæði VI. kafla laga um
hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 um valdsvið og þvingunarúrræði.
Viðurlög.
32. gr.
32.1 Brot
gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum hvort sem þau eru framin af
ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að
ræða skulu þau að auki varða fangelsi allt að fjórum árum.
32.2 Sektir má ákvarða lögaðila þó
að sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá
einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið
til hagsbóta fyrir lögaðilann.
X. KAFLI
Lagastoð, gildistaka o.fl.
33. gr.
33.1
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 5. gr. laga nr. 7/1998, um
hollustuhætti og mengunarvarnir, einkum 5. gr. laganna og samkvæmt lögum nr.
32/1986 um varnir gegn mengun sjávar. Jafnframt er reglugerðin sett að höfðu
samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga hvað varðar skyldur sveitarfélaga,
sbr. ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 7/1998.
33.2 Reglugerðin er sett með
hliðsjón af 13. tölul. XX. viðauka EES-samningsins (tilskipun 91/271/EBE,
tilskipun 98/15/EB).
33.3 Reglugerðin öðlast gildi við
birtingu. Frá sama tíma falla úr gildi 31. - 34. gr. heilbrigðisreglugerðar
nr. 149/1990 með síðari breytingum.
Ákvæði til bráðabirgða.
Iðnaðarstarfsemi sem fellur undir
25. gr. skal uppfylla ákvæði reglugerðar þessarar eigi síðar en 31. desember
2000.
Umhverfisráðuneytinu, 29. október
1999.
Siv Friðleifsdóttir.
Magnús Jóhannesson.
Fylgiskjal 1.
Gæðamarkmið og
umhverfismarkmið fyrir hámarksmengun. A. Við útrásir þar sem fráveituvatn er
leitt í viðtaka sem ekki njóta sérstakrar verndar má hvergi vera:
- Set eða útfellingar.
- Þekjur af rotverum (bakteríur
og sveppir).
- Olía eða froða.
- Sorp eða aðrir aðskotahlutir.
- Efni sem veldur óþægilegri
lykt, lit eða gruggi.
B. Í
ám og vötnum utan þynningarsvæðis skulu eftirfarandi umhverfismörk gilda:
Hámarkshitabreyting af völdum
frárennslis: 2°C
Súrefnismettun, lágmark: 70%
Má aldrei fara undir 6 mg O2/l
50% af tímanum yfir 9 mg O2/l
Sýrustig, pH: 6 - 9
Hámarksbreyting á sýrustigi vegna
frárennslis: 0,5
Ammoníak, NH3: Minna en
0,025 mg/l
Súrefnisnotkun BOD5:
Hæst 4 mg O2/l
HOCl: Hæst 0,004 mg/l
Olíur og fitur: Olíubrák má ekki
sjást
Hámarksaukning á svifögnum vegna
frárennslis: 2 mg/l
Fylgiskjal 2.
Umhverfismörk
fyrir saurmengun yfirborðsvatns vegna holræsaútrása.1. Fjöldi hitaþolinna
kólíbaktería eða saurkólígerla eða saurkokka skal utan þynningarsvæðis í a.m.k.
90% tilfella vera undir 1000 pr. 100 ml miðað við lágmark 10 sýni.2. Þar
sem útivistarsvæði eru við fjörur ellegar matvælaiðnaður í grennd skal fjöldi
hitaþolinna kólíbaktería eða saurkokka í a.m.k. 90% tilfella vera undir 100
pr. 100 ml utan þynningarsvæðis miðað við lágmark 10 sýni.
Fylgiskjal 3.
Tímamörk til að fullnægja ákvæðum
um hreinsun skólps:
A. Fráveita
losuð í ferskvatn eða árósa. < 2000 pe. > 2000 pe.
Viðkvæm svæði Ekki viðkvæm svæði
2000 - 15.000 pe. > 15.000 pe.
2000 - 10.000 pe. > 10.000 pe. Viðunandi Tveggja þrepa
Tveggja þrepa Tveggja þrepa Þriggja þrepa hreinsun fyrir hreinsun
fyrir hreinsun fyrir hreinsun fyrir hreinsun fyrir
árið 2006 árið 2006 árið 2001 árið 2006
árið 1999
B. Fráveita
losuð í strandsjó < 10.000 pe. 10.000 -
15.000 pe. > 15.000 pe. Síður Aðrir en
síður Síður Aðrir en síður viðkvæmur viðkvæmir
viðkvæmur viðkvæmir viðtaki viðtakar viðtaki
viðtakar Viðunandi hreinsun Eins þrepa Tveggja þrepa Eins þrepa
Tveggja þrepa fyrir árið 2006 fyrir árið 2006 fyrir árið 2006
fyrir árið 2001 fyrir árið 2001I.
viðauki.Kröfur vegna skólps frá þéttbýli.A. Safnræsi.1)
Við
lagningu safnræsa skal hafa í huga kröfur þær sem gilda um hreinsun skólps.
Hönnun, lagning og viðhald safnræsa
skal samræmast bestu tækniþekkingu sem völ er á og hefur ekki í för með sér
óhóflegan kostnað, einkum að því er varðar:
- magn og eðli skólps frá þéttbýli,
- lekavarnir,
- takmörkun mengunar viðtökuvatns
vegna ofanvatns.
1) Sjá 13. gr. reglugerðar
þessarar.
B.
Hönnun skólphreinsistöðva fyrir þéttbýli og losun skólps.1.
Skólphreinsistöðvar skal hanna eða breyta þannig að unnt sé að taka dæmigerð
sýni af aðveituskólpi, svo og hreinsuðu skólpi áður en það er losað í
viðtökuvatn.2. Skólp frá þéttbýli sem hreinsa á í samræmi við
reglugerðina skal uppfylla kröfur þær sem fram koma í 1. töflu.3. Skólp frá
þéttbýli til viðkvæmra svæða þar sem næringarefnaauðgun kann að eiga sér stað
eins og bent er á í a-lið A-hluta II. viðauka skal að auki uppfylla kröfur þær
sem fram koma í 2. töflu þessa viðauka.4. Beita skal strangari kröfum en
þeim sem fram koma í 1. töflu og/eða 2. töflu þessa viðauka ef nauðsyn krefur
til að tryggt sé að viðtakinn uppfylli kröfur sem gerðar eru samkvæmt ákvæðum
reglugerðar þessarar.5. Útrásir skólps frá þéttbýli skulu, eftir því sem
kostur er, valdar með það í huga að viðtökuvatn spillist sem minnst.C.
Iðnaðarskólp.
Iðnaðarskólp sem veitt er í
safnræsi og til skólphreinsistöðva fyrir þéttbýli skal forhreinsað. Markmiðið
skal vera að:
-
vernda heilsu starfsfólks sem vinnur í tengslum við safnræsi og hreinsistöðvar,-
tryggja að safnræsi, skólphreinsistöðvar og tengdur búnaður verði ekki fyrir
skemmdum,- tryggja að starfsemi skólphreinsistöðvarinnar og hreinsun skólps
verði ekki fyrir truflunum,- tryggja að skólp hreinsistöðva spilli
umhverfinu ekki alvarlega eða komi í veg fyrir að viðtaki uppfylli aðrar
kröfur reglugerðar þessarar,- tryggja að hægt sé að farga seyru á
öruggan hátt.
D.
Tilvísunaraðferðir við eftirlit og mat á niðurstöðum.1.
Tryggt skal að eftirlitsaðferðir þær sem beitt er séu að minnsta kosti í
samræmi við þær kröfur sem lýst er hér að neðan. Beita má öðrum aðferðum en
þeim sem getið er um í 2., 3. og 4. mgr. að því tilskildu að hægt sé að færa
sönnur á að sambærilegar niðurstöður fáist.2. Sýni eru tekin með jöfnu
millibili yfir sólarhring sem miðast við hlutfall flæðis eða hlutfall á
sólarhring á fastákveðnum stað í útrás og ef nauðsyn krefur í aðrás
hreinsistöðvarinnar til að fylgjast með því hvort ákvæði reglugerðar þessarar
séu uppfyllt. Beita skal viðurkenndum alþjóðlegum rannsóknaraðferðum sem
miða að því að gæði sýna rýrni ekki milli þess sem þeim er safnað og þau
greind.3. Lágmarksfjöldi sýna á ári skal ákveðinn í samræmi við stærð
hreinsistöðvarinnar og sýnunum safnað með reglulegu millibili allt árið.
- 2000 til 9999 pe.:
12 sýni á fyrsta ári.
Síðan eru tekin
fjögur sýni næstu árin, sé hægt að sýna fram á að vatnið sem rannsakað er
fyrsta árið standist kröfur reglugerðar þessarar. Ef eitt þessara fjögurra
sýna stenst ekki settar kröfur skal taka 12 sýni næsta ár á eftir.
- 10000 til 49999 pe.:
12 sýni.
- 50000 pe. eða fleiri:
24 sýni.
4.
Hreinsað skólp telst uppfylla losunarmörk ef skólpsýnin uppfylla þau fyrir
hverja færibreytu um sig sem hér segir:a) hámarksfjöldi sýna þar
sem gildi (styrkur og/eða lækkun miðað við hundraðshluta) er hærra en
losunarmörk á að vera í samræmi við töflu 3,b) sýni sem eru tekin
við venjulega starfrækslu og standast ekki kröfur sbr. 1. töflu mega ekki
víkja meira frá settum losunarmörkum en 100% nema hvað varðar heildarmagn
svifagna en þar má frávikið nema allt að 150%,c) vegna
færibreytnanna í 2. töflu skal ársmeðaltal sýnanna uppfylla losunarmörk
viðeigandi færibreytu.5. Ekki skal taka mark á gildum sem eru mjög
frábrugðin því sem venjulegt getur talist, einkum ef rekja má þau til aðstæðna
sem heyra til undantekninga, t.d. stórrigninga.
1. tafla:
Losunarmörk sem gilda um skólp frá skólphreinsistöðvum fyrir þéttbýli samkvæmt
21., 22. og 23. gr. Gildin fyrir styrk eða lækkun miðað við hundraðshluta
skulu eiga við: LágmarkslækkunFæribreytur Styrkur
miðað við Tilvísunaraðferð hundraðshluta1)Líffræðileg
súrefnisþörf 25 mg/l O2 70 til 90 Einsleitt,
ósíað og óafhellt(BOD við 20°C) án sýni. Mæling
uppleystsnítrunar2). súrefnis á undan og
eftir 40 vegna 22. gr. fimm daga ræktun við
20°C ± í algjöru myrkri.
Nítrunartala bætt við.Efnafræðileg súrefnisþörf 125 mg/l O2
75 Einsleitt, ósíað og óafhellt(COD)
sýni. Kalíumdíkrómat- aðferð.Heildarmagn svifagna
35 mg/l3) 903) - Síun dæmigerðs
sýnis í gegnum 0,45 µm 90 vegna
22. gr. himnu. Þurrkað við 35 vegna 22. gr. (meira
en 10.000 pe.) 105°C og vegið. (meira en 10.000 pe.)
- Skiljun dæmigerðs sýnis (í að minnsta
kosti fimm vegna 22. gr, mínútur með 2.800 til
(2.000 - 10.000 pe.) 70 vegna 22. gr. 3.200 g meðalhröðun),
(2.000 - 10.000 pe.) þurrkað við 105°C og
vegið.1) Lækkun miðað við styrk
aðveituskólps.2) Setja má aðra færibreytu inn í stað þessarar:
heildarmagn lífræns kolefnis í vatninu (TOC) eða heildarsúrefnisþörf (TOD) ef
hægt er að sýna fram á tengsl milli BOD5 og færibreytunnar sem
kemur í stað hinnar.3) Þessi krafa er valfrjáls.
Greining á skólpi frá
hreinsitjörnum skal gerð með því að nota síuð sýni; styrkur heildarmagns
svifagna í ósíuðum vatnssýnum skal þó ekki fara yfir 150 mg/l.
2. tafla:
Losunarmörk sem gilda um skólp frá skólphreinsistöðvum fyrir þéttbýli til
viðkvæmra svæða þar sem næringarefnaauðgun kann að eiga sér stað eins og bent
er á í a-lið A-hluta II. viðauka. Beita má annarri eða báðum færibreytunum með
hliðsjón af staðbundnum aðstæðum. Gildin fyrir styrk eða lækkun miðað við
hundraðshluta skulu eiga við: LágmarkslækkunFæribreytur
Styrkur miðað við Tilvísunaraðferð
hundraðshluta1)Heildarstyrkur fosfórs 2 mg/l P
80 Sameindagleypnilitrófs- (10.000 - 100.000 pe.)
mæling 1 mg/l P (meira en 100.000 pe.)Heildarstyrkur köfnunar- 15
mg/l N 70 - 80 Sameindagleypnilitrófs-efnis2)
mæling (10.000 - 100.000 pe.) 10 mg/l N (meira en 100.000
pe.)3)1) Lækkun miðað við styrk aðveituskólps.2)
Heildarstyrkur köfnunarefnis merkir: heildarsumma Kjeldahl-köfnunarefnis (lífrænt
N + NH3 - N), nítrat-
köfnunarefni (NO3 - N) og nítrít-köfnunarefni (NO2-N).3)
Annar kostur er sá að sólarhringsmeðaltal fari ekki yfir 20 mg/1 N. Miðað er
við 12°C vatnshita eða hærri meðan líffræðilegur hvarfvaki
skólphreinsistöðvarinnar starfar. Í stað kröfunnar um hitastig má starfrækja
hreinsistöð tímabundið ef tillit er tekið til veðurskilyrða á staðnum. Nýta má
þennan möguleika ef hægt er að færa sönnur á að ákvæðum 1. mgr. D-hluta, I.
viðauka sé fullnægt.
3. tafla
Sýni sem tekin Leyfilegur hámarks- eru ár hvert fjöldi sýna sem
ekki uppfylla settar kröfur 4 - 7 8 - 16 17 -
28 29 - 40 41 - 53 54 - 67
68 - 81 82 - 95 96 - 110 111 - 125
126 - 140 141 - 155 156 - 171 172 - 187
188 - 203 204 - 219 220 - 235 236 - 251
252 - 268 269 - 284 285 - 300 301 - 317 318 -
334 335 - 350 351 - 365
II. viðaukiViðmiðanir um hvaða
svæði skuli talin viðkvæm eða síður viðkvæm.A. Viðkvæm svæði.
Vatnsumhverfi skal teljast viðkvæmt
svæði ef hægt er að flokka það sem hér segir:
a)
stöðuvötn mynduð af náttúrunnar hendi, annað yfirborðsvatn, ármynni og
strandsjór þar sem næringarefnaauðgun hefur orðið eða kann að verða í náinni
framtíð ef ekki er gripið til fyrirbyggjandi ráðstafana. Eftirfarandi
þættir skulu hafðir í huga þegar ákvörðun er tekin um úr hvaða næringarsöltum
á að draga með frekari hreinsun:i) stöðuvötn og vatnsföll sem tengjast
stöðuvötnum, neysluvatnslónum eða lokuðum flóum þar sem endurnýjun vatns er
lítil og uppsöfnun getur átt sér stað. Á þessum svæðum er nauðsynlegt að
fjarlægja fosfór nema hægt sé að sýna fram á að það hafi engin áhrif á
næringarefnastigið. Þar sem losun á sér stað frá fjölmennum þéttbýlissvæðum er
ef til vill einnig þörf á að fjarlægja köfnunarefni.ii) ármynni,
flóar og annar strandsjór þar sem endurnýjun vatns er lítil eða aðflutningur
næringarsalta mikill. Losun frá fámennum þéttbýlissvæðum hefur allajafna minni
áhrif á þessum svæðum en þegar fjölmenn þéttbýlissvæði eiga í hlut. Á þessum
svæðum ætti að fjarlægja fosfór og/eða köfnunarefni nema hægt sé að sýna fram
á að það hafi engin áhrif á næringarefnastigið,b) ferskt yfirborðsvatn sem
nýta á til drykkjar og kann að hafa meiri köfnunarefnisstyrk en kveðið er á um
í reglugerð um neysluvatn.
c) svæði þar sem þörf er á
frekari hreinsun en mælt er fyrir um í 21. gr.
B.
Síður viðkvæm svæði.
Sjór eða hafsvæði getur talist
síður viðkvæmt svæði ef losun skólps hefur ekki skaðleg áhrif á umhverfið
vegna formfræðilegra, vatnafræðilegra eða annarra sérstakra aðstæðna í vatninu.
Eftirtalda þætti skal taka til
athugunar þegar síður viðkvæm svæði eru tilgreind:
Opna flóa, ármynni og annan
strandsjó þar sem endurnýjun vatns er mikil og ekki hætta á ofnæringu eða
súrefnisþurrð eða ólíklegt talið að ofnæring eða súrefnisþurrð verði vegna
losunar skólps frá þéttbýli.
III.
viðaukiIðnaðarstarfsemi. 1. Mjólkurvinnsla. 2. Framleiðsla
ávaxta- og grænmetisafurða. 3. Framleiðsla og átöppun óáfengra drykkja á
flöskur. 4. Kartöfluvinnsla. 5. Kjötiðnaður. 6. Ölgerðir. 7.
Framleiðsla vínanda og áfengra drykkja. 8. Framleiðsla á dýrafóðri úr
jurtaafurðum. 9. Framleiðsla gelatíns (hlaupefnis) og líms úr húðum,
skinni og beinum.
10. Maltgerðarhús.
11.
Fiskvinnsla, fiskiðnaður.