|
|
Fuglafréttir 2009 |
|
|
|
|
|
|
|
Fuglafréttir eftir
árum:
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002 |
|
|
|
|
|
|
|
29. október 2009
Sést hefur til gráhegra í og við Bolungavík undanfarið. Elvar
Stefánsson sá fugl við Miðdalsodda í Syðridalsvatni í morgun og sést hefur
til fuglsins við Hólsárósa í Bolungavík.
Gráhegri (Ardea
cinerea) er af Hegraætt (Ardeidae) og er algengur flækingur á Íslandi.
Myndina hér að
neðan tók Böðvar Þórisson í desember 2002 hér í Bolungavík.

|
|
|
|
15. júlí 2009
Jaðrakanamerkingar á Vestfjörðum.
Í síðustu
viku stóðu yfir jaðrakana litmerkingar á Vestfjörðum og voru merktir um 40
ungar á einni viku. Ungarnir fá litmerki sem hægt er að sjá úr fjarlægð með
kíkir og þar með þekkja einstaklinginn aftur. Ungarnir voru merktir aðallega
við Reykhóla, Dýrafirði, Önundarfirði og Bolungarvík. Þetta er sjöunda árið
í röð sem ungar og fullorðnir eru litmerktir á Vestfjörðum en fyrstu þrjú
árin voru aðeins fáeinir fuglar merktir. Síðustu fjögur ár hefur alþjóðlegur
hópur farið um landið og merkt jaðrakana undir stjórn Pete Potts.
Litmerktir jaðrakanar frá Vestfjörðum hafa sést á vetrarstöðum á Englandi,
Írlandi, Hollandi, Frakklandi, Portúgal og Spáni. Nokkrir ungar hafa síðan
sést aftur á Vestfjörðum, t.d. sást einn fugl í gær í Dýrafirði sem var
merktur á Reykhólum fyrir tveimur árum.
Fyrri
myndin hér að neðan sýnir Pete og Ruth ásamt starfsmönnum Náttúrustofu
Vestfjarða (Fjóla, Cristian og Snædís) og Bernódusi á Mýrum í Dýrafirði.
Ruth og Bernódus halda litmerktum jaðrakan ungum. Seinni myndin er tekin á
Holtsodda í Önundarfirði og á henni má sjá Fjólu og Þorgerði halda á
óðinshana ungum sem Pete fangaði.
 
Myndir: BÞ/NV © 2009

14. júlí 2009
Æðarkóngur
(Sometria spectabilis) sást við Ósvör um helgina, 11.-12. júlí.
Mynd: Æðarkóngur á Suðureyri 5. mars BÞ © 2006
|
|
|
|
2. júlí 2009
Kría á eggi

Reynir Skarsgård náði
þessum myndum af kríu á eggi er hann var staddur í Skálavík. Myndirnar
eru teknar síðastliðna helgi. Kríuvarpið er um það bil að komast á fullt
skrið á Vestfjörðum. Það hefur gengið ágætlega í Holtsodda í
Önundarfirði og er þegar komið dálítið af ungum þar. Í Bolungarvík er
það um einni til tveimur vikum seinna en virðist þrátt fyrir það vera með
mesta móti í ár. Kríuvarpið í Flatey er lélegt í ár eins og síðustu
þrjú ár (sjá frétt á Vísir:
http://visir.is/article/20090626/FRETTIR01/574754224). |
|
|
|
30. júní 2009
Litmerkt Maríuerla í
Skutulsfirði

Sigrún
Jóhannsdóttir frá Höfða í Skutulsfirði tók eftir litmerktri maríuerlu á
veiðum í kring um húsið sitt. Maríuerlan hafði gert hreiður í undir
þakskeggi í nálægu húsi og var í óða önn við að færa mat í unga sína.
Cristian Gallo frá Náttúrustofunni tók síðan mynd af fuglinum 22. júní og
var hægt að greina litaröðina á myndinni (sjá myndina að ofan). Fyrirspurn
um maríuerluna var send til Englands og eftirfarandi upplýsingar bárust frá
Dennis Elphick í dag:
Þessi fugl var merktur við Slapton Ley í Devon á Englandi þann 12. september
2008 og var hann þá á fyrsta ári. Þetta er einungis níundi fuglinn
(litmerktur) sem sést á Íslandi síðan var farið í öflugar merkingar í
Slapton Ley október 2002 og sá þriðji í vor. Íslenskar maríuerlur fara um
Slapton Ley í ágúst og september en fuglar frá Englandi og Skotlandi í
október og nóvember. Íslenskar maríuerlur hafa líklega vetursetu í suður
hluta Mauritaníu og Senegal.
|
|
|
|
22. apríl 2009
Grátrana í
Steingrímsfirði.
Guðbrandur
á Bassastöðum sá grátrönu (Grus grus) í Selárdal í Steingrímsfirði
þann 20. apríl. Gunnar Logi Björnsson náði myndum af henni í gær og má sjá
þær hér fyrir neðan.
Mynd: Gunnar Logi Björnsson
Um 40 grátrönur hafa sést á
Íslandi frá því að skráningar hófust og sáust t.d. tveir fuglar í maí 2007 á
Rauðasandi.
Grátrana verpir á
votlendissvæðum á Norðurlöndum og í norður Evrópu en hefur vetursetu í
Frakklandi og í Afríku. Hún er aðallega jurtaæta en snákar, eðlur og froskar
detta stundum upp í kjaftinn á henni.
|
|
|
|
24. mars 2009
Brandönd á Ísafirði.
Guðjón
T. Sigurðsson sá brandandarstegg á Ísafirði í gær. Hann var á sjónum á móts
við Bónus. Brandönd verpir ekki á Vestfjörðum (eins og er) en það sást þó
eitt par í Önundarfirði síðasta vor.
Mynd: Guðjón T. Sigurðsson 2009
Fyrstu grágæsirnar sáust á Vestfjörðum í Dýrafirði fyrir
einum 10 dögum og svo sáust gæsir við Húsavík í Steingrímsfirði og í
Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi síðast liðinn laugardag (21.mars).
|
|
|
|
|
|