| |
Fréttir frá árinu
2009 |
|
| |
|
|
| |
Fréttir eftir árum:
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002 |
|
| |
|
|
|
7. janúar 2009
Vetrarfuglatalningar á Vestfjörðum
Á hverju ári í kringum jólin er
vetrarfuglatalning á öllu landinu og var hún núna þann 28. desember 2008.
Fyrsta vetrarfuglatalningin á landinu var þann 21. desember 1952 og má lesa
meira um það á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands.
http://www.ni.is/dyralif/fuglar/vetrarfuglar/
Á Vestfjörðum eru 32 talningarsvæði en ekki
tekst alltaf að telja öll svæðin árlega. Í dag (7.1.2009) eru komnar tölur
af 26 svæðum (21 á norðanverðum Vestfjörðum, 1 Steingrímsfirði og 4 í
Reykhólahreppi). Samtals hafa sést 30 tegundir á Vestfjörðum og verða þær
líklega 31 eða 32 þegar talningum er lokið.
Norðanverðir Vestfirðir
Á norðanverðum Vestfjörðum sáust 28 tegundir og líklega verða tegundirnar 29
eða 30 þegar talningu er lokið. Af flækingum (árlegum gestum) sáust tveir
æðarkóngar (Suðureyri og á Ísafirði) og einn gráhegri (Dýrafirði).
Ein
skúfandarkolla sást á Ísafirði og hefur hún ekki áður sést á norðanverðum
Vestfjörðum í vetrarfuglatalningu en er ekki óalgeng annars staðar á
Íslandi.
Mynd: Æðarkóngur á Suðureyri 2006.
BÞ
© 2006.
Af vaðfuglum sáust tjaldar, stelkar og
sendlingar. Tjaldarnir voru um 60 en í heild sjást tæpir 2000 tjaldar á
landinu. Stelkarnir voru 5 og sáust allir við Tunguárós á Ísafirði. Einn
litmerktur sendlingur sást við Súðavík og var hann merktur sem ungi á
Melrakkasléttu síðast liðið sumar.
Æðarfugl var algengastur (8800) en eftir komu
máfar (aðallega hvítmáfar), hávellur og stokkendur. Hrafni og svartbak
fækkar á milli ára hefur gert það á síðustu þremur árum. Snjótittlingar voru
fáir í þetta skiptið en fjöldi þeirra sveiflast eftir snjóalögum á
talningardegi.
Í töflu hér fyrir neðan eru svæðunum fækkað og
þeim skipt niður í sjö megin svæði.
Bolungarvík: Ófæra að Óshólavita
Óshlíð: Óshólaviti að Hnífsdalsá
Skutulsfjörður: Hnífsdalsá að botni Skutulsfjarðar og út að austan að
Arnardalsá.
Álftafjörður: Arnardalsá að Langeyrarodda
Súgandafjörður: Frá botni að Stað
Önundarfjörður: Frá Kirkjubóli í Korpudal að Klofningi að norðan og Ófæru að
sunnan
Dýrafjörður: Frá Botnskógi að Þingeyri og Lækjarósi
Talningarfólk: Böðvar Þórisson, Guðbjörg
Skarphéðinsdóttir, Hilmar Pálsson, Hrefna Dís Pálsdóttir, Páll Janus
Hilmarsson, Petrína F. Sigurðardóttir, Þorleifur Eiríksson og
Þorgerður Þorleifsdóttir.
|
Tegundir |
Bolungarv. |
Óshlíð |
Skutulsfj. |
Álftafj. |
Önundarfj. |
Súgandafj. |
Dýrafj. |
Samtals |
|
Lómur |
|
|
|
|
1 |
3 |
|
4 |
|
Himbrimi |
|
|
|
|
|
|
1 |
1 |
|
Dílaskarfur |
10 |
59 |
27 |
19 |
10 |
14 |
14 |
153 |
|
Toppskarfur |
6 |
|
|
|
|
|
|
6 |
|
Ógr.
skarfur |
3 |
6 |
1 |
14 |
2 |
3 |
|
29 |
|
Gráhegri |
|
|
|
|
|
|
1 |
1 |
|
Álft |
|
|
|
|
|
|
1 |
1 |
|
Stokkönd |
16 |
|
158 |
32 |
282 |
73 |
360 |
921 |
|
Urtönd |
|
|
|
|
|
|
26 |
26 |
|
Rauðhöfðaönd |
|
|
|
|
|
|
18 |
18 |
|
Skúfönd |
|
|
1 |
|
|
|
|
1 |
|
Hávella |
32 |
41 |
268 |
70 |
215 |
485 |
461 |
1572 |
|
Straumönd |
10 |
102 |
30 |
57 |
2 |
48 |
6 |
255 |
|
Æðarfugl |
1312 |
456 |
1524 |
725 |
1436 |
1994 |
1373 |
8820 |
|
Æðarkóngur |
|
|
1 |
|
|
1 |
|
2 |
|
Gulönd |
|
|
7 |
|
4 |
6 |
5 |
22 |
|
Toppönd |
|
|
43 |
23 |
38 |
66 |
106 |
276 |
|
Rjúpa |
|
|
10 |
|
|
|
|
10 |
|
Tjaldur |
|
|
40 |
|
|
|
22 |
62 |
|
Stelkur |
|
|
5 |
|
|
|
|
5 |
|
Sendlingur |
|
|
117 |
105 |
52 |
14 |
46 |
334 |
|
Svartbakur |
38 |
7 |
2 |
3 |
3 |
15 |
2 |
70 |
|
Hvítmáfur |
533 |
24 |
181 |
82 |
77 |
98 |
42 |
1037 |
|
Bjartmáfur |
22 |
|
12 |
60 |
1 |
12 |
|
107 |
|
Hettumáfur |
1 |
|
|
1 |
|
|
|
2 |
|
Ógr.
máfur |
80 |
|
|
360 |
|
300 |
|
740 |
|
Álka |
|
|
|
|
1 |
|
|
1 |
|
Teista |
2 |
|
|
7 |
2 |
2 |
14 |
27 |
|
Snjótittlingur |
3 |
|
2 |
30 |
62 |
|
3 |
100 |
|
Auðnutittlingur |
|
|
7 |
|
|
|
6 |
13 |
|
Hrafn |
38 |
5 |
51 |
4 |
3 |
6 |
7 |
63 |
|
Samtals |
2106 |
700 |
2487 |
1592 |
2191 |
3140 |
2514 |
14679 |
|
Fjöldi
tegunda |
13 |
7 |
19 |
14 |
16 |
15 |
20 |
29 |
Reykhólahreppur, Steingrímsfjörður og
Patreksfjörður
Í Reykhólahreppi er talið í austanverðum Þorskafirði (VF 13), Berufirði (VF
24), Reykhólum (VF 12) og á uppfyllingunni í Gilsfirði (VF 25). Tómas
Sigurgeirsson og Jón Atli Játvarðsson töldu í Reykhólahreppi.
Komin er talning frá einu svæði í
Steingrímsfirði og er það frá Sandnesi að Kokkálsvík (VF 26). Talningarmenn:
Matthías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir.
Niðurstöður má sjá í töflu hér fyrir neðan.
|
Tegundir |
VF 25 |
VF 12 |
VF 24 |
VF 13 |
VF 26 |
|
Dílaskarfur |
|
|
1 |
|
23 |
|
Toppskarfur |
|
|
|
|
31 |
|
Ógr.
skarfur |
|
|
|
|
10 |
|
Álft |
|
2 |
33 |
|
|
|
Stokkönd |
|
70 |
450 |
|
61 |
|
Hávella |
|
3 |
|
|
249 |
|
Æðarfugl |
600 |
64 |
282 |
65 |
873 |
|
Toppönd |
|
|
|
|
42 |
|
Smyrill |
|
1 |
|
|
|
|
Tjaldur |
|
|
300 |
14 |
|
|
Stelkur |
|
1 |
|
|
|
|
Hrossagaukur |
|
1 |
|
|
|
|
Sendlingur |
50 |
1 |
|
|
|
|
Svartbakur |
17 |
1 |
4 |
|
10 |
|
Hvítmáfur |
|
|
1 |
|
14 |
|
Ógr.
máfur |
|
|
|
|
4 |
|
Teista |
|
1 |
|
|
33 |
|
Músarrindill |
|
1 |
|
|
|
|
Snjótittlingur |
|
2 |
|
|
8 |
|
Hrafn |
2 |
1 |
2 |
2 |
23 |
|
Samtals |
669 |
149 |
1073 |
81 |
1381 |
|
Fjöldi
tegunda |
4 |
13 |
8 |
3 |
11 |
|
|
| |
9. janúar 2009
Vetrarfuglatalning á Vestfjörðum
Búið er að færa inn talningar frá Patreksfirði.
Reykhólahreppur, Steingrímsfjörður og Patreksfjörður
Í Reykhólahreppi er talið í austanverðum Þorskafirði (VF 13), Berufirði (VF
24), Reykhólum (VF 12) og á uppfyllingunni í Gilsfirði (VF 25). Tómas
Sigurgeirsson og Jón Atli Játvarðsson töldu í Reykhólahreppi.
Talið var á fjórum svæðum í Patreksfirði: í þorpinu (121), Raknadalshlíð (VF
28), frá Hlaðseyri og inn í botn (VF 01) og frá Skápadalsá að botni
fjarðarins (VF 27). Böðvar Þórisson og Katharina Sommermeier töldu í
Patreksfirði.
Komin er talning frá einu svæði í
Steingrímsfirði og er það frá Sandnesi að Kokkálsvík (VF 26). Talningarmenn:
Matthías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir.
Niðurstöður má sjá í töflu hér fyrir
neðan.
|
Tegundir |
VF 25 |
VF 12 |
VF 24 |
VF 13 |
VF 26 |
121 |
VF 01 |
VF 27 |
VF 28 |
Samtals |
|
Himbrimi |
|
|
|
|
|
|
|
1 |
|
1 |
|
Dílaskarfur |
|
|
1 |
|
23 |
|
|
2 |
5 |
31 |
|
Toppskarfur |
|
|
|
|
31 |
2 |
|
1 |
|
34 |
|
Ógr. skarfur |
|
|
|
|
10 |
1 |
|
1 |
|
12 |
|
Álft |
|
2 |
33 |
|
|
|
|
|
|
35 |
|
Stokkönd |
|
70 |
450 |
|
61 |
2 |
2 |
|
|
585 |
|
Hávella |
|
3 |
|
|
249 |
5 |
7 |
|
2 |
266 |
|
Æðarfugl |
600 |
64 |
282 |
65 |
873 |
276 |
132 |
44 |
150 |
2486 |
|
Toppönd |
|
|
|
|
42 |
|
17 |
1 |
5 |
65 |
|
Smyrill |
|
1 |
|
|
|
|
|
|
|
1 |
|
Tjaldur |
|
|
300 |
14 |
|
|
|
|
|
314 |
|
Stelkur |
|
1 |
|
|
|
|
|
|
|
1 |
|
Hrossagaukur |
|
1 |
|
|
|
|
|
|
|
1 |
|
Sendlingur |
50 |
1 |
|
|
|
|
|
|
|
51 |
|
Svartbakur |
17 |
1 |
4 |
|
10 |
31 |
1 |
1 |
|
65 |
|
Hvítmáfur |
|
|
1 |
|
14 |
374 |
3 |
6 |
15 |
413 |
|
Bjartmáfur |
|
|
|
|
|
13 |
|
|
|
13 |
|
Hettumáfur |
|
|
|
|
|
3 |
|
|
|
3 |
|
Ógr. máfur |
|
|
|
|
4 |
60 |
|
|
|
64 |
|
Teista |
|
1 |
|
|
33 |
|
2 |
|
1 |
37 |
|
Músarrindill |
|
1 |
|
|
|
|
|
|
|
1 |
|
Snjótittlingur |
|
2 |
|
|
8 |
11 |
|
|
|
21 |
|
Auðnutittlingur |
|
|
|
|
|
2 |
|
|
|
2 |
|
Hrafn |
2 |
1 |
2 |
2 |
23 |
44 |
1 |
|
1 |
76 |
|
Samtals |
669 |
149 |
1073 |
81 |
1381 |
824 |
165 |
57 |
179 |
4578 |
|
Fjöldi tegunda |
4 |
13 |
8 |
3 |
11 |
11 |
8 |
7 |
7 |
22 |
|
|
| |
23. janúar 2009
Garðfuglaskoðun 23-26. janúar.
Fuglavernd stendur fyrir garðfuglaskoðun dagana 23.-26. janúar. Skoðunin
felur í sér að skrá
fjölda
fugla og tegunda í einn klukkutíma einhverja þessa fjóra daga. Þó svo að
enginn fugl sjáist þá eru það gögn líka. Upplýsingum má koma áfram til
Náttúrustofunnar (bodvar@nave.is)
og/eða fuglaverndar.
Mynd: svartþröstur í Syðridal í Bolungarvík 2007/BÞ
Hér fyrir neðan er slóði á fuglavernd og garðfuglavefinn:
http://fuglavernd.is/
http://www.fsu.is/~ornosk/gardfuglar/ |
|
| |
26. febrúar 2009
Fræðsluerindi Náttúrustofa í fjarfundabúnaði um land allt.
Næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar flytur Dr. Agnar
Ingólfsson erindi sem hann nefnir:
"Áhrif bogakrabba og nákuðungs á hrúðurkarl og krækling í
fjörum: Samanburður svæða innan
og utan útbreiðslusvæða afræningja"
Hægt verður að fylgjast með fyrirlestrinum í Patreksskóla á
Patreksfirði, Háskólasetrinu við Suðurgötu á Ísafirði, Rannsóknar og
fræðasetri HÍ í Bolungavík og hugsanlega einnig í Grunnskólanum á Hólmavík.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12:15.
 |
|
| |
27. janúar 2009
Fræðsluerindi Náttúrustofa í fjarfundabúnaði um land allt.
Næstkomandi fimmtudag, 29. janúar, verður erindi um
"Lundarannsóknir í Vestmannaeyjum". Hægt er að sjá fyrirlesturinn í
Grunnskólanum á Patreksfirði, Háskólasetrinu á Ísafirði og á
Rannsóknasetrinu í Bolungarvík (3. hæð). Fyrirlesturinn hefst kl. 12:15 og
lokið 12:45. Auglýsinguna má sjá hér fyrir neðan.
 |
|
| |
15. mars 2009
Strandagaldur ses og Náttúrustofa Vestfjarða fengu úthlutað
2.8 millj króna úr Fornleifasjóði fyrir árið 2009 til áframhaldandi
rannsókna á minjum eftir hvalveiðimenn í Strandasýslu á 17. öld. Rannsóknin
er hluti af verkefninu “Hvalveiðar útlendinga við Ísland” sem miðar að því
að setja hvalveiðar á 17. öld við Ísland í stærra samhengi hvalveiða á
norður Atlantshafinu.
|
|
| |
20. mars 2009
Farfuglar að koma
Tjaldar sáust þann 13. mars í Álftafirði en engir slíkir hafa
verið þar í vetur. Tjaldar hafa síðan verið að sjást víða á Vestfjörðum frá
því á mánudaginn 16. mars. Tjaldar hafa haft vetursetu í Skutulsfirði og í
Dýrafirði en þeim hefur fjölgað þar síðustu daga.
Álftir
sáust í Álftafirði þann 12. mars og hafa verið að sjást á fleirum stöðum
síðustu daga. Þetta eru líklega farfuglar.
Mynd BÞ 2004
Hugsanlega er skógarþrösturinn einnig að koma til landsins en
þetta eru fáir fuglar sem eru að sjást og heyrast og hluti af stofninum
hefur vetursetu hér. Einn skógarþrösturinn var syngjandi í Syðridal í
Bolungarvík en hann hefur ekki sést á því svæði í vetur. |
|
| |
20. mars 2009
Fræðsluerindi Náttúrustofa í fjarfundabúnaði um land allt.
Næstkomandi fimmtudag, 26. mars flytur Róbert A. Stefánsson
líffræðingur erindi um glókolla "Glókollur á Vesturlandi".
Hægt verður að fylgjast með fyrirlestrinum í Patreksskóla á
Patreksfirði, Háskólasetrinu við Suðurgötu á Ísafirði, Rannsóknar og
fræðasetri HÍ í Bolungavík. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:15 og er lokið
12:45. |
|
| |
22. apríl 2009
Grátrana í
Steingrímsfirði.
Guðbrandur
á Bassastöðum sá grátrönu (Grus grus) í Selárdal í Steingrímsfirði
þann 20. apríl. Gunnar Logi Björnsson náði myndum af henni í gær og má sjá
þær hér fyrir neðan.
Mynd: Gunnar Logi Björnsson
Um 40 grátrönur hafa sést á
Íslandi frá því að skráningar hófust og sáust t.d. tveir fuglar í maí 2007 á
Rauðasandi.
Grátrana verpir á
votlendissvæðum á Norðurlöndum og í norður Evrópu en hefur vetursetu í
Frakklandi og í Afríku. Hún er aðallega jurtaæta en snákar, eðlur og froskar
detta stundum upp í kjaftin á henni.
|
|
| |
24. mars 2009
Brandönd á Ísafirði.
Guðjón
T. Sigurðsson sá brandandarstegg á Ísafirði í gær. Hann var á sjónum á móts
við Bónus. Brandönd verpir ekki á Vestfjörðum (eins og er) en það sást þó
eitt par í Önundarfirði síðasta vor.
Mynd: Guðjón T. Sigurðsson 2009
Fyrstu grágæsirnar sáust á Vestfjörðum í Dýrafirði fyrir
einum 10 dögum og svo sáust gæsir við Húsavík í Steingrímsfirði og í
Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi síðast liðinn laugardag (21.mars).
|
|
| |
30. apríl 2009
Fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi kl. 12:15 - 12:45 flytja
Þorleifur Eiríksson og Böðvar Þórisson, líffræðingar á Náttúrustofu
Vestfjarða, erindi sem þeir nefna: "Athuganir á Dýra- og Önundarfirði fyrir
og eftir þverun"
Í auglýsingunni hér fyrir neðan eru taldir upp þeir staðir
þar sem hægt er að fylgjast með fyrirlestrinum. Á Hólmavík verður hægt
að fylgjast með í Þróunarsetrinu en ekki Grunnskólanum eins og
stendur í auglýsingunni.
 |
|
| |
30. apríl 2009
Tjaldurinn orpinn.
Albert Óskarsson fann tjaldshreiður með einu eggi þann 26.
apríl á Ísafjarðarflugvelli. Matthías Lýðsson fann tjaldshreiður með þremur
eggjum þann 27. apríl við Tungugrafarvoginn í Steingrímsfirði. Magnús Hansson
fann tjaldshreiður í Otradal í Arnarfiðri þann 29. apríl.
Tjaldurinn verpir 2-3 eggjum og byrjar hann fyrstur vaðfugla.
Til marks um það þá er spóinn rétt að mæta núna og óðinshani kemur ekki fyrr
en í kringum 10. maí til Vestfjarða.
|
|
| |
1. maí 2009
Humlurnar að vakna.
Nú eru hunangsflugudrottningarnar að vakna úr dvala og komnar
á stjá. Feit og falleg drottning sást í garðinum við Hólsveg 6
föstudaginn 1. maí. Að öllum líkindum hefur þar verið á ferðinni húshumla (Bombus
lucorum). Drottningarnar eru mestu meinleysisdýr og stinga ekki
nema í ýtrustu neyð. Óþarfi er því með öllu að hræðast þær.
Drottningar eiga það til að villast inn í hýbýli manna þegar
þær eru að leita að stað til að gera sér bú. Yfirleitt drepast þær þá
fljótt (líklega úr stressi) og er því best að reyna að koma þeim aftur út í
vorið sem fyrst.
|
|
| |
8. maí 2009
Starfsmenn Náttúrustofunnar sóttu surtarbrand í Hólslandi
síðastliðinn þriðjudag (5. maí). Surtarbrandurinn var í um 300 m hæð og voru
þetta tvær fjalir, önnur 230 kg en hin 140 kg. Þar sem ekki var hægt að koma
tæki að þeim þá voru þær dregnar á sleða (sjá mynd) og svo rennt niður
fjallshlíðina á snjófönn.

Stærri fjölin
Minni fjölin kominn á sleðann
Surtarbrandurinn verður settur á Náttúrugripasafn
Bolungarvíkur en fyrst þarf að þurrka hann og gera tilbúinn til
sýningar. |
|
| |
10. maí 2009
Sá síðasti mættur
Óðinshani sást í Önundarfirði í dag en hann er með síðustu
farfuglunum. Krían var mætt í Önundarfjörð 1. maí en þá sást einungis einn
fugl. Í dag voru komnar tæplega 100 kríur.
Nói
albinói sást á Ísafirði í dag. Þetta er albinóa (hvítur) stelkur sem hefur
líklega sést á hverju vori í ein 10 ár. Líklega er þetta ekki alltaf sami
stelkurinn því eitt vorið sáust þeir þrír saman á leirunum inni í Engidal. Á
myndinni til hliðar má sjá Nóa vorið 2005.
Mynd: BÞ © 2005
|
|
| |
20. maí 2009
Forstöðumaður Náttúrustofu Vestfjarða, Þorleifur Eiríksson
dýrafræðingur og doktor í atferlisfræði, var prófdómari við meistarvörn í
Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Þar var Sigtryggur Veigar Herbertsson að
verja ritgerð sína „Behavior of Icelandic horses in low wall boxes: The
effect of box-size and having a companion on lying, eating, aggressive and
allogrooming“. Leiðbeinendur voru Anna Guðrún Þórhallsdóttir prófessor í
umhverfisdeild og Snorri Sigurðsson framkvæmdastjóri búrekstrarsviðs.
 |
|
| |
25. júní 2009
Trjábukkur á Patreksfirði
Trjábukkur (Cerambyx scopoli ) náðist í Sjóræningjahúsinu á
Patreksfirði þann 5.Júní 2009. Bjallan kom út úr við sem var verið að nota í
svið þegar hann hitnaði við það að vera inni. Viðurinn kom í bæinn sem
pakkning utanum efni sem nota átti í höfnina en sendingin er talin hafa
komið frá Rússlandi eða Þýskalandi. Þessi tegund viðarbjalla getur orðið 28
mm á lengd. Hún finnst aðarlega í Danmörku, Svíþjóð og mið Evrópu í nágrenni
trjá eins og eik, beyki, álms, birkis og víðis, en lirfan lifir í trjánum.
Mikilvægt er að hafa samband við Náttúrustofur eða Náttúrufræðistofnun ef þú
sérð undarlegt dýr.
Long horn beetle Cerambyx scopoli was trapped in
Sjóræningjahúsið in Patreksfjörður the 5th of June 2009. The beetle came out
of a recycled wood used as a building material when it became warmer. The
wood arrived in town as a shield for a harbour´s components, believed to
have been sent from Russia or Germany. This wood beetle can reach 28 mm in
length; it is distributed mainly in Denmark, Sweden and central Europe where
they host on Angiosperm plant such as Quercus, Fagus, Ulmus but also Betula
and Salix. It is important to contact some Natural Institute if you see a
"strange" animal.
|
|
| |
26. júní 2009
Vogmær á Hólssandi

Valdimar Lúðvík Gíslason gekk fyrir skemmstu fram á sjórekna vogmær (Trachipterus
arcticus) á sandinum rétt innan við gamla flugvöllinn. Talsvert
hefur verið um slíka reka víða hér við land undanfarin ár, sem dæmi má nefna
að starfsmaður Náttúrustofu Vestfjarða hefur á þessu ári rekist á þrjú slík
dýr í höfninni í Bolungavík.
Vogmær er langur og þunnvaxinn fiskur sem alla jafnan heldur sig á talsverðu
dýpi, frá 60 - 900 metrum. Helsta einkenni fisksins er skærrauður
bakuggi eftir endilangri skepnunni.
Ekki
telst vogmær til nytjafiska. |
|
| |
30. júní 2009
Litmerkt Maríuerla í
Skutulsfirði

Sigrún
Jóhannsdóttir frá Höfða í Skutulsfirði tók eftir litmerktri maríuerlu á
veiðum í kring um húsið sitt. Maríuerlan hafði gert hreiður í undir
þakskeggi í nálægu húsi og var í óða önn við að færa mat í unga sína.
Cristian Gallo frá Náttúrustofunni tók síðan mynd af fuglinum 22. júní og
var hægt að greina litaröðina á myndinni (sjá myndina að ofan). Fyrirspurn
um maríuerluna var send til Englands og eftirfarandi upplýsingar bárust frá
Dennis Elphick í dag:
Þessi
fugl var merktur við Slapton Ley í Devon á Englandi þann 12. september 2008
og var hann þá á fyrsta ári. Þetta er einungis níundi fuglinn (litmerktur)
sem sést á Íslandi síðan var farið í öflugar merkingar í Slapton Ley október
2002 og sá þriðji í vor. Íslenskar maríuerlur fara um Slapton Ley í ágúst og
september en fuglar frá Englandi og Skotlandi í október og nóvember.
Íslenskar maríuerlur hafa líklega vetursetu í suður hluta Mauritaníu og
Senegal.
|
|
| |
1. júlí 2009
Burstaormur í Súðavík
Á myndinni er risaskeri (Nereis
virens),
sem er stórvaxinn burstaormur, sem finnst rekinn á fjörur þó eiginlegt
búsvæði tegundarinnar sé neðan fjöru. Erlendis er tegundin oft notuð í beitu,
en lítið eða ekkert hér á landi. Ættingjar risaskerans lifa í íslenskum
fjörum, en eru miklu minni, þ.e. leiruskeri
(Nereis
diversicolor), sem er á leirum og fjöruskeri (Nereis
pelagica),
sem er neðst í grýttum fjörum. Myndina tók Þórður Sigurðsson frá
Súðavík.
|
|
| |
2. júlí 2009
Kría á eggi

Reynir Skarsgård náði
þessum myndum af kríu á eggi er hann var staddur í Skálavík. Myndirnar
eru teknar síðastliðna helgi.
Kríuvarpið er um það bil að komast á fullt
skrið á Vestfjörðum. Það hefur gengið ágætlega í Holtsodda í
Önundarfirði og er þegar komið dálítið af ungum þar. Í Bolungarvík er
það um einni til tveimur vikum seinna en virðist þrátt fyrir það vera með
mesta móti í ár. Kríuvarpið í Flatey er lélegt í ár eins og síðustu
þrjú ár (sjá frétt á Vísir:
http://visir.is/article/20090626/FRETTIR01/574754224). |
|
| |
14. júlí 2009
Æðarkóngur
(Sometria spectabilis) sást við Ósvör um helgina, 11.-12. júlí.
Mynd: Æðarkóngur á Suðureyri 5. mars BÞ © 2006
|
|
| |
15. júlí 2009
Jaðrakanamerkingar á Vestfjörðum
Í síðustu
viku stóðu yfir jaðrakana litmerkingar á Vestfjörðum og voru merktir um 40
ungar á einni viku. Ungarnir fá litmerki sem hægt er að sjá úr fjarlægð með
kíkir og þar með þekkja einstaklinginn aftur. Ungarnir voru merktir aðallega
við Reykhóla, Dýrafirði, Önundarfirði og Bolungarvík. Þetta er sjöunda árið
í röð sem ungar og fullorðnir eru litmerktir á Vestfjörðum en fyrstu þrjú
árin voru aðeins fáeinir fuglar merktir. Síðustu fjögur ár hefur alþjóðlegur
hópur farið um landið og merkt jaðrakana undir stjórn Pete Potts.
Litmerktir jaðrakanar frá Vestfjörðum hafa sést á vetrarstöðum á Englandi,
Írlandi, Hollandi, Frakklandi, Portúgal og Spáni. Nokkrir ungar hafa síðan
sést aftur á Vestfjörðum, t.d. sást einn fugl í gær í Dýrafirði sem var
merktur á Reykhólum fyrir tveimur árum.
Fyrri
myndin hér að neðan sýnir Pete og Ruth ásamt starfsmönnum Náttúrustofu
Vestfjarða (Fjóla, Cristian og Snædís) og Bernódusi á Mýrum í Dýrafirði.
Ruth og Bernódus halda litmerktum jaðrakan ungum. Seinni myndin er tekin á
Holtsodda í Önundarfirði og á henni má sjá Fjólu og Þorgerði halda á
óðinshana ungum sem Pete fangaði.

Myndir: BÞ/NV © 2009
|
|
| |
6. ágúst 2009
Galdrafluga
(Bibio pomonae) í merki Náttúrustofu Vestfjarða
Í
merki Náttúrustofu Vestfjarða er galdrafluga,
en að undanförnu
hefur borið mikið á henni á Vestfjörðum allt frá Ströndum suður á
Barðaströnd. Þetta gerist á nokkurra ára fresti en ástæður þess eru ekki
ljósar.
Galdraflugan, sem
líka er kölluð galdralöpp er mjög áberandi á flugi þar sem hún hangir
silalega í loftinu með rauða fæturna niður. Við mökun
tengjast þessar hægfleygu flugur saman á afturendanum og haldast saman í
langan tíma, líka á flugi.
Fræðiheiti
galdraflugunnar er
Bibio pomonae
(Fabricius 1775) og er hún
ein af þremur tegundum á Íslandi af hármýsætt (Bibionidae).
Hármýsætt er ein ætt mýflugna (Nematocera) sem er undirættbálkur tvívængja (Diptera).
Í þessum undirættbálki eru
meðal annars moskítóflugur, rykmý, bitmý, hrossaflugur, sveppamý og fleiri
tegundir. Aðrar tegundir hármýs á Íslandi eru þerrifluga eða þerrilöpp (B.
nigriventris) og
sóttarfluga eða sóttarlöpp (Dilophus femoratus).
Lengd galdraflugunnar er
10 – 13 mm og vænglengdin
8-12 mm. Hún er stærst,
hármýstegunda, en sóttarflugan er af svipaðri stærð og þerriflugan
Galdraflugur eru eins og
aðrar mýflugur með þráðlaga fálmara og mjóan búk. Kynin
þekkjast í sundur á því að augun
koma saman á karldýrinu en ekki á kvendýrinu. Eins og áður sagði er efri
 hluti
lappa flugunnar rauður og
er það svo á báðum kynjum.
Búkur lirfunnar er alsettur vörtum og haus hennar er greinilegur.
Kvenfluga
Karlfluga
Myndir: BÞ/NV 2009
Lirfurnar lifa
í rökum jarðvegi og
í rotnandi jurtaleifum og er flugan því
gjarnan í görðum og þar sem hún finnur girnilegar laufhrúgur.
Galdraflugan er mest á ferli síðari hluta
sumars á norðurlandi og Vestfjörðum en hinar tvær tegundirnar meira fyrri
hluta sumars og þerriflugan mest á suðurlandi. Flugurnar sverma stundum í
gríðarlegu magni.
Hér fyrir neðan eru myndir
sem voru teknar 6. ágúst 2009 af galdraflugum.

Myndir: BÞ/NV 2009
|
|
| |
14.
ágúst 2009
Hvalveiðistöð Baska og kuml á Strákatanga í Steingrímsfirði
Fornleifadeild Náttúrustofu Vestfjarða og Strandagaldur ses., hafa síðustu
ár staðið fyrir sameiginlegri rannsókn á fornminjum á Strákatanga í
Kaldrananeshreppi, Strandasýslu. Megin markmið rannsóknarinnar er uppgröftur
á hvalveiðistöð útlendinga frá 17. öld og þegar hafa verið grafin upp tvö
hús og stór lýsisbræðsluofn. Í sumar var grafin upp stór ferhyrnd bygging og
kom í ljós að hún er að öllum líkindum geymsla fyrir lýsistunnur. Að auki
var grafinn könnunarskurður í minni bræðsluofn, utar á tanganum og er
líklegt að sá ofn sé eldri en bræðsluofninn sem grafinn var upp sumarið
2006. Í sumar hófst einnig uppgröftur á gröf á tanganum og kom þá í ljós
kuml frá landnámsöld. Kumlinu hafði verið raskað af grafræningjum og ekkert
var eftir af haugfé fyrir utan
neðri
hluta sverðslíðurs og á því var fagurlega skreyttur döggskór. Beinum
kumlbúans hafði verið ýtt í eina stóra hrúgu í norðurenda kumlsins.
Rannókninni á Strákatanga líkur svo um miðjan ágúst.
Döggskór. Mynd RE
|
|
| |
14.
ágúst 2009
Strútsegg o.fl. til Náttúrustofunnar/Náttúrugripasafnið
Náttúrugripasafn Bolungarvíkur fékk strútsegg að gjöf frá Spáni í vikunni.
Systkynin Leonardo og
Violeta
Magnusson ásamt föður sínum, ömmu og afa gáfu safninu strútsegg sem er ættað
úr strútabúi í Cuenca héraði á Spáni. Meira um þetta má sjá á bb.is
http://bb.is/Pages/26?NewsID=136099
Mynd: Gunnar Gunnarsson - tekið
af fréttavef bb.is.
Á
safninu er einungis fuglar sem eru varpfuglar á Íslandi eða fuglar sem hafa
flækst til landsins. Strútseggið passar því ekki varpfugla faunu Íslands en
það verður sýnt við ákveðin tækifæri. Einnig verður það til sýnis við
skólaheimsóknir.
Náttúrustofan/Náttúrugripasafnið fékk að gjöf eggjasafn frá Dagnýju
Viggósdóttur. Einnig voru aðrir munir með
eggjunum eins og t.d. búrhvalstennur. Safnandi var Óskar Rúnar Samúelsson.
Náttúrustofan/Náttúrugripasafnið þakkar þessum aðilum fyrir þessar gjafir.
|
|
| |
14.
ágúst 2009

Ívar Örn
Hauksson frá Bíldudal sendi okkur þessar myndir af vogmær (Trachipterus
arcticus)
sem hann og synir hans gengu fram á
í fjörunni í botni
Patreksfjarðar þann 11. ágúst 2009.
Nokkuð hefur verið um að
vogmeyjar hafi fundist í fjörum á Vestfjörðum þetta sumarið fyrir utan þessa
sem fannst nálægt Patreksfirði. Sex hafa fundist í Bolungarvík sem
Náttúrustofunni er kunnugt um. Sú fyrsta fannst við Hólsá 15. maí, þrjár
sáust í höfninni og önnur á Hólssandi 26. júní. Einnig fannst ein
vogmær sjórekin við Ósvör þann 22. júlí síðastliðin. Samkvæmt vefsíðunni
sudureyri.blog.is fundust einnig tvær vogmeyjar í Suðureyrarhöfn, dagana 19.
og 20. júní, en myndir af annarri þeirra sem var allstór má sjá á
fyrrnefndri heimasíðu.
Vogmær er
langvaxinn og þunnvaxinn fiskur sem getur náð allt að 3 m lengd. Hún er
silfurgljáandi að lit með löngum rauðum bakugga sem nær frá hnakka að
stirtluenda. Sporðblaðkan er með langa uppvísandi geisla og minnir dálítið á
blævæng. Hausinn er lítill en augun stór.
Vogmær er
miðsævis- og djúpfiskur sem veiðst hefur í ýmis veiðarfæri á 60-900 m dýpi.
Nytsemi er þó lítil af henni þrátt fyrir að hún sé æt. Stafar þetta einkum
af því hve lítið veiðist af henni og þeirri ástæðu að hún þykir ekki mikið
lostæti.
|
|
| |
25 ágúst 2009
Garðaklaufhali í 3X
A
european earwig (Forficula auricularia) was captured in 3X Stál in
Ísafjörður the 17th of august. Likely bring in with a fruit basket, this
insect of the order Dermaptera is circa 1,5 cm long and is a male. This
group of insect counts up to 1800 species that usually have a tongs like
tail used for protection and in copulation but it is not
poisonous or harmful to humans. They are mainly nocturnal and feed on plants
and fruits but also on other insects, like aphids.
This insect (Forficula auricularia) was
found first in Reykjavik in 1902 but they are now habitual visitors in
Iceland mainly introduce with vegetables and fruit cargos. They are likely
to be found in houses and greenhouses where they could survive and
reproduce. They are very common in Europe from where they spread almost
worldwide but they are not dangerous to crops if not present in high
density. For more info visit
http://www.ni.is/poddur/gardur/nr/983.

Garðaklaufhali (Forficula auricularia)
fannst í 3X Stál á Ísafirði 17. ágúst síðastliðinn. Aðal fæða þessara dýra
er rotnandi plöntu og dýraleifar auk þess sem þeir éta önnur smærri skordýr
eins og blaðlýs. Garðaklaufhalar eru einkar sólgnir í skemmda ávexti enda
fannst dýrið innan um plómur.
Umrætt skordýr var um 1,5 cm langt karldýr af
ættkvísl Dermaptera. Í Þessum hóp skordýra eru um 1800 tegundir sem
yfirleitt hafa nokkurs konar griptöng eða “klauf” á afturendanum. Klauf
þessi er notuð til varnar og við æxlun en er hvorki
eitruð né hættuleg mönnum.
Garðaklaufhali fannst fyrst í Reykjavík árið
1902 en kemur nú reglulega til landsins með grænmeti og ávöxtum. Þeir
finnast einkum í gróðurhúsum og öðrum húsum, þar sem þeir hugsanlega geta
fjölgað sér. Í Evrópu eru þeir algengir og dreifast frá henni til nær allra
heimshorna, þeir eru þó ekki skaðvaldar á uppskeru nema í miklum þéttleika.
Meiri upplýsingar um garðaklaufhala má finna á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar
Íslands
http://www.ni.is/poddur/gardur/nr/983
Myndir: Gallo/NV 2009
|
|
| |
29 ágúst 2009
Stefnumót á Ströndum
Þann 29. ágúst síðastliðinn var opnuð atvinnu- og menningarsýningin
„Stefnumót á Ströndum“ í félagheimilinu á Hólmvík. Um 60 aðilar taka þátt í
sýningunni sem er mjög fjölbreytt.
Náttúrustofa Vestfjarða
er með tvö veggspjöld á sýningunni, sjá pdf skjöl hér að ofan. Forseti
Íslands opnaði sýninguna að viðstöddu fjölmenni. Í tilefni af sýningunni
var hlaðin varða til framtíðar. Grjót í vörðuna kom úr ýmsum áttum en
sýningaraðilar komu með grjót heiman frá sér. Grjót frá Náttúrustofunni var
tekið úr Syðridal og einnig úr Öskubak (Skálavíkurmegin) en talið er að þar
sé elsta berg landsins að finna. Sjá nánar á vefnum strandir.is
(http://strandir.is/index.php?option=com_content&task=view&id=8048&Itemid=2
)
Sýningin er opin frá 1300
– 1700 alla daga til 15. september. Áætlað er að sýningin verði
svo sett upp aftur á sama stað sumarið 2010.
|
|
| |
17. september 2009
Gulygla á Hornströndum
Víðir
Ólafsson frá Ísafirði fann náttfiðrildi í um 300 metra hæð í Glúmsdal í
Fljótavík á Hornströndum. Dýrið fannst dautt í byrjun september og reyndist
vera um 3 cm á lengd. Um er að ræða tegundina gulyglu (Noctua pronuba)
sem finnst hér á landi bæði sem villt íslensk tegund og sem flækingur (http://www.ni.is/dyralif/smadyr/greinar/nr/104).
Fiðrildin dragast að ljósi og drekka blómasafa. Á efri myndinni má sjá
upprúllaða munnparta sem þau nota til að drekka safann með. Lirfur þessarar
tegundar dvelja neðanjarðar yfir daginn en fara út á næturnar og nærast á
jurtkenndum plöntum og grasi.

(Myndir Gallo/NV 2009)
|
|
| |
1. október 2009
Fimmta náttúrustofuþing Samtaka Náttúrustofa verður haldið í
samkomuhúsinu í Sandgerði 8. október, en það er Náttúrustofa Reykjaness sem
sér um undirbúninginn.
Dagskrá þingsins
má sjá á vef Samtaka
náttúrustofa.
|
|
| |
29. október 2009
Fimmtudaginn 29. október flytur Aðalsteinn Örn Snæþórsson
fyrsta fræðsluerindi á vegum Samtaka Náttúrustofa á þessu hausti.
Erindið nefnir hann: "Fiðrildi fylla Jökulsárgljúfur"
Fyrirlesturinn hefst kl. 12:15, og er lokið kl. 12:45. Nánar má sjá
hvar hægt er að fylgjast með erindinu í auglýsingunni hér að neðan.

|
|
| |
29. október 2009
Sést hefur til gráhegra í og við Bolungavík undanfarið. Elvar
Stefánsson sá fugl við Miðdalsodda í Syðridalsvatni í morgun og sést hefur
til fuglsins við Hólsárósa í Bolungavík.
Gráhegri (Ardea
cinerea) er af Hegraætt (Ardeidae) og er algengur flækingur á Íslandi.
Myndina hér að
neðan tók Böðvar Þórisson í desember 2002 hér í Bolungavík.

|
|
| |
29. október 2009
Katharina Sommermeier hjá Náttúrustofu
Vestfjarða heldur fyrirlestur um Gróðurkortagerð á Vestfjörðum í Hópinu á
Tálknafirði þann 29. október klukkan 12:30. Fyrirlesturinn er haldinn í
samstarfi við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða. Boðið verður upp á súpu, brauð
og kaffi á 1000 krónur.
|
|
| |
26. nóvember 2009
Annar fyrirlestur þessa vetrar á vegum SNS
verður haldinn fimmtudaginn 26. nóvember og hefst kl. 12:15. Það er
Þórdís Vilhelmína Bragadóttir líffræðingur á Náttúrustofu Norðurlands vestra
sem flytur erindi sitt: "Fuglalíf á votlendissvæðum Skagafjarðar"
Hægt er að fylgjast með fyrirlestrinum í Rannsókna og fræðasetri Háskóla
Íslands í Bolungavík, Patreksskóla á Patreksfirði og í Háskólasetrinu við
Suðurgötu á Ísafirði. Öllum er velkomið að fylgjast með
fyrirlestrinum.

|
|
| |
10.
desember
2009
Jeppi
Náttúrustofu Vestfjarða sómir sér vel uppi á fjallstoppi í rannsóknarferð
Snjóflóðasetursins á Ísafirði, enda er það hluti af samstarfi
rannsóknastofnana á Vestfjörðum að skiptast á tækjum.
Að
sjálfsögðu stóð jeppinn sig með prýði í leiðangrinum. Í baksýn
er ratsjárstöðin á Bolafjalli.

|
|
| |
31.
desember
2009
Deildarmyrkvi varð á tungli á
gamlárskvöld og sást hann vel á Vestfjörðum. Meðfylgjandi mynd var
tekin um kl. 20:00 á gamlárskvöld í Bolungavík.

|
|
|
|
|
|
|
|