Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

  English

                                  

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

Sjóminjasafnið Ósvör

 

Fréttir frá árinu 2002


Fréttir eftir árum:  2010    2009    2008    2007    2006    2005    2004    2003    2002

12.3.2002

Bolungarvíkurkaupstaður kynnir mat á umhverfisáhrifum snjóflóðavarna í Bolungarvík. Skýrsla

 

3.4.2002

Kynningarfundur um mat á umhverfisáhrifum snjóflóðavarna í Bolungarvík verður haldinn í Víkurbæ í Bolungarvík mánudaginn 8. apríl kl 20.00.

 

Dagskrá:

Már Erlingsson, Framkvæmdasýsla ríkisins:

Dagskrá fundar

 

Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri:

Kynning á samþykktum bæjarstjórnar Bolungarvíkur varðandi byggingu snjóflóðavarna

 

Tómas Jóhannesson, Veðurstofa Íslands:

Snjóflóðahætta og mat á áhættu

Hönnunarforsendur og hönnunarflóð

Staðsetning varnargarðs

 

Jón Skúli Indriðason, Verkfræðistofan Línuhönnun:

Efnistaka (magn) og framkvæmdasvæði

Stutt lýsing á framkvæmdinni

Umhverfi garðsins

Kostnaður

 

Jakob Gunnarsson, Skiplagsstofnun:

Kynning á ferli mats á umhverfisáhrifum

 

Þorleifur Eiríksson, Náttúrustofa Vestfjarða:

Greinagerð um matsskýrslu

 

Fyrirspurnir og umræður

 

19.4.2002

Að beiðni bæjarstjórnar Bolungarvíkur hefur verið ráðist í byggingu líkans af fyrirhuguðum snjóflóðavörnum í Bolungarvík í skalanum 1:500. Bæjarstjórn Bolungarvíkur ákvað að láta smíða líkan í kjölfar þeirra óska sem fram komu á opnum kynningarfundi sem haldinn var þann 8. apríl s.l. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að bæta upplýsingagjöf til íbúa Bolungarvíkur. Líkanið verður til sýnis í fundarsal bæjarstjórnar Bolungarvíkur frá og með 22. apríl næstkomandi.

 

 

29.4.2002

Vakin er athygli á eftirfarandi auglýsingu frá Skipulagsstofnun.

Snjóflóðavarnir í Bolungarvík - Traðarhyrna.
Ný gögn og framlenging athugasemdafrests um mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar. Kynningartími  tillögu  að  ofangreindri  framkvæmd  og  skýrsla  um  mat á umhverfisáhrifum hennar hefur verið framlengdur til 14. maí 2002.  Líkan af snjóflóðavarnarvirkjum  hefur  verið  búið til og er til sýnis á skrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar.   Matsskýrslan, ásamt nýju myndefni, liggja frammi á  eftirtöldum  stöðum:  Á  skrifstofu  Bolungarvíkurkaupstaðar,  bókasafni Bolungarvíkur,   einnig  í  Þjóðarbókhlöðunni  og  hjá  Skipulagsstofnun  í Reykjavík.  Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Náttúrustofu Vestfjarða: www.nave.is  Allir  hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 14. maí 2002 til Skipulagsstofnunar,  Laugavegi  166,  150  Reykjavík.   Þar  fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Skipulagsstofnun.

 

 
 

6.9.2002

Náttúrufræðingur óskast.

Náttúrustofa Vestfjarða óskar eftir að ráða náttúrufræðing (líffræði, landafræði, umhverfisfræði eða sambærileg menntun). Fjölbreytt og krefjandi starf. Umsóknarfrestur til 23.09.2002. Náttúrustofa Vestfjarða, Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík. Sími: 4567005, netfang: nv@isholf.is, veffang: http//:www.snerpa.is/nv.

 

 
 

4.10.2002

Nokkrar umsóknir bárust um starf Náttúrufræðings hjá Náttúrustofu Vestfjarða. Nú er verið að fara yfir umsóknir og ræða við umsækjendur.

 

 
 

10.10.2002

Nýr starfsmaður

Böðvar Þórisson líffræðingur hefur verið ráðinn til starfa hjá Náttúrustofu Vestfjarða og mun hann hefja störf í næstu viku.

 

 
 

13.10.2002

Þorskeldi á Íslandi - stefnumörkun og upplýsingabanki.

Stefnumótunarfundur um þorskeldi á Íslandi verður haldinn í Reykholti í Borgarfirði 17.-18 október. Hægt er að kynna sér efni fyrirlestra á netinu.

Sjá nánar á heimasíðu verkefnissins. http://www.thorskeldi.is

 

 

 

26.10.2002

People and Nature - ráðstefna í Skotlandi

Ráðstefnan er haldin af Scottish Natural Heritage og er opinber dagskrárliður í tilefni af "Alþjóðlegu ári fjallanna 2002". Hún er haldin í samvinnu við Matvælastofnun Sameinuðu Þjóðanna og ýmsar rannsóknastofnanir í Skotlandi.

Ráðstefnugestir koma úr hópi vísindamanna, íbúa svæðanna og þeirra sem fara með stefnumótun í málefnum fjallahéraða.

Tilgangurinn er að tengja saman vísindalegar rannsóknir, þarfir íbúa og stefnumótun í málefnum fjallahéraða í Norður Evrópu. Hugmyndir og skoðanaskipti þessara hópa geta skipt miklu máli fyrir framtíð og þróun umræddra svæða.

Arnlín Óladóttir mun taka þátt í ráðstefnunni fyrir hönd Náttúrustofu Vestfjarða. Friðlandið á Hornströndum verður kynnt þar á veggspjaldi; einkenni svæðisins, stjórnunarleg staða og þær rannsóknir þar sem Náttúrustofan á hlut að máli.

(Abstract)

 

 

30.10.2002

Silkitoppur sáust á Bolungavík. Voru þetta 3 fullorðnar og náðist myndir af þeim.

Þrjár silkitoppur (Bombycilla garrulus) sáust 30. október í Bolungarvík og hafði sést til þeirra nokkrum dögum áður. Petrína Sigurðardóttir, starfsmaður Nátturustofu Vestjarða, benti á þær.

Það hafa sést tvær silkitoppur á þessu hausti hérlendis en geta verið nokkuð algengar í sumum árum.

Silkitoppa er spörfugl af silkitoppaætt (Bombycillidae). Þær eru varpfuglar í skógum í Skandinavíu, Rússlandi og Canada. Fuglarnir eru félagslyndir og oft gæfir.

 

 

 

 

 

 

01.11.2002.

Gráhegri sást á Ísafirði og tók Hilmar Pálsson mynd af honum.

Gráhegri (Ardea cinerea) sást innan við brú í Engidal.

Gráhegri er af Hegraætt (Ardeidae) og er algengur flækingur á Íslandi. Hann er varpfugl í mið- og suður evrópu.

Hilmar Pálsson frá Ísafirði tók mynd af honum.

 

 

 

 

 

 

03.11.2002

Gráhegri sást í Dýrafirði.

Gráhegri (Ardea cinerea) sást innarlega í Dýrafirðinum í dag. Þetta gæti verið sami hegrinn sem sást á Ísafirði fyrir nokkrum dögum.

(Tilkynnt: NV/B.Þ.)

 

10.11.2002

Æðarkóngur sást í Dýrafirði.

Í dag sást æðarkóngur (Somateria spectabilis) við brúna í Dýrafirði. Hann var þar í hópi 2-300 æðarfugla (Somateria mollissima). (Tilkynnt: NV/B.Þ.)

 

13.11.2002

Vepjur í Bolungavík.

Í dag sáust tvær vepjur (Vanellus vanellus) í Syðridal við Bolungavík. Þetta er mjög algengur og útbreiddur vaðfugl í Evrópu. Hér á landi er hann árviss gestur. (Tilkynnt: Elvar Stefánsson)

Einnig sáust þrjár bréfdúfur í dag í Bolungavík. Þær eru með hvítan hring á hægri löpp. Ef einhver sér þær og greinir hvað stendur á hringunum þá væri upplýsingarnar vel þegnar. Náttúrustofan lætur þá eigandan vita. (Tilkynnt: NV/B.Þ.)

 

24.11.2002. Fálki

Fálki (Falco rusticulus) sást í Bolungarvík í dag.

Fálki (Falco rusticulus) sást í Bolungarvík í dag við höfnina. Hann var að eltast við bréfdúfur sem sáust fyrst í Bolungarvík 13.11.02. Fálkinn var mjög ljós og því um  hugsanlegan grænlandsfálka að ræða.

 

 

29.11.2002

Gráhegri á Ísafirði.

Gráhegri (Ardea cinerea) sást á Ísafirði í dag. Var hann innan við flugvöllinn.

Einnig sáust tveir gráhegrar í Súgundafirði fyrir tveimur vikum.(Tilkynnt: Magnús R. Guðmundsson)

 

 

29.11.2002

Skýrsla um skólpmengun við þéttbýlisstaði (meira).

 

12.12.2002

Gráhegri (Ardea cinerea) sást í Bolungarvík í dag. Fuglinn var á grjótgarðinum (brjótnum) við höfnina. Þetta gæti verið sami fuglinn og sást á Ísafirði um daginn. (Tilkynnt: NV/B.Þ.)