Fuglafréttir
Fréttir
af flækings- og farfuglum eru vel þegnar á Náttúrustofu Vestfjarða. (bodvar@nave.is).
Nátturustofan birtir fréttir af flækingsfuglum á þessari síðu og kemur þeim
áfram á eftirfarandi síðu sem er um komur flækingsfugla á Íslandi.
http://www.hi.is/~yannk/birdnews.html
Aðrar fuglasíður Fuglafréttir eftir
árum:
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002 20.maí 2011
Fuglar í hretinu.
Þetta hret sem nú er að ganga yfir hefur misjöfn áhrif á
varpfuglana. Þeir fuglar sem eru byrjaðir í varpi geta reynt að harka þetta af
sér eins og sést á myndinni (sandlóa). Aðrir gefast upp og reyna aftur síðar. Smáfuglar
gætu átt erfitt með að ná sér í fæðu og geta því epli, maískorn o.fl. hjálpað
þeim að þrauka þetta hret.

Sandlóa á hreiðri í Bolungarvík 19. maí 2011.
20. maí 2011
Lindastelkur (Actitis hypoleucos) Common sandpiper á Syðridalsvatni
Lindastelkur var á Syðradalsvatni í Bolungarvík í gærdag
(19. maí). Þetta er aðeins í 11. skipti sem hann sést hér á landi. Vegna veðurs
gekk erfiðlega ná sæmilegri mynd en látum eina fylgja.
Lindastelkur verpir um alla Evrópu og hluta af Asíu. Hann hefur
vetursetu í Afríku, Ástralíu og Asíu. Búsvæði hans er við vötn og ár og lifir hann á
hryggleysingjum, aðallega á skordýrum.

|
| Á myndinni eru einnig jaðrakan, tildra, stelkur,
æðarfugl, maríuerla og þúfutittlingur. |
18. maí 2011
Krían komin á Hólssand
Starfsmenn Náttúrustofu Vestfjarða sáu hóp af kríum á Hólssandi við Bolungavík um kl. 10:30 í morgun.
16.maí 2011
Fuglaskoðunardagur var í boði Náttúrustofunnar og heilsubæjarins síðastliðinn laugardag.
Sex mættu í ferðina og sáust 24 tegundir fugla:
|
Lómur, himbrimi, álft, grágæs, toppönd, gulönd, skúfönd,
duggönd, stokkönd, urtönd, æðarfugl
stelkur, jaðrakan, sandlóa, spói, hrossagaukur, óðinshani, heiðlóa,
svartbakur, hvítmáfur, hettumáfur, maríuerla, þúfutittlingur og tildra
|
12. maí 2011
Bæjarsvala í Bolungarvík
Gunnar Sæmundsson kom fyrr í dag með bæjarsvölu, Delichon urbicum, sem
hafði villst inn í húsnæði Drymlu í Bolungavík. Starfsmenn
Náttúrustofu Vestfjarða mynduðu fuglinn í bak og fyrir og síðan var
honum sleppt. Bæjarsvölur eru nokkuð algengir flækingar
hérlendis, en ekki eru mörg dæmi þekkt um þær á Vestfjörðum.

9. maí 2011
Fuglaskoðunardagur á Syðridalsvatni næstkomandi laugardag.
Laugardaginn 14. maí klukkan 13:00 verður fuglaskoðunardagur á
Syðridalsvatni í Bolungarvík. Fuglaskoðunin er á vegum Náttúrustofu
Vestfjarða og Heilsubæjar Bolungarvíkur og verður Böðvar Þórisson með
leiðsögnina.
Farið
verður frá Geirastöðum, en hægt verður að leggja bílnum þar. Gengið
verður inn með vatninu og athugað með fugla, en um 20 tegundir fugla
sjást
á vatninu og í nágrenni við það.
Látið ekki þennan skemmtilega viðburð fram hjá ykkur fara.

Mynd: Böðvar Þórisson. Syðridalsvatn 2004.
29.4.2011
Krían komin vestur!
Böðvar
Þórisson, starfsmaður Náttúrustofu Vestfjarða var rétt í þessu á ferð í
Önundarfirði og kom þar auga á fjórar kríur. Það
fer því vart á milli mála að
vorið er á næsta leiti.

18.4.2011
Bleshæna (Fulica
atra) var í höfninni í Bolungarvík í gær (17. apríl). Hún er flækingur hér
á landi en er tiltölulega algeng í Evrópu og er útbreiðsla hennar alla leið til
Asíu. Bleshæna er farfugl í norður Evrópu og er líklegt að hún hafi verið á
leiðinni eitthvað norður þegar hún endaði í Bolungarvík. Búsvæði hennar eru
aðallega vötn og tjarnir. Fæða hennar er bæði úr plöntu- og dýraríkinu en er þó
aðallega vatnagróður.
Það hafa 271 fugl sést hér á landi frá
1819-20061 svo þetta er tiltölulega algengur flækingur. Bleshæna
sást í apríl 2003 á sama stað þ.e. í höfninni í Bolungarvík.

1- http://notendur.hi.is/yannk/status_fulatr.html
12.apríl 2011
Sjaldgæfur flækingur á Gunnbirni ÍS
Áhöfnin Gunnbirni ÍS fékk óvenjulegan gest norður af landinu
í gær (11. apríl). Hann var fangaður og færður til hafnar á Ísafirði. Þessi
gestur er sjaldgæfur flækingur, skeggþerna (Chlidonias hybrida). Helst
er hægt að lýsa henni sem lítilli kríu.Varpkynni hennar eru í suður og suðaustur
Evrópu, Asíu og Ástralíu. Hún verpur við vötn, ár og annað votlendi. Hefur
vetursetu í Afríku. Er sjaldgæfur flækingur á Bretlandseyjum og hefur aðeins
sést tvisvar áður hér á landi.
Skeggþernunni var gefin loðna að éta og síðan sleppt upp úr
hádeginu í Bolungarvík. Hún sást síðast á flugi í átt að höfninni.

12.apríl 2011
Farfuglar og flækingar
Heiðlóur sáust í Dýra-, Önundar- og Steingrímsfirði síðast
liðinn sunnudag og í gær sáust þær á Ísafirði og í Bolungarvík. Tildrur sáust í
Dýra-, Önundar- og á Ísafirði á sunnudaginn.
Í gær voru 160 margæsir á Ísafjarðarpolli og ein við
Ósvör í Bolungarvík. Um 30 margæsir sáust í Álftafirði þann 10. apríl.
Margæs er með vetrarstöðvar á Írlandi og kemur við á Íslandi á leið sinni til
Kanada. Þær eru flestar í nágrenni Reykjavíkur (Grunnafjörður, Álftanes) en
einnig í Álftafirði á Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum sjást stundum nokkrar en
líklega hefur aldrei sést svona stór hópur á Ísafjarðarpollinum.
Guðmundur
A. Guðmundsson fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun hefur séð um vöktun á þeim
hér á landi og má finna meiri upplýsingar um lífshætti þeirra á heimasíðu
Náttúrufræðistofnunar.
http://www.ni.is/dyralif/fuglar/Voktunmargaesa/
Landsvölur hafa verið að sjást á landinu um helgina. Ein
sást á Laugalandi í Ísafjarðardjúpi, ein á Patreksfirði og ein í Bolungarvík
(sjá mynd). Landsvölur flækjast oft til Íslands á vorin og hafa stundum orpið
hér á landi.
Myndirnar eru teknar í fjárhúsi í Bolungarvík 11. apríl
2011.
 25. febrúar 2011
Elísabet Pétursdóttir á Inggjaldssandi hefur verið að fylgjast með
tveimur vepjum (Vanellus
Vanellus)
við bæinn. Laugardaginn 19. febrúar sá hún staka
vepju en þær voru orðnar tvær skömmu síðar. Þær hafa mest haldið sig í
mýrinni skammt neðan við bæinn eða við fjárhúsin og hafa verið að kroppa
skordýr úr heymoði.
8. nóvember 2010
Silkitoppur á Vesfjörðum
Tíu silkitoppur (Bombycilla
garrulus) sáust í Bolungarvík á laugardaginn og ein í Súðavík á
föstudaginn. Silkitoppur hafa verið að sjást víða um land frá því um
mánðarmótin.
Silkitoppa er norðlæg tegund, verpir í
barrskógum í Skandinavíu, Rússland, Síberíu og N-Ameríku. Hún flækist
stundum til Íslands og þá oft í stórum flokkum.
5. nóvember 2010
Silkitoppur í Fremri Gufudal Svandís Reynisdóttir sá tíu silkitoppur (Bombycilla
garrulus) í Fremri Gufudal fyrr í dag. Fregnir hafa
einnig borist af því að silkitoppur hafi sést við Mýrar í Dýrafirði fyrr í
þessari viku. Silkitoppur hafa áður sést á Vestfjörðum og þá
síðla hausts.

Mynd: BÞ©2002
19. október 2010
Haftyrðill í Bolungarvík
Sólveig
kom með haftyrðil (Alle alle) til Náttúrustofunnar í gær. Hún og
faðir hennar fundu fuglinn upp í bæ en það amaði ekkert að honum. Þau fóru
síðan með hann niður að sjó og slepptu honum þar.
Haftyrðill er einn stærsti svartfuglastofninn
í Norður-Atlantshafi. Hann var varpfugl hér á landi en þetta voru fá pör.
Hann kemur til landsins að hausti og geta t.d. verið stórir hópar út af
Austfjörðum. Hér á Vestfjörðum sjást yfirleitt nokkrir í vetrartalningum í
kringum áramót. Haftyrðill finnst stundum upp á þurru landi og hafa þeir þá
líklega borist undan vindi. 12.ágúst 2010
Brúsar
Tvær tegundir af brúsum
(Gaviidae) verpa hér á landi, himbrimi (Gavia immer) og lómur (Gavia
stellata). Himbriminn verpir aðallega á hálendinu en það má sjá hann út á
sjó bæði sumars og veturs. Í ár reyndi hann varp við Syðradalsvatn í
Bolungarvík í fyrsta sinn svo vitað sé og kom hann upp einum unga. Einnig
verpir á sama stað lómur en hann er aðallega á láglendinu. Þó þessar
tegundir séu skyldar þá kemur þeim ekki allt of vel saman yfir varptímann
því báðar tegundir eru mjög óðalsríkar.
Guðmundur Bjarnason tók
mynd af himbrimum upp á Helluvatni við Flókalund og lómum á lítilli tjörn
við Vatnsdalsvatn nú í sumar.

21. júní 2010
Reynir Skarsgaard tók þessar myndir hér fyrir
neðan af álftarfjölskyldu í Skálavík. Árni Þór tók mynd af toppandarkollu
með hreiður á frekar óvenjulegum stað eða inn í fjárhúsi á Alviðru í
Dýrafirði.

18. júní 2010
Æðarkóngur á Ísafirði
Þorleifur Ágústsson tók mynd af þessum
æðarkóngi (Somateria spectabilis) á Ísafirði í gærdag (17.
júní).
Það hafa sést tveir æðarkóngar í æðarvarpinu við Ísafjarðarflugvöll núna í
júní. Einnig hafa verið upp í tveir æðarkóngar í varpinu á Litleyri við
Bíldudal í vor.
Mynd: ÞA 2010
4. maí 2010
Mandarínönd á Ísafirði
Mandarínsteggur
(Aix galericulata) sást síðastliðinn föstudag (30. apríl) á tjörn inn í
Engidal á Ísafirði. Árný Herbertsdóttir náði nokkrum myndum af honum og má sjá
þær hér til hliðar.

Mandarínönd verpur í A-Asíu en stofninn hefur
verið á niðurleið í Kína og austur Rússlandi vegna eyðileggingar á búsvæðum
og mikils útflutnings á tegundinni. Mandarínöndin hefur verið flutt til
Evrópu og þar hefur hún sloppið úr haldi og
myndað
varpstofn. Í byrjun 20 aldar var varpstofninn í Bretlandi um 1000 pör. Þessi
steggur er líklega að koma frá
Bretlandi í fylgd með farfuglunum.
Myndir: Árný Herbertsdóttir 2010.
3. maí 2010
Krían komin til Vestfjarða.
Ein
kría sást í Bolungarvík 30. apríl og 1. maí. Í
gær (2. maí) sáust 16 kríur í Önundarfirði. Eru þetta líklega fyrstu
kríurnar sem sjást á Vestfjörðum þetta árið.
Mynd BÞ
Spói sást 1. maí í Bolungarvík og einnig voru
komnir jaðrakanar.
29. apríl 2010
Heiðlóan er komin til Bolungavíkur, Arngrímur
Kristinsson sá lóu við Minni-Hlíð í gær. Þau Elínbjörg og Bergsveinn á
Mýrum í Dýrafirði sáu máríuerlu í fjárhúsunum, í fyrradag, einnig hafa þau
séð hrossagauk, þúfutittling og spóa. Katrín Gunnarsdóttir á Þingeyri
sá máríuerlu og heyrði í hrossagauki. Ekki er vitað úr hvaða höfuðátt
heyrðist í hrossagauknum.
11. apríl 2010
Farfuglafréttir
Heiðlóan er komin til
Vestfjarða. Í gær sáust nokkrar í Önundarfirði og í Dýrafirði sá Sighvatur
frá Höfða í Dýrafirði þær fyrstu rétt fyrir kl. 10 í gærmorgunn.
Tildrur og stelkar sáust einnig
í Önundarfirði í gær og ein sandlóa. Í dag voru fyrstu stelkarnir mættir til
Bolungarvíkur ásamt þremur tildrum.
Þrír
gráhegrar sátu á sjókví í Súðavík þann 10. apríl. Einn glóbrystingur hefur
verið að sjást síðustu vikur í garði í Súðavík (sjá mynd).
Mynd: Þórður Sigurðsson Súðavík.
Ein litmerkt sandlóa frá
Dýrafirði sást þann 10. apríl við strönd Normandí (norðurströnd Frakklands).
Þetta er kvenfugl sem var merktur við Sveinseyri við Dýrafjörð sumarið 2007.
2. mars 2010
Fuglafréttir
Gráhegrar
hafa verið að þvælast í Súðavík í allan vetur og sáust þrír saman fyrir
þremur dögum. Á Þingeyri var svarþrastapar og einn gráþröstur í mat fyrir
helgi hjá Katrínu Gunnarsdóttur.
Mynd: BÞ
2007, svarþröstur í Bolungarvík.
Tvær
duggendur sáust inn í botni Skutulsfjarðar í gær. Þær hafa ekki verið hér í
vetur svo hugsanlega eru hér um að ræða farfuglar en þær væru þá frekar
snemma á ferðinni.
Tjaldar
(um 60 fuglar) hafa verið í allan vetur við Tunguársós í Skutulsfirði og
nokkrir í Dýrafirði. Í gær sáust nokkrir tjaldar í Önundarfirði og þeim
hafði fjölgað í Dýrafirði. Hugsanlega voru þetta fuglar frá Skutulsfirði en
tjaldar sem hafa vetursetu í Evrópu ættu að fara koma á næstu dögum til
landsins.
28. janúar
2010
Fyrsti fjarfundafyrirlestur
á vegum SNS á þessu ári verður í hádeginu þann 28. janúar næstkomandi.
Að þessu sinni kemur fyrirlesturinn frá Náttúrustofu Austurlands og nefnist:
"Æðarfugl Somateria Mollissima -Gerð og samsetning ungahópa-"

5. janúar
2010
Vetrartalning á Vestfjörðum að
mestu lokið.
Hér fyrir neðan má sjá
heildartalningu á norðanverðum Vestfjörðum en það verða birtar síðar fleiri
talningar. Á norðanverðum Vestfjörðum var talið í: Bolungarík, Óshlíð,
Skutulsfirði, Álftafirði, Súgandafirði, Önundarfirði og Dýrafirði.
Helstu niðurstöður: æðarfugl
algengastur eða tæplega 8800 fuglar og hávellan næst algengust eða um 1700
fuglar. Flestar hávellur sáust í Súgandafirði eða 6-700 fuglar. Fjórir
æðarkóngar sáust og voru tveir í Dýrafirði, einn í Súgandafirði og einn við
brúna yfir Önundarfjörð. Einn gráhegri sást í Bolungarvík og einn Í Súðavík.
Heildarfjöldi fugla svipaður og á síðasta ári og má nefna að aðeins munaði
um 70 æðarfuglum á milli ára.

Æðarkóngur við Suðureyri 2006 (mynd BÞ).
| Tegund | Samtals | Tegund | Samtals | Tegund | Samtals | Lómur
| 5 | Straumönd | 264 | Rita | 1 | |
Himbrimi | 1 |
Æðarfugl | 8755 |
Haftyrðill | 5 | |
Ógr. brúsi | 2 |
Gulönd | 12 |
Teista | 55 | |
Dílaskarfur | 146 |
Toppönd | 408 |
Músarrindill | 1 | |
Toppskarfur | 1 |
Fálki | 2 |
Svartþröstur | 3 | |
Ógr. skarfur | 49 |
Rjúpa | 6 |
Skógarþröstur | 2 | |
Gráhegri | 2 |
Tjaldur | 67 |
Snjótittlingur | 1121 | |
Álft | 1 |
Stelkur | 10 |
Auðnutittlingur | 10 | |
Grágæs | 1 |
Sendlingur | 352 |
Hrafn | 140 | |
Stokkönd | 817 |
Silfurmáfur | 3 |
Æðarkóngur | 4 | |
Urtönd | 4 |
Svartbakur | 75 |
Helsingi | 1 | |
Rauðhöfðaönd | 21 |
Hvítmáfur | 595 |
Samtals fuglar |
15.236 | |
Skúfönd | 4 |
Bjartmáfur | 276 |
Fjöldi tegunda | 37 | |
Hávella | 1667 |
Hettumáfur | 7 |
|
|
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Þorleifur Eiríksson
|