EnglishGermanItaly
  Forsíða

  Veftré

  Um Stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur


Grasagarðar Vestfjarða

Markmið Grasagarða Vestfjarða er að varðveita íslenskar tegundir af plöntum og þá sérstaklega vestfirskar.
Lífríki er breytilegt hér á vestfjörðum vegna veðurfræðilegra aðstæðna svo erfðafræðilegi breytileikinn getur
verið mikill. Þess vegna er ástæða til að varðaveita mismunandi kvæmi af sömu plöntunum frá ýmsum stöðum.
Sett er upp sýning sem miðlar þekkingu á sérstöðu vestfi rsks gróðurfars og auðveldar fólki að kynnast þeim
plöntum sem eru á svæðinu.

Náttúrustofa Vestfjarða hóf uppbyggingu á grasagarði í Bolungarvík sumarið 2010 þegar sýningasvæðið
var sett upp.

Möguleiki er á nýtingu garðsins til útikennslu í náttúrufræði fyrir skóla (og námskeiðshald) á Vestfjörðum.
Hver planta er merkt sérstaklega á íslensku, latínu, þýsku og ensku svo að erlendir ferðamenn geti einnig notið sýningarinnar.
Þar sem grasagarðurinn á að geta nýst fyrir ýmsar rannsóknir tengdar gróðri á vestfjörðum eru plönturnar skráðar niður í gagnagrunn sem geymir upplýsingar um hverja plöntu, hvenær henni var safnað, hvar hún var tekin og GPS staðsetningarhnit hennar.

Þessar upplýsingar geta opnað marga möguleika í framtíðinni, til dæmis til að skoða áhrif hlýnunar loftslags á plöntur.

Aðgangur að sýningunni er endurgjaldslaus og eykur framboð á efni fyrir alla sem áhuga hafa á að kynna sér þennan hluta íslenskrar náttúru.

Fyrsta sýning Grasagarða Vestfjarða er sett upp í Bolungarvík og er í samvinnu
við Bolungarvíkurkaupstað.

Melrakkasetur Íslands er samstarfsaðili að Grasagörðum Vestfjarða. Setrið hefur á stefnuskrá að setja upp grasagarð í Súðavík og mun hann verða staðsettur fyrir utan Melrakkasetur Íslands í Súðavík.


The goal of Westfjords Botanicals gardens is to preserve Icelandic species of plants and especially species local to the Westfjords.


The exebition conveys the knowledge on the Westfjords unique fl ora and helps people learn about the plants in the vicinity.


The Westfjords Natural History Institute began construction of the Botanic Exhibition in Bolungarvík in the summer of 2010.


The exhibition can be used for environmental education by science classes in the Northwest.


Each plant is labeled specifi cally in icelandic, latin, german and english.


Since the Botanic Exhibition will be used for various studies related to regional vegetation the plants are listed in a database with information about each plant, when it was collected, where it was taken and GPS coordinates.


This information can open up many opportunities in the future, for example, to examine the effect of global warming on plants.


Access to the exhibition is free of charge and will increase opportunities for those wishing to study this part of Icelandic nature.

Grasagarðar Vestfjarða are in cooperation with Bolungarvik in building the garden.


Plöntur í grasagarði 2011









Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Þorleifur Eiríksson


Náttúrustofa VestfjarðaNetfang: nave@nave.isKennitala: 610397-2209