Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

                          

 

 

Kóngasvarmi

     Kóngasvarmar lifa aðallega í S-Evrópu, Afríku, Asíu og Ástralíu, en safnast við og við í stóra hópa sem leggja þá upp í langferðir. Þeir hafa mikla flughæfileika og hafa alloft komið til Íslands. Kóngasvarmarnir eru með vænghaf upp á 11 cm, vængir eru gráir með fíngerðu svörtu mynstri og afturbolurinn er með rauðbleik og svört belti. Kóngasvarmar eru næturdýr og því líklegast að sjá þau í ljósaskiptunum á kvöldin.

1. sept. 2003

Kóngasvarmar enn á Þingeyri

    Kóngasvarmar sjást enn á Þingeyri og hafa því sést í þrjár vikur. Rúmlega ellefu á kvöldin má ganga að einum eða fleiri kóngasvörmum á skógartoppi, sem er í garði á Þingeyri. Vitað er að að minnstakosti sex kóngasvarmar komu til Þingeyrar (heimild Sigmundur F Þórðarson).

13. ágúst 2003

Kóngasvarmar á Vestfjörðum

    Kóngasvarmar (Agrius convolvuli) eru fiðrildi af ætt svarmfiðrilda (Sphingidae) og hafa þau verið að sjást á Vestfjörðum þessa dagana, og hefur verið tilkynnt um þá bæði frá Bolungarvík og Þingeyri. Heimilsfólkið að Aðalstræti 53 á Þingeyri tók eftir kóngasvarma í garðinum að kvöldi 11. ágúst og 12. ágúst í blómstrandi Skógartoppi. Voru þeir þrír á ferðinni seinna kvöldið og náðist að veiða tvo þeirra í skordýraháf. Tveir kóngasvarmar sáust að kvöldi 12. ágúst í garðinum við Bakkastíg 11 í Bolungarvík.

(Mynd 1, mynd 2)