Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

  English

                                  

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

Sjóminjasafnið Ósvör

 

Fréttir frá árinu 2003


Fréttir eftir árum:  2010    2009    2008    2007    2006    2005    2004    2003    2002

05.01.2003. Vetrafuglatalning

Í dag var Vetrafuglatalning á öllu landinu. Er þessi talning einu sinni á ári og yfirleitt stuttu fyrir eða eftir áramót. Í Bolungarvík var talið í bænum og með ströndinni að vitanum. Vegna tímskorts var ekki farið yfir stærra svæði. Athyglisverðasta sem sást í talningunni var einn flækingur þ.e. sefgoði (Podiceps grisegena). Sefgoði sást líka í Berufirði fyrir austan í dag. Hann verpir í Mið-Evrópu, Rússland, Svíþjóð en einhverjir fuglar hafa vetursetu við Bretland og SV-strönd Noregs.

Einnig sáust húsdúfurnar í dag en þær sáust fyrst um miðjan nóvember í Bolungarvík. Annað var eftir bókinni nema hvað lítið var af smáfuglum en því má kenna of góðri tíð. (NV/BÞ)

 

06.01.2003. Dauður haftyrðill

Þeir Daníel S. Bergsson, Ingólfur J. Línberg og Stefán Línberg Halldórssynir komu með dauðan haftyrðil (Alle alle) á N.V. sem þeir fundu við Bakkastíg 12 í Bolungarvík. Ekki er óalgegnt að sjá haftyrðla inn í kaupstöðum en þeir eru mjög litilir og hrekjast auðveldlega undan veðri. Hvort þessi fugl hafi fengið sér göngu upp á Bakkastíg eða stærri fuglar hafi borið hann þangað er ekki vitað. Inn í botni Skutulsfjarðar hafa verið að sjást dauðir svartfuglar undanfarna daga og ekki ólíklegt að þar séu einhverjir haftyrðlar í þeirrra hópi. Það má benda á að lokum að Náttúrugripasafn Bolungarvíkur er með tvö eintök af haftyrðli og auðvitað alla íslenska fugla og mikið af flækingum.

 

25.01.2003. Fjöruspói og hvinönd

Fjöruspói (Numenius arquata) og hvinönd (Bucephala clangula) sáust í Dýrafirði. Fjöruspóinn var við brúna yfir Dýrafjörð en hvinöndin, sem var karlfugl, var nokkru fyrir innan brúna. (Tilkynnt: NV/BÞ).

 

Fjöruspóinn er árviss vetragestur og tvisvar hefur hann fundist verpandi hér á landi. Þeir verpa um norðanverðan Evrópu og austur um miðbik Asíu.

 

Hvinendur eru um allt umhverfis norðanverðan hnöttinn en ekki hefur verið staðfest varp hér á landi. Þær sjást á hverju sumri við Mývatn og nokkrum ám og vötnum víðsvegar um landið.

 

 

14.02.2003

Kampselur í heimsókn á Bíldudal (meira)

 

 
 

22.02.2003. Fjöruspói, hvinönd og gulendur

Fjöruspói (Numenius arquata) og hvinönd (Bucephala clangula) sáust í Dýrafirði. Sennilega sömu fuglar og sáust á sömu slóðum í janúar. Einnig sáust 12 gulendur (Mergus merganser). (Tilkynnt: NV/BÞ).

 

 
 

26.02.2003. Talningar

Um síðustu helgi taldi ég fugla í Dýrafirði. Ég tók allt svæðið innan línu, frá Þingeyri og þvert yfir (Lækjarós). Samtals sá ég 2766 fugla, þar af voru æðafuglar 1458. Þeir voru nú samt vantaldir. Helst það markverðasta sem ég sá var; einn hvinandarsteggur (Bucephala clangula), einn fjöruspói (Numenius arquata), 12 gulendur (Mergus merganser), 6 rauðhöfðar (Anas penelope) og 50 tjaldar. Fjöruspóinn og hvinöndin vour þarna líka í janúar. Gulendurnar hef ég ekki séð þarna í vetur en þær geta hafa verið utar í firðinum. 23 tegundir sáust en helgina á undan voru auk þess fjórar sem ekki sáust núna, þar á meðal örn og fálki.

Í dag (26.feb) taldi ég í Bolungarvík og var þetta svipaður fjöldi fugla (1131) og tegunda (15) og hefur verið í þau skipti sem ég hef talið. Reyndar munar það mest 28 fuglum og einni tegund. (NV/BÞ)

 
 

28.02.2003. Ritur

Ritur (Rissa tridactyla) eru komnar á varpstað í Bolungarvíkurhöfn. Riturnar verpa í dekkjum við innsiglinguna og þar sáust fimm í morgun.(NV/BÞ)

 
 

4.03.2003. Vepja  í Bolungarvík

Vepja (Vanellus vanellus) sást í Bolungarvík í dag. Hún var við veginn hjá golfvellinum. Í haust sáust tvær inni í Syðridal. (Tilkynnt Magnús Ólafs Hanson)

 
 

03.03.2003.

Skipulagsstofnun fellst á fyrirhugað kalkþörunganám í Arnarfirði. (meira)

 
 

10.03.2003. Álftir komnar til Bolungarvíkur

Álftir sáust í morgun á Ósá í Bolungarvík. Álftir hafa ekki sést á þessum slóðum í vetur og er því sennilega um farfugla að ræða.

 
 

10.03.2003.

Fyrirlestur um fráveitur og skólp á Rástefnu fráveitunefndar um fráveitumál sveitarfélaga (meira)

 
 

14.03.2003.

Umræðufundur um fráveitumál (meira)

 
 

14.03.2003.  Brandugla við Bolungarvík

Brandugla (Asio flammeus) sást í nágrenni Bolungarvíkur fimmtudaginn 13. mars, t.d. í litlum skógarlundi í Syðridal. Leitað var að uglunni á föstudeginum en hún fannst ekki.(NV/BÞ)

 
 

17.03.2003. Svartfugladauði

Eitthvað hefur borið á svartfugladauða í vetur en samt mun minna en þann síðasta. Þann 13. janúar tilkynnti Smári kristinsson út í Æðey, að yfir 100 stuttnefjur hefði rekið dauðar upp á eyna. Núna 10. mars tilkynnti Ástþór Ágústsson Ísafirði að hann hefði séð töluvert að dauðum svartfugli inn í Ísafirði og Reykjarfirði. Var það mest stuttnefja ef ekki allt. Fleiri tilkynningar hafa borist þar á meðal frá Skultulsfirði. Þeir fuglar, sem við höfum séð, hafa verið mjög horaðir og er því hungurdauði líklegasta skýringin. Allar upplýsingar um dauða svartfugla eru vel þegnar.Frétt á bb.is.

 
 

21.03.2003. Meira um svartfugladauða

Eins og frá hefur verið greint hér á vefnum okkar og á bb.is, þá hefur borið dálítið á svartfugladauða. Tvö sýni (stuttnefjur) voru tekin inn í botni Ísafjarðar og voru þau send til Náttúrufræðistofnun Íslands. Hér eru upplýsingar um fuglanna frá Ólafi Karl Nielsen ,,Báðir voru fullorðnir kynþroska fuglar, karlfugl og kvenfugl. Sams konar fuglar og hafa verið að berast í vetur og í fyrra, þ.e. öll merki benda til hungurdauða: allir vöðvar tærðir, engin fita hvorki undir ham né í iðrum, blóðblandaður grautur í görnum".

 

Samkvæmt Einari Halldórssyni (Ísafirði) þá hefur sá fugl sem hann hefur verið að veiða, verið í góðum holdum en einstaka fuglar verið mjög horaðir.

 
 

3 apríl 2003.

Sameinast um að fjölga störfum í náttúruvísindum á landsbyggðinni. Frétt af bb.is.

 
 

4 apríl 2003.

Athugasemdir við skýrslu um mat á umhverfisáhrifum kalkþörungavinnslu í Arnarfirði (meira)

 
 

07.04.2003. Farfuglar og flækingar

Farfuglar hafa verið að streyma inn síðustu daga. Grágæsir (Anser anser) sáust í Dýra- og Önundafirði á laugardaginn (5.apríl). Rauðhöfðar (Anas penelope) og urtendur (Anas crecca) sáust í Dýrafirði sama dag. Stelkar sáust í Bolungarvík í dag en það hafa fáeinir haft vertursetu í Skutulsfirði og Önundarfirði. Æðarkóngur (Somateria spectabilis) sást í höfninni í Bolungarvík í gær (M.H.). Það sást einnig æðarkóngur 27.mars við Hvítanes í Ísafjarðardjúpi. Snæbjörn Halldórsson frá Ísafirði sá tvo svartsvani fljúga út Skötufjörðinn 30. mars. Svartsvanir koma upprunalega frá Asíu en þeir sem sjást hér eru líklega frá fuglagörðum í Evrópu.

 
 

13.04.2003. Farfuglar

Heiðlóa (Pluvialis apricaria), sandlóa (Charadrius hiaticula) og stelkur (Tringa totanus) eru mætt hérna vestur. Það heyrðist í heiðlóunni í gær (12. apríl) í Arnafirði og nokkrir hópar  sáust í dag í Önunda- og Dýrafirði. Stelkurinn sást í talsverðum mæli í gær en þeir fyrstu sáust 7. apríl hér fyrir vestan og á suðausturlandi. Sandlóa sást í gær í Dýrafirði. Heiðlóan sást fyrst við Hornafjörð þann 24. mars en sandlóan 7. apríl á Suðausturlandi. Farfuglarnir eru einni til tveimur vikum á eftir hér fyrir vestan miðað við hvenær þeir sjást fyrst á landinu. Gott væri að fá upplýsingar um komu farfuglanna hvort sem þeir sáust fyrr eða seinna en þessar dagsetningar gefa til kynna. Upplýsingum getið þið komið í tölvupósti bodvar@nave.is eða hringt í síma 4567107 eða 4567005.

 
 

16.04.2003. Smá farfuglafréttir úr Skutulsfirði

Þorleifur Pálsson sendi smá farfuglafréttir úr Skutulsfirði. 

Sá nokkrar tildrur í hádeginu í dag, stelk hefur farið verulega fjölgandi s.l. tvær vikur, hettumáfa sá ég fyrst í síðustu viku, lómur löngu kominn, straumönd komin að ósi Tunguár fyrir nokkrum dögum og skógarþresti fjölgar dag frá degi og farinn að halda fyrir manni vökum upp úr fjögur að nóttu.  Gæsir sáust á flugi hér í firðinum á laugardaginn var.

 
 

22.04.2003.

Anton Helgason sá heiðlóu (Pluvialis apricaria) í Bolungarvík á Páskadag (20.4). Hún var á túni við Geirastaði í Syðridal. Gaman væri að frétta hvort hún hafi sést fyrr í Bolungarvík.

 

 
 

22.04.2003.

Hjalti Ragnarsson á Ísafirði hringdi og sagðist hafa séð snæuglu (Nyctea scandiaca) upp á Eyrarfjalli (milli Ísafjarðar og Mjóafjarðar) 22.4. Uglan var við Álftaborg. Hann sá einnig gráhegra (Ardea cinerea) í Engidal í Skutulsfirði, á móts við Funa.

 
 

23.04.2003.

Mandarínendur á Suðureyri - Frétt af bb.is.

 
 

25.04.2003.

Dagur umhverfisins er í dag og er hann tileinkaður farfuglum þetta árið. Náttúrufræðistofnun hefur sett út fræðsluefni fyrir grunnskólanemendur, um farfugla og er hér tengill yfir á síðuna. http://ni.is/farfuglar/index.phtml

 

Grunnskólinn í Bolungarvík fór í tilefni dagsins að horfa eftir farfuglum og verður afrakstur dagsins sett upp á vegg í andyri skólans.

 

Flestir farfuglar eru komnir til landsins en nokkrir eiga eftir að sjást hér fyrir vestan eins og t.d. kría og spói. Upplýsingar um farfuglakomur væru velþegnar. Hér fyrir neðan eru tenglar um flækings- og farfuglakomur á landinu.

http://www.galdur.is/fuglar/tmp1.php?pid=67

http://www.hi.is/~yannk/birdnews.html

 

 
 

29.04.2003. Farfuglar og flækingar

Gráhegri (Ardea cinerea) var inn í Syðridal í hádeginu og bleshæna (Fulica atra) hefur sést síðustu daga í höfninni í Bolungarvík í morgunn (BÞ og Guðmundur Jakobsson).

 

Flestir farfuglarnir eru mættir og einn sá frægasti í Ísafjarðarbæ var mættur 24.apríl, fjórða sumarið í röð svo vitað sé. Þetta er "Nói albinói" eða albinóa stelkur. Einnig hafa sést þarna umferðafuglar, tildrur og rauðbrystingar. Í Önundafirði var jaðrakan mættur 24.apríl á leirurnar og í dag var hann kominn á varpstöðvarnar (Þorleifur Pálsson).

 

29.04.2003.

Verkefnið "Aðalbláber - líffræði og nýting" (meira)

 

30.04.2003. Steindepill á Ísafirði

Steindepil (Oenanthe oenanthe) sást út um glugga í stjórnsýsluhúsinu í dag. Hann tillti sér augnablik á skíðagrind á jeppa (Hilmar Pálsson).

02.05.2003. Haftyrðill í Ísafjarðarhöfn

Í dag sáu starfsmenn Náttúrustofunnar (PS/BÞ/ÞE) haftyrðil (Alle alle) í Ísafjarðarhöfn.

 

Af farfuglum er það að frétta að spóinn (Numenius phaeopus) er mættur í Önundarfjörðinn og sást hann þar 30. apríl. Einnig sást sama dag einn jaðrakan (Limosa limosa) í Bolungarvík og einn á Ísafirði. Er hann frekar sjaldséður á þessum stöðum en í Önundafirði er kominn upp ágætis varpstofn.

 

Flestir farfuglarnir eru mættir en enn á eftir að sjást kría (Sterna paradisaea) og óðinshani (Phalaropus lobatus) hér á Vestfjörðum. Óðinshaninn sést líklega ekki fyrr en um mánaðarmótin en fáeinar kríur hafa sést á landinu.

03.05.2003. Hringönd

Hringönd (Aythya collaris) sást á Seftjörn í Haukadal í Dýrafirði í dag. Einnig sást Hvinönd (Bucephala clangula) fyrir innan Dýrafjarðabrúna en hún sást á sömu slóðum síðast 26. febrúar. Þetta er mjög líklega sami fuglinn. (NV/BÞ)

05.05.2003. Nói albinói

Þessi stelkur (Tringa totanus) sást 24. apríl og hefur hann sést um svipað leiti síðustu þrjú ár. Hann hefur haldið sig á svipuðum slóðum þessi ár þ.e. inn í Engidal í Skutlsfirði. (Mynd: Hilmar Pálsson)

 

 

 

06.05.2003. Farfuglar

Krían (Sterna Paradisaea) var kominn í Önundafjörðinn í dag og þar var einnig kjóapar (Stercorarius parasiticus). Krían hefur verið að sjást um allt land í dag.

08.05.2003. Farfuglar og flækingar

Krían (Sterna Paradisaea) sást í dag í Skutulsfirði og í Þernuvík í gær. Hringdúfa (Columba palambus) sást rétt í þessu á Bakka í Bjarnarfirði. Varpið er að komast á skrið og æðarfuglinn var byrjaður þann 4. maí í Þernuvík og grágæsin um síðastliðin mánaðarmót. Skógarþrösturinn var kominn með unga í Þernuvík. (Heimildamenn: Hilmar Pálsson, Guðmundur Jakobsson og Arnlín Óladóttir).

11.05.2003. Flækingar

Æðarkóngur (Somateria spectabilis) var fyrir innan brú í Dýrafirði á föstudaginn (9. maí) og brandönd (Tadorna tadorna) sást í Skutulsfirði sama dag. Í dag sást ískjói (Sterocorarius pomarinus) út af Skálavík í Ísafjarðardjúpi.

15. maí 2003. Mandarínönd í Bolungarvík

Um kvöldið 13. maí var kom sjaldséður gestur á Náttúrustofu Vestfjarða. Komið var með mandarínönd sem skriðið hafði inn í hús í Bolungarvík. Öndin, sem er steggur, var mjög horuð og frekar slöpp að sjá. Oft eru fuglar veikir þegar þeir skríða inn í hús svo óljóst er hvernig henni reiðir af, en verið er að reyna að fá hana til að éta.

Andasteggurinn er næstum örugglega annar af tveimur mandarínsteggjum, sem sést hafa á Suðureyri að undanförnu og það hefur orðið vart við hinn stegginn í Bolungarvík undanfarna daga. (frétt af BB)

18. maí 2003. Flækingar, farfuglar og fuglaskoðunarferð

 

Flækingar

Æðarkóngur (Somateria spectabilis) var í Skötufirði 11. maí. Brandandarkolla (Tadorna tadorna) var í Skutulfirði 14. maí en hún sást fyrst þar 9. maí (HP). Í dag sást líklega sami fugl á Ósánni í Bolungarvík (MH). Rákönd (Anas crecca carolinensis) var á tjörn inn í Syðridal í gær (17. maí) en þetta er amerísk urtönd.

 

Farfuglar

Óðinshaninn (Phalarobus lobaatus) var mættur í gær í Önundafjörðinn og hann var einnig mættur inn í Syðridal í Bolungarvík. Þá eru allir vestfirsku farfuglarnir mættir. Rauðbrystingurinn (Calidris canutus) er núna í hópum (100-500) inn í Skutulsfirði og Dýrafirði og líklega víðar. Honum fer líklega að fækka þegar straumurinn minnkar en hann notar Ísland sem nestislúgu á leið til Grænlands og Kananda. Náttúrufræðistofnun Íslands fjallar um far á vefnum sínum og þ.a.m. um rauðbrystinginn.  http://www.ni.is/farfuglar/far_raudbrystingur.html

 

 

Fuglaskoðunarferð

Í gær 17. maí stóðu Náttúrustofa Vestfjarða og Heilsubærinn í Bolungarvík fyrir fuglaskoðunarferð í Önundarfjörðinn. Það mættu 9 fullorðnir, 7 krakkar og einnig voru tveir starfsmenn Náttúrustofu Vestfjarða, Þorleifur Eiríksson og Böðvar Þórisson. Það var sól og hlýtt veður en það byrjaði að vinda þegar skoðunarferðinni var lokið. Það merkilegsta sem sást voru fjórar sanderlur (Calidris alba) en þetta er einmitt góður tími til að sjá umferðafugla. Mörg voru að sjá nokkrar tegundir í fyrsta skipti og starfsmenn Náttúrustofu Vestfjarða voru að sjá sanderluna í fyrsta skipti eða að minnsta kosti fyrsta sinn sem þeir sjá hana svona mikilli nálægð. Þær tegundir sem sáust voru:

Gulönd, æðarfugl, hávella, duggönd, stokkönd, rauðhöfði, toppönd, þúfutittlingur, jaðrakan, spói, tildra, stelkur, tjaldur, sanderla, heiðlóa, lóuþræll, sandlóa, hettumáfur, kría, grágæs og óðinshani.

20. maí 2003

Myndir úr fuglaskoðunarferðinni

         

Hér eru nokkrar myndir úr fuglaskoðunarferðinni.

Guðmundur Ragnarsson tók myndirnar.

24. maí 2003. Rákönd og myndir af æðarkóng

Rákönd (Anas crecca carolinensis) var á tjörn nálægt Alviðru í Dýrafirði í dag.

Hilmar Pálsson tók myndir af æðarkóng í Skötufirði þann 11. maí. Einnig er á myndinni ungur æðarkóngur og æðardrottning.

24. júní 2003. Æðarkóngar og vogamær

Það voru tveir æðarkóngar (Somateria spectabilis) fyrir innan brú í Dýrafirði í dag. Í gær var einn helsingi (Branta leucopsis) og margæs (Branta bernicla) í Önundafirði.

 

Jónas Björnsson frá Ísafirði fann vogamær (Trachypterus arcticus) í flæðarmálinu inn í Álftafirði í gær. Hún reyndist vera 150 cm löng og því ekki kynþroska samkvæmt fiskabók AB.

25. júní 2003. Jaðrakanamerkingar

Helgina 21-22. júní kom Tómas Gunnarsson doktorsnemi hingað vestur til að litmerkja jaðrakan. Jaðrakanin er mjög séður og erfitt getur verið að fanga hann. En það tókst að merkja 7 fullorðna og 9 unga, og telst það bara nokkuð gott. Þeir voru við Holt í Önundafirði, Mýrar og Læk í Dýrafirði. Upplýsingar um jaðrakanavarp, hvar þeir hafa sést og ef þeir eru litmerktir, eru velþegnar hér Náttúrustofunni. Einnig heldur Tómas út heimasíðu um verkefni sitt http://www.uea.ac.uk/~b072834

 

                  

Myndirnar eru teknar af BÞ og Tómasi Gunnarssyni við Holt í Önundafirði.

25. júlí 2003

Djúpvegur. Eyri - Hörtná.

Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hefur verið lögð fram.

(Skýrsla, kort)

31. júlí 2003

Vestfjarðavegur nr. 60

Þórisstaðir-Eyrará í Reykhólahreppi í Austur-Barastrandarsýslu

Drög að tillögu að matsáætlun

(Skýrsla, kort1, kort2)

13. ágúst 2003

Kóngasvarmar á vestfjörðum (meira)

15. ágúst 2003. Litmerktir jaðrakanar

Nokkrir litmerktir jaðrakanar hafa sést í Önundafirði síðustu vikur og síðast 9. ágúst. Þetta eru fjórir ungar og tveir fullorðnir sem allir voru merktir við Holt. Einnig hefur sést einn litmerktur jaðrakan á Austur-Englandi sem var merktur við Holt í sumar. Þetta er fullorðinn fugl og hann fékk það skemmtilega viðurnefni, Böddi, og var hann merktur þann 21. júní og sást á Englandi þann 11. ágúst ásamt 1500 öðrum.

 

Fréttir af þessum litmerktu jaðrökunum sem voru merktir í Dýra- og Önundarfirði munu við setja hér á heimasíðu okkar.

18. ágúst 2003. Stína mætt til Írlands

Litmerktur jaðrakan sem var merktur við Holt í sumar sást 9. og 11. ágúst í Cork á suðurströnd Írlands. Hann var merktur 22. júní og fékk nafnið Stína eftir prestinum í Holti og er auðvitað kvenfugl. Þá voru merktir tveir ungar frá Stínu og sáust þeir síðast 9. ágúst á leirunum inn í botni Önundarfjarðar.

 

Einn litmerktur jaðrakan sást í Dýrafirði í sumar. Hann var merktur 27. aprí 2001 í Borganesi. Sást á austur Englandi 4. mars 2003. Sást 21. og 24. maí 2003 við Hólasjó í Dýrafirði. Næst sást hann við Vallá á Kjalarnesi (Faxaflói) 18. júlí og 21. júlí s.l.

1. september 2003. Þoreifur mættur til A-Englands

Þorleifur (jaðrakan) var merktur 21. júní í Holti í Önundarfirði. Makinn hans var merktur sama dag og tveir ungar frá þeim daginn eftir. Ungarnir sáust 9. ágúst inn í botni á Önundarfirði og svo sást einn ungi 19. ágúst á sama stað. Þorleifur sást síðan 28. ágúst við Stour árósinn í Essex á A-Englandi. Hann var þar ásamt yfir 300 öðrum jaðrökunum.

1. september 2003

Kóngasvarmar enn á Þingeyri (meira)

29. september 2003. Peta mætt til Frakklands

Peta (jaðrakan) var merkt  21. júní við Mýrar í Dýrafirði. Hún sást síðan í fyrsta skipti erlendis þann 10. september, í V-Frakklandi, Charente-Maritime, Rochefort, Reserve Naturelle du Marais d´Yves.

 

Jaðrakan (ungi) sem var merktur við Holt í Önundarfirði 21. júní var að sjást á A-Englandi, Stour Árósum, Essex, 16. september. Það voru tveir ungar sem voru merktir með sömu litaröðina og sáust þeir báðir 3. ágúst á leirunum innan við Tannanes í Önundarfirði. Síðan sást annar þeirra 19. ágúst innan við Tannanes. Foreldrar þeirra voru einnig merktir en og annar þeirra (Böddi) hefur sést á A-Englandi.

 

Gráhegri (Ardea cinerea) sást 26. september við Dýrafjarðarbrúna. Hann sást einnig í vikunni áður.

Tilkynnt: Jón Friðrik Jóhannsson og Rannveig Þórisdóttir.

30. september 2003. Stína enþá í Írlandi

Stína (jaðrakan) er ennþá í Írlandi og virðist bara una sér vel þar. Hefur sést þrisvar í september, 3, 6 og síðast þann 16. Hún var mertkt við Holt í Önundarfirði fyrr í sumar.

2. október 2003. Jaðrakan frá Holti að spóka sig í Írlandi

Fyrsti jaðrakinn sem var litmerktur við Holt í Önundarfirði í sumar var að sjást við Cork í Írlandi í lok september. Þetta er kvenfugl og hefur makinn (Böddi) hennar sést á A-Englandi. Einnig voru tveir ungar frá þeim merktir í sumar og annar hefur sést á A-Englandi.

10. nóvember 2003

Komin er út drög að tillögu að matsáætlun fyrir veg um Arnkötludal-Gautsdal, Strandalavegur (meira)

15. nóvember 2003

Æðarkóngur (Somateria spectabilis) var við Dýrafjarðarbrúna í dag. Einnig var þar gulandarsteggur (Mergus merganser). Við Læk í Dýrafirði var einn hettusöngvari (Sylvia atricapilla).

 

Í gær voru tveir stormmáfsungar (Larus canus) í höfninni í Bolungarvík. Hann er sjaldgæfur varpfugl hér á landi og stærsta varpið er við Eyjafjörð. Hann er hluta til farfugl en stór hluti hans heldur til á suðvesturlandi vetrarlangt.

 

25. nóvember 2003

Jaðrakan (kvenfugl) sem var merktur við Holt í sumar (sjá frétt 2. október) og sást í Írlandi í lok september, er komin til vesturströnd Frakklands (4. nóvember).

14. desember 2003

Einn hvinandarsteggur (Bucephala clangula) var fyrir innan Dýrafjarðarbrúna í dag. Síðast sást hvinandarsteggur á sömu slóðum 3. maí. Einnig voru fyrir innan Dýrafjarðarbrúna  18 gulendur (Mergus merganser) og voru þetta 5 steggir og 13 kollur.

14. desember 2003

Það fóru fram litmerkingar á jaðrökum í Dýrafirði og Önundarfirði í sumar. Fuglarnir fengu litmerki sem gerir fuglaskoðurum kleift að þekkja hvern einstakling. Hver ungi fékk þrjú litamerki og fengu systkyni sömu litaröðun. Fullorðnir fengu fjögur litamerki og hver einstaklingur er með sér litaröðun. Nánari upplýsingar um þetta má finna á heimasíður Tómasar Gunnarssonar.  http://www.uea.ac.uk/~b072834

 

Nú hafa nokkrir jaðarkanar fundist erlendis og ætlum við að setja upplýsingar um þá þegar þær berast. Til að sjá útbreiðslu þeirra erlendis þá er smellt á kort en upplýsingar um þá er smellt á jaðrakan.

17. desember 2003

Komin er út tillaga að matsáætlun - Vestfjarðavegur (60): Bjarkalundur - Eyri í Reykhólahreppi

Tillaga

Leiðakort

Námukort