Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

  English

                                  

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur

Sjóminjasafnið Ósvör

 

Fréttir frá árinu 2008


Fréttir eftir árum:  2010    2009    2008    2007    2006    2005    2004    2003    2002

15. janúar 2008

Klemmuætur! 

Í byrjun ársins varð klemmukaupandi þess var að ekki var allt með felldu þegar hann opnaði pakka með nýkeyptum þvottaklemmum, því sumar þeirra voru orðnar að fínu sagi. Við nánari athugun hjá Náttúrustofu Vestfjarða kom í ljós að hér var um að ræða bjöllu af tegundinni Lyctus brunneus. Bjallan hefur ekki fengið íslenskt nafn.  Hún þrífst best í ýmsum viðartegundum, og getur t.d.valdið skemmdum á parketi.  Kvendýrið verpir eggjum sínum í rifur og æðar viðarins, og þau klekjast út á um það bil 14 dögum.  Lirfan nærist á viðarsterkjunni þar til hún hefur náð fullri stærð, sem getur tekið frá tveimur til tólf mánuðum.  Það er á lirfustiginu sem skepnan veldur skemmdum á viðnum.  Eftir púpustigið nagar fullvaxin bjallan sér leið út úr viðnum, og skilur eftir sig tóma skel og úrgang sem líkist fínu sagi.

           

Verksumerki veislunnar...               

Bjallan trufluð, nýskriðin

úr púpuhamnum.          

Bjalla við hlið uppétinnar klemmu

25. febrúar 2008

Fjarfundafyrirlestur SNS, 28 febrúar fjallar um minka, sjá auglýsingu.

 

2. mars 2008

Svartþrestir (Turdus merula) hafa sést á norðanverðum Vestfjörðum undanfarna daga. Einn sást í Bolungarvík í gær og einn á Ísafirði á mánudaginn og ekki er ólíklegt að fleiri séu á svæðinu. Svartþrestir eru algengir flækingar á Vestfjörðum. Í fyrra sáust t.d. samtals 18 á Ísafirði, Bolungarvík Þingeyri og á Ströndum. Svartþrestir eru farnir að verpa að staðaldri í Reykjavík og nágrenni og svartþröstur því íslenskur varpfugl. Myndin var tekin á Hanhóli í fyrra.

 

13. mars 2008

Tjaldurinn að koma!

Á Ísafirði hafa verið 25 tjaldar í allan vetur og hafa þeir aðallega haldið sig við Tunguárósinn neðan við Bónus. Í gær hafði þeim fjölgað í tæpa 40 og er líklegt að þessi viðbót séu farfuglar.

 

Í vetrartalningu um jól og áramót voru 67 tjaldar á norðanverðum Vestfjörðum og þar af 42 í Dýrafirði. Í talningunni voru rétt rúmlega 1700 tjaldar á landinu öllu í vetrartalningunni en varpstofninn er 10-20.000 pör. Það eiga því eftir að koma töluvert af tjaldi næstu vikurnar.

 

17. mars 2008

Kampselur í Mjóafirði

Fyrir stuttu tóku Þórður Halldórsson og Dagrún Magnúsdóttir á Laugarholti við Djúp, þessa mynd af kampsel rétt innan við Skálavík í Mjóafirði.

Kampselur er flækingur hér við land en stofninn er ein milljón dýra og hann er útbreiddur um allt norður hvelið.

19. mars 2008

„Man sauður hvar gekk lamb“

Fjarfundafyrirlestur Samtaka Náttúrustofa (SNS) þann 27. mars mun fjalla um atferlisrannsóknir á kindum. Hafdís Sturlaugsdóttir landnýtingarfræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða mun flytja fyrirlesturinn „Man sauður hvar gekk lamb“ og með hverjum? Atferlisrannsókn á sauðfé á Ströndum.

Fyrirlesturinn fjallar um hluta af meistarprófsverkefni Hafdísar við Landbúnaðarháskóla Íslands. Fjallað verður um tengslamyndun lamba og móður og hvernig þau tengsl þróast. Rannsóknin var gerð á árunum 2005-2007. Rannsóknarhópurinn voru venjulegar ær og forystuær á bæjunum Húsavík og Innra Ósi á Ströndum. Rannsóknin var bæði gerð í heimahögum og eins var skoðað hvar ærnar héldu sig á frjálsri beit.

Á Vestfjörðum verður hægt að fylgjast með fyrirlestrinum á Hólmavík, Patreksfirði, Ísafirði og í Bolungarvík.

25. mars 2008

Merktur örn sést á Ísafirði.

Örninn, sem sést hefur á Ísafirði undanfarið, er ungi frá því síðasta sumar og kemur úr Djúpinu. Hann er líklega búinn að vera meira og minna á Ísafirði í allan vetur. Hann er frekar gæfur og hefur sést í Arnardalnum, við Hauganes og Tunguárósinn (kannski einnig í Bolungarvík).

Meðfylgjandi mynd sýnir litmerktan örn sem Böðvar Þórisson náði mynd af í Steingrímsfirði í maí 2006. Á myndinni má sjá merkin en litur á merki á vinstri löpp er mismunandi eftir árum. Byrjað var að litmerkja unga um sumarið 2004 og hefur verið reynt að merkja alla unga síðan. Örninn frá Ísafirði er samt einungis þriðja eða fjórða endurheimtan af unga sem hefur náðst að lesa á merkið úr fjarlægð.

Arnarstofninn var mældur vorið 2006 og voru þá 66 varppör og hefur hann ekki verið stærri síðan hann var friðaður 1914. Upplýsingar um erni má finna á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands og hjá fuglaverndarfélagi Íslands (sjá tengla fyrir neðan).

Sjá einnig fyrri fréttir af litmerktum örnum: 14. maí 2006,  og 16. ágúst 2005.

http://fuglavernd.is/arnarvernd/index.html

http://www.ni.is/dyralif/fuglar/Voktunarnarstofnsins/

5. mars 2008

Forystufé

Munur á forystufé og öðru fé verður efni Fjarfundafyrirlesturs Samtaka Náttúrustofa (SNS) þann 27. mars. kl. 12:15. Hafdís Sturlaugsdóttir hjá Náttúrustofu Vestfjarða flytur fyrirlesturinn, sem nefnist „Man sauður hvar gekk lamb“ og byggist á ritgerð hennar til meistaraprófs.

Fjallað verður um tengslamyndun móður og lambs og hvernig þau tengsl þróast. Rannsókn var gerð á tveimur bæjum á Ströndum, Innra Ósi og Húsavík. Á Innra Ósi var hópur af forystufé og annar af venjulegu fé, en í Húsavík hópur af venjulegu fé. Nokkur munur kom fram á hve vel þessir hópar sinna og passa upp á lömbin sín frá fæðingu og þangað til lömbin verða 10 daga gömul. Einnig verður fjallað um hvort og þá hvernig tengslin haldast til lengri tíma. Fylgst var með ám á frjálsri sumarbeit og kannað hvort skilgreindir ættarhópar, bæði forystufé og venjulegar ær, héldu saman á beitinni. Það kom fram nokkur munur á þessu atferli

Fyrirlesturinn verður fluttur í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði en hægt er að fylgjast með í fjarfundabúnaði í Þróunarsetri Bolungarvíkur (á hæðinni fyrir ofan Náttúrustofu Vestfjarða), Þróunarsetrinu á Patreksfirði og Grunnskólanum´á Hólmavík.

7. april 2008

Líffræðingur - landfræðingur óskast.

Náttúrustofa Vestfjarða auglýsir eftir sérfræðingi með menntun í líffræði, landafræði eða skyldum greinum. Þekking á vistfræði og/eða kortagerð æskileg. Aðsetur verður í Þróunarsetrinu á Patreksfirði.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist til Náttúrustofu Vestfjarða, Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík, eða á netfangið nave@nave.is fyrir 5. maí 2008.

Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Eiríksson, forstöðumaður í síma 4567005 eða 8926005

(auglýsing)

 

11. april 2008

Skutulönd í Önundarfirði

Skutulandarsteggur (Atythya ferina) sást í Önundarfirði í gær (10. apríl). Skutulönd er skyld skúfönd og duggönd og er kjörsvæði hennar svipað og skúfandar. Hún heldur sig aðallega við votlendi og erlendis finnst  hreiður hjá henni víða nálægt vatni. Skutulönd er útbreidd allt frá Bretlandseyjum og austur að Mið-Asíu.

 

Hér við land er skutulönd sjaldgæfur varpfugl. Við Mývatn fannst fyrst hreiður hjá henni 1954 og hefur hún sést nánast árlega við Mývatn frá því árinu 1975. Talið er að í dag séu varppör 1-3. Hún hefur líklega aðeins einu sinni sést áður á Vestfjörðum.

 

Mynd: Yann Kolbeinsson. 2002.

Heimild: Ævar Petersen. 1998. Íslenskir fuglar. Vaka-Helgafell.

 

Farfuglafréttir

Ein Duggandarkolla sást í gær á Ísafirði. Fáeinir skógarþrestir hafa sést á Þingeyri og Patreksfirði en það er samt varla hægt að segja að hann sé kominn. Hettumáfum er að fjölga og fyrstu grágæsir sáust um mánaðarmótin fyrir utan einn hóp á flugi sem sást í Dýrafirði tveimur vikum áður.

11. april 2008

Hafdís Sturlaugsdóttir heldur fyrirlesturinn „Man sauður hvar gekk lamb“ og með hverjum? í Grunnskólanum Hólmavík þann 17. apríl, kl. 12:15-12:45. Fyrirlesturinn er endurtekinn vegna mistaka í tenginu fjarfundarbúnaðar, þann 27. mars síðastliðinn. Allir velkomnir.

 

17. april 2008

Farfuglar að streyma inn á Vestfirði.

Í gær sáust heiðlóur í Önundarfirði og í dag sáust þær á Ísafirði og í Steingrímsfirði. Þeim hafði síðan fjölgað talsvert í Önundarfirði í dag. Hrossagaukar sáust í gær á Ísafirði. Tildrur eru mættar í Önundarfjörð. Þær eru umferðarfuglar en þær stoppa við hér á landi á leið sinni til Grænlands og Kanada. Eitthvað er um að þær hafi vetursetu hér á landi en það sjást nánast engar á Vestfjörðum yfir vetur.

 

Stelkum hefur fjölgað mikið síðustu tvo daga og sömuleiðis skógarþröstum.

 

Örfáar sandlóur hafa sést en þær ættu að koma í einvherju mæli næstu daga. Jaðrakan hefur ekki enn sést á Vestfjörðum en hann ætti að sjást á næstu dögum, þá líklega fyrst við Reykhóla og Önundarfjörð. 

Mynd BÞ 2005

21. apríl 2008

Litmerktar sandlóur og fleiri fuglar

Sandlóur hafa verið að koma síðustu daga og voru t.d. 45 fuglar í Holtsodda 20. apríl, þar af voru 13 litmerktar. Þessar sandlóur voru merktar í Önundarfirði, flestar í Holtsoddanum. Ein var merkt 2004 sem fullorðin og er því a.m.k. 5 ára gömul. Sandlóan heitir Þórey og hefur hún alltaf verið með fyrstu sandlóum í Önundarfirði á vorin.

Sex sandlóur sáust í Bolungarvík í dag og þar af voru 5 með litmerki. Þær voru allar í varpi í Bolungarvík í fyrra en aðalsvæðin þeirra eru lítt grónir melar og sandar eins og er t.d. við trönurnar á sandinum (flugbrautin) og á æfingarsvæði golfklúbbsins (sem er að gróa upp). Myndin hér til hliðar er af sandlóu karli í Bolungarvík 2005 með þrjú litmerki.

Mynd BÞ 2005

Fyrstu jaðrakarnir voru að sjást í Önundarfirði á föstudaginn og svo í Dýrafirði á sunnudaginn. Maríuerla sást á Húsavík í Steingrímsfirði í gær og sömuleiðis lóuþrælar. Þúfutittlingur sást á Dýrafirði í gær og á Ísafirði í dag.

2. maí 2008

Litmerkt bolvísk sandlóa í Skotlandi

Þann 25. apríl sáust tvær litmerktar sandlóur í suðvestur Skotlandi. Önnur var litmerkt á suðurlandi en hin var merkt í Bolungarvík sumarið 2007. Það sáust um 1200 fuglar á þessu svæði í Skotlandi 25. apríl, en þessar tvær náðust saman á mynd. Bolvíska sandlóan sást núna í hádeginu á áreyrum við Ósá í Bolungarvík. Þetta er karlfugl og náðist hann á hreiðri í júní 2007. Makinn hans var líka merktur  og sást hún í apríl í Bolungarvík en hefur fært sig um set og sást síðast til hennar á Ísafirði.

 

Spóinn er mættur, sást fyrst í Dýrafirði síðast liðinn sunnudag og svo í Önundarfirði í gær. Hann er með síðustu farfuglunum en aðeins kría, óðinshani og þórshani eiga eftir að sjást þetta vorið á Vestfjörðum.

 

5. maí 2008

Umferðarfuglar að koma

Rauðbrystingi hefur verið að fjölga síðustu daga en hámarksfjöldi verður um miðjan maí. Þeir eru á leið Grænlands og Kanada. Í gær sást ein sanderla í Önundarfirði en fjöldi þeirra sem fer um Ísland er mun minni og eru oft aðeins seinna á ferðinni. Á Vestfjörðum er einna mestu líkur að sjá þær í Önundarfirði og á Barðaströndinni.

 

Mynd BÞ 2006 - Sanderla og rauðbrystingur á flugi í Önundarfirði.

6. maí 2008

Krían er komin á Vestfirði

Á Holtsodda í Önundarfirði sáust 9 kríur í gær. Þær virtust vera þreytulegar og líklega nýkomnar.

 

 

Mynd BÞ 2005

15. maí 2008

Laumufarþegi frá Ítalíu

Kónguló af ættkvíslinni Tegenaria var fönguð af Kára í Bolungarvík 5 maí 2008.  Hún fannst í húsgögnum sem komu frá Ítalíu. Kóngulær eru ekki skordýr vegna þess að þær hafa átta fætur og hvorki vængi né fálmara. Allar kóngulær eru eitruð rándýr með tennur en fáar eru hættulegar mönnum. Hættulegar kóngulær lifa villtar í hlýjum löndum, svo þær geta ekki lifað á Íslandi. Venjulega éta kvendýrin karldýrin eftir æxlun, en Tegenaria kóngulærnar leyfa karldýrunum að  lifa í vefnum ef það er til nóg af fæðu.

 

http://www.goert.ca/documents/InvFS_tegenaria.pdf

 

23. maí 2008

Fuglaskoðun 25. maí við Syðradalsvatn í Bolungarvík

Fuglaskoðun verður 25. maí kl. 13.00 við Syðradalsvatn í Bolungarvík. Hægt verður að leggja bílum við Geirastaði og verður byrjað þar á skoðuninni. Fuglaskoðunin er á vegum Heilsubæjar Bolungarvíkurs og Náttúrustofu Vestfjarða og mun Böðvar Þórisson frá NV vera með leiðsögn. Náttúrustofan verður með Telescope (fjarsjá) sem hægt er að fá að kíkja í.

Mynd BÞ 2006

29. maí 2008

Skólaheimsóknir frá Ísafirði á Náttúrugripasafns Bolungarvíkurs

Leikskólinn Sólborg, annar og fimmti bekkur Grunnskóla Ísafjarðar komu í heimsókn á náttúrugripasafn Bolungarvíkurs í vikunni. Starfsmenn Náttúrustofu Vestfjarða héldu stutt erindi en síðan fengu allir krakkar ákveðin verkefni til leysa. Krakkarnir á leikskólanum fengu myndir til lita, 2. bekkur þurftu að finna ákveðna fugla og svara spurningum varðandi vistfræði t.d hvort ísbirnir verða brúnir á sumrin og hvort hettumáfurinn missir hettuna yfir vetur. Fimmti bekkurinn þurftu leysa ákveðin verkefni varðandi lífríki í fjöru t.d. greina smádýr, þörunga, skeljar o.fl. Samtals komu um 150 krakka á þremur dögum á safnið. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af krökkunum við sín verkefni en myndirnar tók Cristian Gallo starfsmaður Náttúrustofu Vestfjarða.

 

Leikskólinn Sólborg:

     

 

2. bekkur grunnskóla Ísafjarðar

 

 

 

5. bekkur grunnskóla Ísafjarðar

 

 

29. maí 2008

Nú eru geitungar í óða önn að koma sér upp búum um allan bæ. 

Á þessum myndskeiðum má sjá drottningu naga girðingarstaur inni á Grundum til að afla efnis í búið, greinilega má sjá farið eftir sterka kjálkana í staurnum. Á seinna myndskeiðinu er hún  að störfum við uppbygginguna og notar til þess pappír sem hún gerir úr trjákvoðu. 

  myndskeið1 (7.4mb)   myndskeið2 (5.3mb)

 

12. júní 2008      

Dagur hinna villtu blóma verður haldinn sunnudaginn 15. júní árið 2008. Þann dag gefst fólki víðs vegar um landið kostur á að fara í tveggja tíma gönguferð um nágrenni sitt án endurgjalds, og fá leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa. Á Vestfjörðum verður haldið upp á daginn á tveimur stöðum:

 Á Ísafirði verður farið frá tjaldstæðinu í Tungudal kl. 13:00. Leiðsögn hefur Anton Helgason.

Á Hólmavík verður farið frá Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík kl. 13:00. Leiðsögumenn verða Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson.

 Allir hvattir til að mæta

11. júlí 2008

Jarðsig í Kálfanesfjalli

Eftir rigninguna 2. júlí tók Hafdís Sturlaugsdóttir starfsmaður Náttúrustofu Vestfjarða eftir því að skriðan eða Hraunið fyrir ofan flugvöllinn á Kálfanesskeiði við Hólmavík hefur hreyfst töluvert. Hún fór síðan á vettvang og tók myndir og skoðaði ummerki daginn eftir og hefur hreyfingin orðið í innanverðri skriðunni, í áttina að Kálfanesi. Þorsteinn Sæmundsson náttúrufræðingur hjá Náttúrustofu Norðurlands vestra staðfesti að þarna væri um hreyfingu á eldra berghlaupi að ræða. Af ummerkjum á gróðri má ætla að skriðan hafi fallið í vetur eða snemma í vor. Þeir sem hafa tekið eftir þessu og vita hvenær þessi hreyfing hefur átt sér stað eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hafdísi hjá Náttúrustofunni en hún er til húsa í Þróunarsetrinu á Hólmavík, netfangið er hafdis@nave.is .

 

        

 

1. ágúst 2008

Kría með síli.

Gengið hefur vel hjá kríunni í Bolungarvík en einnig víðar á Vestfjörðum. Hún hefur sést með síli, bæði snemma sumars og síðast í gær. Flestur ungar eru orðnir fleygir en þó er eitthvað um að hún liggi enn á. Myndir hér fyrir neðan voru teknar kríum í Bolungarvík 31. júlí.

   

Myndir: Böðvar Þórisson 2008

29. ágúst 2008

Stuart Morrison frá Stirling háskóla, Skotland, er hér á Vestfjörðum við fornleifarannsóknir. Hér fyrir neðan eru upplýsingar frá honum um hans verkefni.

The Emergence of Early Fishing Communities in Iceland

Archaeological research undertaken since 2002 has uncovered evidence of significant wealth being present in the remote Vestfirðir region of Iceland since first permanent settlement of the country (Landnám) around AD 871. Due to the topographical restrictions present within this region, this wealth has been attributed to the systematic exploitation of maritime resources through an early specialist fishing industry.  This contradicts the antiquated historical perception that a specialist commercial fishing economy did not emerge in Iceland until well into the Middle Ages.  The aim of this project is to test these two competing hypotheses using a geoarchaeological approach using the on-site soils and sediments as a cultural record to give further insight into the complex debate regarding commercial fishing development in Iceland.

The sites chosen for this project include locations at Kálfeyri, Arnardalur, Skálavík and Vatnsfjorður.

This project will aim to provide an accurate historical chronology as regards to specialist fishing development, and contribute towards the wider cultural identity of Vestfirðir.

15. september 2008

Gráhegri (Ardea cinerea) var við Dýrafjarðarbrú síðast liðinn laugardag (tilkynnt: Rúnar Ó. Karlsson). Gráhegrar eru tíðir vetrargestir á Íslandi og sjást alltaf fáeinir á Vestfjörðum á hverju ári.

 

Gráhegri er útbreiddur varpfugl í Evrópu og hafa fundist merktir gráhgerar hér á landi, ættaðir frá Noregi. Gráhegri er aðallega fiskiæta og sjást þeir oft við vötn, læki og í fjöru.

 

Heimild: Ævar Petersen. 1998. Íslenskir fuglar. Vaka-Helgafell.

 

30. október 2008

 

Fimmtudaginn 30. október n.k. kl. 12:15 - 12:45 flytur Aðalsteinn Örn Snæþórsson, líffræðingur á Náttúrustofu Norðausturlands, erindi sem hann nefnir:

     "Fýllinn í Jökulsárgljúfrum"  (nánar)

 

17. nóvember 2008

Evrópsk húsakrybba (Acheta domesticus) fannst á Leikskólanum Sólborg á Ísafirði. 

(nánar)                     

(Mynd frá Wikimedia.org)

 

24. nóvember 2008

Jaðrakan ungi frá Bolungarvík sást í Portúgal.

Jaðrakan ungi (sjá mynd) sem var merktur í Syðridal í Bolungarvík í júlí 2008, sást í nóvember nálægt Lissabon í Portúgal. Einnig sást jaðrakan sem var merktur sem fullorðinn við Holt í Önundarfirði 2003. Sá fugl hefur sést á hverju sumri síðan við Holt.

 

Íslensku jaðrakanir hafa aðallega vetursetu við England, Írland, Frakkland og Portúgal og hafa flestar endurheimtur komið frá þessum löndum. 

 

Mynd: Astrid Kant 2008