Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

                          

 

 

<-- Snjóflóðavarnir
vestfirskar fréttir | bb.is | 15.11.02 | 08:51
Hættumat fyrir Bolungarvík tilbúið og verður kynnt á borgarafundi
Ætlunin er að efna til almenns borgarafundar í Bolungarvík þriðjudaginn 10. desember og kynna þar hættumat vegna snjóflóðahættu, sem nú er tilbúið. Matið er unnið af fjögurra manna hættumatsnefnd fyrir Bolungarvík, en hana skipa Snjólfur Ólafsson prófessor, sem er formaður, Gunnar Guðni Tómasson verkfræðingur, Elías Jónatansson, forseti bæjarstjórnar, og Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri. Þeir hafa jafnframt notið liðsinnis sérfræðinga Veðurstofunnar við gerð hættumatsins. Fyrir borgarafundinn, þar sem nefndin kynnir hættumatið, verður borinn í hús í Bolungarvík kynningarbæklingur með ítarlegum upplýsingum um niðurstöður þannig að bæjarbúar geti komið vel undirbúnir til fundarins.

Vinna við gerð þessa bæklings er nú að hefjast. Fyrir fundinn verða auk þess settar upp myndir og kort á veggi í Félagsheimilinu þar sem fundurinn verður haldinn. Ólafur Kristjánsson tekur fram, að ekki megi rugla saman rýmingarkortum sem gerð voru á sínum tíma og því hættumati sem nú hefur verið unnið. Grunnurinn að þessu mati hefur legið lengi fyrir en eiginleg vinna hættumatsnefndarinnar hefur staðið yfir í rúmt ár, að sögn Ólafs Kristjánssonar bæjarstjóra.
 
Þessi frétt/grein er prentuð af bb.is | © H-prent 2001