|


vestfirskar fréttir
| bb.is | 23.10.02 | 16:43


„Snjótæknilegir ráðgjafar“
meti áhrif þess að sleppa leiðigarði
Framkvæmdasýsla ríkisins vill að
skoðað verði hvort hægt sé að draga úr hættu á óheppilegri snjósöfnun við
fyrirhugaðar snjóflóðavarnir í Bolungarvík með því að sleppa leiðigarði
undir vestanverðu Traðargili og lengja þess í stað þvergarð varnanna. Til
þess að athuga þetta vill Framkvæmdasýslan að fengnir verði
„snjótæknilegir ráðgjafar“, eins og komist er að orði í bréfi sem sent var
Bolungarvíkurkaupstað og lagt fyrir bæjarráð í gær. Í bréfinu er lagt til
að ráðgjafarnir verði beðnir um að meta hversu mikið þyrfti að lengja
þvergarð snjóflóðavarnanna og hver hæð framlengingarinnar þyrfti að vera.
Undanfari þessa máls er sá að
einn íbúi í Bolungarvík gerði athugasemd við umhverfismat sem unnið var
vegna fyrirhugaðra framkvæmda og hafði áhyggjur af snjósöfnun við
varnargarðinn. Verkfræðistofa Siglufjarðar athugaði líklega snjósöfnun og
komst að því að búast mætti við því að nokkur snjór safnaðist við báðar
hliðar leiðigarðs undir Traðargili, enda sé ætlunin að hann liggi þvert á
ríkjandi vindáttir.
|