Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík. 

        Sími: 4567005, fax 4567351 

        netfang:  nave@nave.is

        Kennitala: 610397-2209


Forsíða           

Stjórn

Starfsmenn

Verkefni                    

Skýrslur

Bókaskrá

Lög og reglur

Samstarf og nefndir

Tenglar

Náttúrustofur

Náttúrugripasafn

 

 

Hvinönd (Bucephala islandica)

Hvinöndin er náskyld húsöndinni (Bucephala islandica) sem verpur við Mývatn. Hvinöndin verpur ekki hér á landi en þó hafa sést fuglar að sumri. Það eru 50-100 fuglar hér við land á veturnar. Uppruni þessara fugla gæti bæði verið N-Ameríku eða Evrópu.*

*Heimild: Ævar Petersen. 1999. Fuglar Íslands. Vaka-Helgsfell.

12. mars 2005

Hvinandarsteggur (Bucephala islandica) var í Dýrafirði í dag.

 

16. janúar 2005

Vetrarfuglatalningum er lokið á norðanverðum Vestfjörðum. Alls sáust tæplega 11.000 fuglar og 30 tegundir. Einn flækingur sást og var það hvinandarsteggur (Bucephala islandica). Hann hefur verið að sjást í Dýrafirði síðustu ár á þessum tíma. Niðurstöður talninga fyrir svæðið má nálgast (vetrarfuglataningar 2005) en einnig verða þær birtar á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

 http://www.ni.is/vetrarfugl/Vet04/Vet04.htm

 

6. desember 2004

Í gær var hvinandarsteggur (Bucephala clangula) í Dýrafirði. Hann hefur sést af og til síðan í janúar 2003 en síðast sást hann 25. mars á þessu ári. Hvinöndin er mjög stygg en þó er hægt að sjá hana þokkalega með kíkir. Hún heldur sig með æðarhópi á milli Dranga og Kjaransstaði og sést þar oftast á flóði. Erfiðlega gekk að ná mynd af henni en hægt er að sjá góða mynd á þessum vef:

http://www.hi.is/~yannk/myndir/rarity/yk_buccla190504.jpg

 

Hvinöndin er náskyld húsöndinni (Bucephala islandica) sem verpur við Mývatn. Hvinöndin verpur ekki hér á landi en þó hafa sést fuglar að sumri. Það eru 50-100 fuglar hér við land á veturnar. Uppruni þessara fugla gæti bæði verið N-Ameríku eða Evrópu.

Heimild: Ævar Petersen. 1999. Fuglar Íslands. Vaka-Helgsfell.

 

25. mars 2004

Einn hvinandarsteggur var í Dýrafirði í gær. Var hann á sama stað og hann hefur sést síðastliðið ár.

 

14. desember 2003

Einn hvinandarsteggur (Bucephala clangula) var fyrir innan Dýrafjarðarbrúna í dag. Síðast sást hvinandarsteggur á sömu slóðum 3. maí.

 

03.05.2003. Hringönd

Einnig sást Hvinönd (Bucephala clangula) fyrir innan Dýrafjarðabrúna en hún sást á sömu slóðum síðast 26. febrúar. Þetta er mjög líklega sami fuglinn.

 

26.02.2003. Talningar

Um síðustu helgi taldi ég fugla í Dýrafirði. Ég tók allt svæðið innan línu, frá Þingeyri og þvert yfir (Lækjarós). Samtals sá ég 2766 fugla, þar af voru æðafuglar 1458. Þeir voru nú samt vantaldir. Helst það markverðasta sem ég sá var; einn hvinandarsteggur (Bucephala clangula), einn fjöruspói (Numenius arquata), 12 gulendur (Mergus merganser), 6 rauðhöfðar (Anas penelope) og 50 tjaldar. Fjöruspóinn og hvinöndin vour þarna líka í janúar. Gulendurnar hef ég ekki séð þarna í vetur en þær geta hafa verið utar í firðinum. 23 tegundir sáust en helgina á undan voru auk þess fjórar sem ekki sáust núna, þar á meðal örn og fálki.

 

22.02.2003. Fjöruspói, hvinönd og gulendur

Fjöruspói (Numenius arquata) og hvinönd (Bucephala clangula) sáust í Dýrafirði. Sennilega sömu fuglar og sáust á sömu slóðum í janúar. Einnig sáust 12 gulendur (Mergus merganser).

 

 

25.01.2003. Fjöruspói og hvinönd

Fjöruspói (Numenius arquata) og hvinönd (Bucephala clangula) sáust í Dýrafirði. Fjöruspóinn var við brúna yfir Dýrafjörð en hvinöndin, sem var karlfugl, var nokkru fyrir innan brúna. (Tilkynnt: NV/BÞ).

 

Hvinendur eru um allt umhverfis norðanverðan hnöttinn en ekki hefur verið staðfest varp hér á landi. Þær sjást á hverju sumri við Mývatn og nokkrum ám og vötnum víðsvegar um landið.

Fréttir

Fuglaupplýsingar

Fuglafréttir

Snjóflóðavarnir/

hættumat

Fornleifar   

Náttúruminjar

Skólpmengun

SNS-Samtök náttúrustofa

Kalkþörungar

Aðalbláber

Strandalavegur

Jaðrakan

Myndir