Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

  English

                                  

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

Sjóminjasafnið Ósvör

 

Fréttir frá árinu 2007


Fréttir eftir árum:  2010    2009    2008    2007    2006    2005    2004    2003    2002

31. janúar 2007

Fyrirlestur um sílamáfa verður í Hskólasetri Vestfjarða í dag kl. 12:30-13:00. Fyrirlesturinn er haldinn í Odda í Reykjavík og því sendur út í gegnum fjarfundabúnað.

 

Gunnar Þór Hallgrímsson frá Náttúrustofu Reykjanes mun halda fyrirlesturinn og heitir hann ,,af sílamáfum á Suðvesturlandi".

 

Nánar um auglýsinguna má finna hér

2. febrúar 2007

Fyrirlestur, í dag kl. 11:00 í fundarsal Háskólaseturs Vestfjarða, um rannóknir á umhverfislegum straumfræðum. Fyrirlesturinn heldur Hrund Ólöf Andradóttir dósent í Umhverfisverkfræði við Háskóla Íslands og er hann í samstarfi við VAK, Matís og Náttúrustofu Vestfjarða.

 

Hrund Ólöf Andradóttir mun halda fyrirlestur um rannsóknir í umhverfislegri straumfræði sem hún vann í Bandaríkjunum.  Aberjona vatnasviðið í norðurhluta Boston borgar varð frægt á áttunda áratuginum, þegar 28 börn höfðu greinst með hvítblæði á mjög afmörkuðu svæði í Woburn bæ staðsett í miðju vatnasviðinu.  Við athugun kom í ljós að 2 nýir drykkjabrunnar höfðu verið boraðir í bakgarðinum á efnaverksmiðju og sútunarverksmiðju sem höfðu verið starfrækt mjög lengi.  Vatnið í brunnunum var mjög mengað, og fjölskyldur barnanna höfðuðu mál gegn fyrirtækjunum sem vakti mikla athygli.  Þetta mál er greint frá í bókinni A Civil Action og samnefndri mynd.  Hrund mun greina frá straumfræðilegu rannsóknum sínum í litlum tjörnum og stöðuvatni í botninum á vatnasviðinu.

 

Um fyrirlesarann:

Hrund Ólöf Andradóttir útskrifaðist með lokapróf í verkfræði frá Háskóla Íslands árið 1994.  Þá lagði hún leið sína til Massachussetts Institute of Technology og lagði stundir á doktorsnám í umhverfisverkfræði sem hún lauk árið 2000.  Eftir nám þá hóf hún störf hjá rekstrarfyrirtæki á New York svæðinu, þar sem hún veitti stórum alþjóðlegum fyrirtækjum aðstoð við stefnumótun og ráðgjöf á viðskiptum.  Hrund tók við starfi dósents í umhverfisverkfræði hjá Háskóla Íslands að hausti 2006.

12. febrúar 2007

Þyrilygla í Hnífsdal

Hermann Hermannsson fann nýlega fiðrildi við útiljósið heima hjá sér í Hnífsdal. Þar sem fiðrildið var stærra en hann hafði séð hérlendis og árstíminn ekki venjulegur fyrir fiðrildi hafði hann samband við Náttúrustofu Vestfjarða. Fiðrildið reyndist vera þyrilygla (Eupsilia transversa), sennilega nýkomin frá Evrópu. Yglan er útbreidd um alla Evrópu og sést allan veturinn ef aðstæður eru hagstæðar. Ekki er algengt að sjá þyrilyglu hérlendis en hún hefur sést nokkrum sinnum.

 

 http://commons.wikimedia.org/

12. febrúar 2007

Húsadreki í Dýrafirði

Zófonías G. Þorvaldsson á Læk í Dýrafirði fann gervisporðdreka á baðgólfinu. Þar var kominn húsadreki (Chelifer cancroides), en hann hefur áður fundist í Steingrímsfirði en ekki annarstaðar á Vestfjörðum. Húsadrekar eru 3-4 mm að stærð. Þeir lifa á maurum, bóklúsum og öðrum smákvikindum og teljast því góðir sambýlisaðilar.

Mælikvarðinn á myndinni er ekki marktækur.

 

27. febrúar 2007

Þorsteinn Sæmundsson frá Náttúrustofu Norðurlands Vestra heldur fyrirlestur á morgun (28. febrúar) sem ber heitið ,,Jarðfræðileg ummerki snjóflóða". Fyrirlesturinn fer fram fyrir norðan en verður sýndur beint í gegnum fjarfundabúnað í Hskólasetri Vestfjarða  kl. 12:15-12:45. Auglýsingin er hér fyrir neðan.

 

 

15. mars 2007

Húsamargfætla (Scutigera coleoptrata) á Ísafirði.

Gunnar Sigurðsson og félagar hans hjá Marel á Ísafirði fundu nýlega skrýtna og skemmtilega pöddu sem komið hefur með einhverjum varningi frá útlöndum. Skepnan er sennilega húsamargfætla (Scutigera coleoptrata), eða náinn ættingi hennar. Húsamargfætlur eru upprunnar við Miðjarðarhafið, en hefur breiðst út um mestan hluta Evrópu, Asíu og Norður Ameríku.

Húsamargfætlan getur lifað allan sinn aldur innanhúss og er því algengur fylgifiskur mannsins. Fullvaxin hefur hún að meðaltali 15 fótapör, en þegar hún klekkst úr eggi eru þau stundum bara fjögur en síðan fjölgar pörunum um eitt við hver hamskipti. Leggirnir eru langir og getur húsamargfætlan hlaupið með ótrúlegum hraða um veggi og loft. Ef reynt er að stöðva hana með því að taka í einn fótinn á hún það til að losa sig við hann til að komast undan. Ólíkt flestum margfætlum hafa húsamargfætlur vel þroskuð samsett augu og sjá því ágætlega.

Húsamargfætlur eru rándýr og lifa á ýmsum skordýrum, sem þær drepa með eitri. Þær geta bitið menn en það er ekki algengt.

Húsamargfætla hefur fundist nokkrum sinnum á Íslandi, en ekki hefur fréttst af henni á Vestfjörðum áður.

27. febrúar 2007

Fyrirlestur um sérstöðu og verndun Breiðafjarðar verður haldin á Stykkishólmi þann 28. mars. Fyrirlesturinn er sýndur beint í gegnum fjarfundabúnað í Háskólasetri Vestfjarða og hefst hannn kl. 12:15. Auglýsingin er hér fyrir neðan.

 

 

23. apríl 2007

Fyrirlestur um stofntakmörkun vaðfugla: Íslenskar sandlóur verður haldin í Háskólasetri Vestfjarða á miðvikudaginn 25. apríl kl. 12:15-12:45. Böðvar Þórisson líffræðingur á Náttúrustofu Vestfjarða heldur fyrirlesturinn (sjá auglýsingu fyrir neðan).

 

11. maí 2007

Tillaga að matsáætlun fyrir Svínavatnsleið í Austur-Húnavatnssýslu. 

Með vísan til 14. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum hefur Leið ehf. fimmtudaginn 10. maí 2007, sett inn á vefsíðu félagsins tillögu að matsáætlun fyrir nýjan veg í grennd við Svínavatn í Austur-Húnavatnssýslu (Svínavantsleið).
 

Samkvæmt tilvitnaðri reglugerð ber að gefa almenningi kost á að gera athugasemdir við áætlunina og skal fresturinn vera a.m.k. tvær vikur. Hér verður miðað við að frestur til að gera athugasemdir verði til 1. júní 2007. Skal athugasemdum beint til Náttúrustofu Vestfjarða, Aðalstræti 21,415 Bolungarvík, sími: 456-7005, fax 456-7351, netfang nave@nave.is, vefsíða www.nave.is.

 

Hægt er að nálgast tillöguna hér eða á heimasíðu Leiðar ehf. http://www.leid.is/index.php?flokkur=400&id=132

18. maí 2007

Fuglaskoðun á vegum Náttúrustofunnar og Heilsubæjar Bolungarvíkurs 20. maí.

Skoðaðir verða fuglar við Syðradalsvatn í Bolungarvík frá kl. 13:00. Hægt er að leggja bílum við Geirastaði. Það má búast við 20 tegundum við vatnið en t.d. í gær var kría og óðinshani að mæta í fyrsta skipti í vor.

 

Böðvar Þórisson líffræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða verður með leiðsögn og mun verða með fjarsjá (telescope) sem fólk getur fengið að kíkja í.

 

Myndin að ofan er tekin af álftum á Syðradalsvatni 2004: BÞ © 2004

 

23. október 2007

Gerður Guðmundsdóttir hjá Náttúrustofa Austurlands mun halda fyrirlestur fimmtudaginn 25. október. Fyrirlesturinn heitir:  Kolefnisupptöka birkis og annarra lauftrjáa á Héraði við breytilegar umhverfisaðstæður. Fyrirlesturinn er haldinn á Austurlandi en sýndur beint í gegnum fjarfundabúnað í Háskólasetri Vestfjarða og hefst hannn kl. 12:15. Auglýsingin er hér fyrir neðan.

12. nóvember 2007

 

Þann 21. nóvember næstkomandi munu Samtök náttúrustofa á Íslandi (SNS) standa fyrir náttúrustofuþingi. Þetta er í þriðja skipti sem slíkt þing er haldið í tengslum við ársfund félagsins.

 

Samtök náttúrustofa (www.sns.is) voru stofnuð árið 2002 og eru aðilar að þeim Náttúrustofa Norðurlands vestra, Náttúrustofa Norðausturlands, Náttúrustofa Austurlands, Náttúrustofa Suðurlands, Náttúrustofa Reykjaness, Náttúrustofa Vesturlands og Náttúrustofa Vestfjarða.


Tilgangur Náttúrustofuþinga er að vekja athygli á og kynna starfsemi náttúrustofa og samvinnu þeirra við aðrar skyldar stofnanir í landinu, svo sem Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Háskóla Íslands og aðra háskóla.

 

Dagskrá þingsins er fjölbreytt og er gert ráð fyrir að birta fyrirlestra náttúrustofanna á heimasíðu Náttúrustofu Vestfjarða (www.nave.is) og heimasíðu samtakanna (www.sns.is) eftir þingið.

 

Þingið verður haldið á Náttúrugripasafni Bolungarvíkur og hefst kl. 12:00 þann 21. nóvember 2007.  

 

Dagskrá þingsins má nálgast hér.

20.-21. nóvember 2007

 

Á Náttúrustofuþingi í Bolungavík þann 21. nóvember voru undirritaðir

samstarfssamningar milli Samtaka Náttúrustofa annarsvegar,og

Veiðimálastofnunar og Náttúrufræðistofu Kópavogs hinsvegar, um samstarf

í rannsóknum á náttúrufari landsins.

 

          

Samningar undirritaðir og handsalaðir. Frá vinstri: Sigurður Guðjónsson, Veiðimálastofnun,

Þorkell Lindberg Þórarinsson, SNS, og Hilmar Malmquist, Náttúrufræðistofu Kópavogs.

21. desember 2007

 

Náttúrustofa Vestfjarða auglýsir eftir þremur sérfræðingum til starfa við vistfræðirannsóknir og kortagerð og fjarkönnun.        (sjá auglýsingu)

Leitað er að líffræðingum og/eða landfræðingum, sem hafa menntun og reynslu í vistfræðirannsóknum og/eða kortagerð og þekkingu á vistfræði.  Þekking og reynsla í notkun hugbúnaðar á borð við Microstation, ArcGis, Erdasimagine og landfræðilegra gagnagrunna er æskileg.

 Sérfræðingurinn þarf að vera vel á sig kominn og geta dvalið langdvölum að heiman við vettvangsvinnu. Æskilegt er að hann geti hafið störf sem fyrst.

 Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorleifur Eiríksson, forstöðumaður.

 Starfsstöðvar Náttúrustofu Vestfjarða eru í Bolungarvík, í Vesturbyggð og á Hólmavík.

 Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist Náttúrustofu Vestfjarða, Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík, eða á netfangið nave@nave.is, fyrir 15. janúar 2008.