|
I. kafli.
Markmið, skilgreiningar og framkvæmd.
1. gr. Markmið þessara laga er að búa
landsmönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heilnæmu og
ómenguðu umhverfi.
2. gr. Lögin taka til hvers konar
starfsemi og framkvæmda hér á landi, í lofthelgi, efnahagslögsögu og farkostum
sem ferðast undir íslenskum fána, sem hafa eða geta haft áhrif á þá þætti sem
tilgreindir eru í 1. gr., að svo miklu leyti sem önnur lög taka ekki til þeirra.
[Lögin ná einnig til starfsemi og framkvæmda í efnahagslögsögunni vegna
rannsókna og vinnslu kolvetnis.]1)
1)L.
166/2008, 14. gr.
3. gr. Hollustuhættir og
mengunarvarnir taka í lögum þessum til hollustuverndar,
mengunarvarnaeftirlits, vöktunar, tengdra rannsókna og fræðslu um þessi mál.
[Hollustuvernd tekur til eftirlits
með …1) fegrunar- og snyrtiefnum, eiturefnum og
hættulegum efnum, húsnæði, öðrum vistarverum og umhverfi þeirra og öryggisþáttum
þeim tengdum. Einnig tekur hún til sóttvarna og fræðslu í þessum efnum …1)]2)
Mengunarvarnaeftirlit tekur til
eftirlits með þeim þáttum sem eiga að fyrirbyggja eða draga úr mengun lofts,
láðs eða lagar, eftirlits með eiturefnum og hættulegum efnum og fræðslu um þessi
mál. Vöktun umhverfisins telst til mengunarvarnaeftirlits.
Heilbrigðiseftirlit tekur til
hollustuhátta og mengunarvarna.
Með mengun er átt við það þegar
örverur, efni og efnasambönd og eðlisfræðilegir þættir valda óæskilegum og
skaðlegum áhrifum á heilsufar almennings, röskun lífríkis eða óhreinkun lofts,
láðs eða lagar. Mengun tekur einnig til ólyktar, hávaða, titrings, geislunar og
varmaflæðis og ýmissa óæskilegra eðlisfræðilegra þátta.
Með bestu fáanlegri tækni er átt
við framleiðsluaðferð og tækjakost sem beitt er til að lágmarka mengun og myndun
úrgangs. Tækni nær til framleiðsluaðferðar, tækjakosts, hönnunar
mannvirkja, eftirlits og viðhalds búnaðarins, svo og starfrækslu hans. Með
fáanlegri tækni er átt við aðgengilega framleiðsluaðferð og tækjakost
(tækni) sem þróaður hefur verið til að beita í viðkomandi atvinnurekstri og skal
tekið mið af tæknilegum og efnahagslegum aðstæðum. Með bestu er átt við
virkustu aðferðina til að vernda alla þætti umhverfisins.
Eftirlit merkir athugun á vöru,
þjónustu, ferli eða starfsemi til að ákvarða samræmi þeirra við tilteknar
kröfur.
Faggilding merkir aðferð sem þar
til bær aðili beitir til að veita formlega viðurkenningu á því að aðili sé hæfur
til að vinna tiltekin verkefni. Um faggildingu fer samkvæmt
lögum nr. 100/1992,
um vog, mál og faggildingu.
Rannsóknir (prófanir) felast í
greiningu sýna vegna eftirlits, eftirlitsverkefna, vöktunar og annarra
þjónusturannsókna eða fyrirbyggjandi aðgerða á sviði hollustuhátta og
mengunarvarna.
Vöktun merkir kerfisbundna og
síendurtekna skráningu einstakra breytilegra þátta í umhverfinu.
[Grænt bókhald er efnisbókhald þar
sem fram koma upplýsingar um hvernig umhverfismálum er háttað í viðkomandi
starfsemi, aðallega í formi tölulegra upplýsinga.
Skýrsla um grænt bókhald merkir
niðurstöður græns bókhalds fyrir hvert bókhaldstímabil þess.]3)
1)L.
167/2007, 54. gr. 2)L.
98/2002, 1. gr. 3)L.
87/2001, 1. gr.
4. gr. [Til þess að stuðla að
framkvæmd hollustuverndar setur ráðherra í reglugerð1)
almenn ákvæði um:
1. útgáfu og efni starfsleyfa fyrir atvinnurekstur sem
fellur undir þessa grein,
2. umgengni og þrifnað utan húss,
3. meindýravarnir og eyðingu meindýra,
4. hreinsun hunda, m.a. vegna sullaveiki, katta og
annarra gæludýra,
5. þátttöku heilbrigðisnefnda í öryggismálum og
sóttvörnum og framkvæmd þeirra,
6. töku sýna og úrvinnslu þeirra,
7. viðmiðanir fyrir eðlis-, efna- og örverufræðilega
þætti,
8. íbúðarhúsnæði,
9. starfsmannabústaði og starfsmannabúðir,
10. gistihús, matsöluhús og aðra veitingastaði,
fjallaskála, frístundahúsasvæði, tjald- og hjólhýsasvæði,
11. skóla og aðra kennslustaði,
12. rakarastofur, hárgreiðslustofur, nuddstofur,
húðflúrsstofur og hvers konar aðrar snyrtistofur og stofur þar sem fram fer
húðgötun og húðrof,
13. leikskóla, leikvelli, daggæslu í heimahúsum og
önnur heimili og stofnanir fyrir börn og unglinga,2)
14. heilbrigðisstofnanir, dvalarheimili og meðferðar-
og vistunarstofnanir og stofnanir fyrir fatlaða,
15. íþróttastöðvar, íþróttasvæði, íþróttahús,
almenningssalerni, sundstaði, baðhús, gufubaðsstofur, sólbaðsstofur og almenna
baðstaði, baðvatn og þess háttar,3)
16. fangelsi og aðrar vistarverur handtekinna manna,
17. samkomustaði og samkomuhús, þar á meðal kirkjur og
söfn,
18. samgöngumiðstöðvar, farþegaskip,
almenningsbifreiðar, farþegaflugvélar og þess háttar,
19. verslunarmiðstöðvar,
20. verslanir sem selja vörur er innihalda fegrunar- og
snyrtiefni, hættuleg efni og eiturefni,
21. dýraspítala, dýralæknastofur, dýrasnyrtistofur,
dýrasýningar, dýragæslustaði, gæludýraverslanir, hestaleigur og reiðskóla,
22. garðaúðun,
23. önnur sambærileg atriði.4)]5)
1)Rg.
941/2002, sbr.
674/2005,
242/2007 og
747/2009.
Rg.
331/2005.
Rg.
724/2008. 2)Rg.
942/2002, sbr.
492/2003,
986/2004 og
607/2005. 3)Rg.
457/1998. 4)Rg.
522/1994, sbr.
191/1999,
842/2004 og
991/2006.
Rg.
289/1994, sbr.
562/1995 og
493/1998.
Rg.
446/1994, sbr.
467/2000.
Rg.
390/1995, sbr.
692/1998.
Rg.
736/2003, sbr.
860/2003,
410/2004,
920/2004,
563/2005,
198/2006 og
236/2007.
Rg.
331/2005. 5)L.
98/2002, 2. gr.
[4. gr. a. Stofnanir, fyrirtæki og
önnur starfsemi sem talin er upp í fylgiskjali III með lögum þessum skulu hafa
gilt starfsleyfi gefið út af heilbrigðisnefnd. Óheimilt er að hefja
starfsleyfisskylda starfsemi hafi starfsleyfi fyrir hana ekki verið gefið út.
Ráðherra er heimilt, ef ríkar ástæður mæla með og að fenginni umsögn
[Umhverfisstofnunar]1) og viðkomandi
heilbrigðisnefndar, að veita tímabundna undanþágu frá starfsleyfi.
Gefa skal út starfsleyfi til tiltekins
tíma. Rekstraraðila ber að veita heilbrigðisnefnd upplýsingar um fyrirhugaðar
breytingar á starfsemi sem varðað geta ákvæði starfsleyfis með hæfilegum
fyrirvara. Heilbrigðisnefnd er heimilt að endurskoða starfsleyfi áður en
gildistími þess er liðinn vegna breyttra forsendna, svo sem ef breytingar verða
á rekstrinum, vegna tækniþróunar eða breytinga á reglum um framkvæmd
hollustuverndar.
Í starfsleyfi skal tilgreina
rekstraraðila og staðsetningu starfsemi, tegund hennar, skilyrði, gildistíma og
endurskoðun starfsleyfis, auk ákvæða um eftirlit, umgengni, hreinlæti,
öryggisráðstafanir, sóttvarnir, gæðastjórnun og innra eftirlit eftir því sem við
á hverju sinni.]2)
1)L.
164/2002, 14. gr. 2)L.
98/2002, 3. gr.
5. gr. Til þess að stuðla að framkvæmd
mengunarvarnaeftirlits setur ráðherra í reglugerð1)
almenn ákvæði um:
1. starfsleyfi fyrir allan atvinnurekstur sem haft getur
í för með sér mengun, þar á meðal ákvæði um staðsetningu, viðmiðunarmörk,
mengunarvarnir í einstökum atvinnugreinum, vöktun, eftirlitsmælingar og
rannsóknir, svo og rekstur og viðhald mengunarvarnabúnaðar; krafist skal bestu
fáanlegrar tækni við mengunarvarnir í þeim atvinnugreinum þar sem slíkt hefur
verið skilgreint og skulu ákvæði um mengunarvarnir taka mið af því,2)
2. endurskoðun starfsleyfa vegna verulegra breytinga á
atvinnurekstri eða vegna tækniþróunar,
3. áhættumat fyrir atvinnurekstur þar sem hætta er á
stórslysum vegna aðferða og efna sem notuð eru við starfsemina og endurskoðun
áhættumats, svo og upplýsingar sem ábyrgðaraðilum atvinnurekstrar er skylt að
láta í té beri slys að höndum,3)
4. eftirlit, skráningu og tilkynningarskyldu,4)
5. umhverfisstjórn, vöktun og eftirlitskerfi fyrirtækja,
svo og viðurkenningu, úttekt og eftirlit með slíkum kerfum,5)
6. umhverfismerki á vörur, m.a. um veitingu þeirra og
gjaldtöku,6)
7. eftirlit með flutningi úrgangs milli landa og
tilkynningarskyldu þeirra sem meðhöndla og flytja slíkan úrgang,
8. úttekt á hugsanlegri mengunarhættu,
9. meðferð vatns og sjávar í atvinnurekstri þar sem m.a.
skulu koma fram viðmiðunarmörk vegna losunar tiltekinna efna,
10. úrgangsefni, svo sem eyðingu sorps og annars
úrgangs,7)
11. fráveitur og skolp þar sem m.a. skulu koma fram
reglur um hreinsun skolps og viðmiðunarmörk í fráveitum og viðtaka,8)
12. varnir gegn vatnsmengun þar sem m.a. skulu koma
fram viðmiðunarmörk fyrir mengandi efni og/eða gæðamarkmið fyrir grunnvatn og
yfirborðsvatn,9)
13. varnir gegn loftmengun þar sem m.a. skulu koma fram
viðmiðunarmörk fyrir loftgæði, mengandi efni og losun þeirra út í andrúmsloftið,10)
14. varnir gegn jarðvegsmengun og viðmiðunarmörk fyrir
jarðveg og mengandi efni,
15. hávaða og titring þar sem fram koma viðmiðunarmörk
fyrir leyfilegan hávaða og titring með hliðsjón af umhverfi,11)
16. varmamengun þar sem fram skulu koma reglur um
takmörkun hennar,
[17. færslu græns bókhalds, form og framsetningu
skýrslna um grænt bókhald, upplýsingar sem þar skulu koma fram, skilafresti á
skýrslum um grænt bókhald, aðila sem heimilt er að skila grænu bókhaldi án þess
að þeim sé það skylt og endurskoðun þess og birtingu],12)13)
[18. ]12) önnur
sambærileg atriði.14)
1)Rg.
786/1999 (um mengunarvarnaeftirlit), sbr.
850/2000,
49/2001,
106/2004 og
1005/2006.
Rg.
224/2005 (um gildistöku EES-gerða um umsjón og eftirlit með flutningi
úrgangs innan, til og frá Evrópubandalaginu). 2)Rg.
785/1999, sjá
augl. 582/2000, sbr.
rg.
849/2000,
48/2001,
105/2004,
1006/2006 og
694/2009. 3)Rg.
275/2002.
Rg.
276/2002. 4)Rg.
184/2002 (um skrá yfir spilliefni og annan úrgang),
sbr.
428/2003.
Rg.
586/2002 (um efni sem eyða ósonlaginu), sbr.
659/2002,
586/2005 og
139/2006.
Rg.
990/2008 (um útstreymisbókhald). 5)Rg.
990/2005 (um frjálsa þátttöku fyrirtækja og stofnana í
umhverfisstjórnunarkerfi bandalagsins (EMAS)), sbr.
530/2008. 6)Rg.
525/2006 (um umhverfismerki).
7)Rg.
609/1996 (um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs), sbr.
682/1999 og
562/2005.
Rg.
795/1999 (um úrgang frá títandíoxíðiðnaði).
Rg.
799/1999 (um meðhöndlun seyru).
Rg.
806/1999 (um spilliefni), sbr.
169/2002.
Rg.
809/1999 (um olíuúrgang).
Rg.
860/2000 (um amalgammengað vatn og úrgang frá tannlæknastofum).
Rg.
737/2003 (um meðhöndlun úrgangs).
Rg.
739/2003 (um brennslu úrgangs).
Rg.
705/2009 (um asbestúrgang).
Rg.
739/2009 (um hreinsun og förgun PCB og staðgengilsefna þess).
8)Rg.
798/1999 (um fráveitur og skólp), sbr.
450/2009. 9)Rg.
796/1999 (um varnir gegn mengun vatns), sbr.
533/2001 og
913/2003.
Rg.
797/1999 (um varnir gegn mengun grunnvatns).
Rg.
800/1999 (um losunarmörk, umhverfismörk og gæðamarkmið fyrir losun á
kvikasilfri í yfirborðsvatn).
Rg.
801/1999 (um losunarmörk, umhverfismörk og gæðamarkmið fyrir losun á
kvikasilfri í yfirborðsvatn frá atvinnurekstri sem stundar rafgreiningu
alkalíklóríða).
Rg.
802/1999 (um losunarmörk, umhverfismörk og gæðamarkmið fyrir losun á kadmíum
í yfirborðsvatn).
Rg.
803/1999 (um losunarmörk, umhverfismörk og gæðamarkmið fyrir losun á
hexaklórsýklóhexani (HCH)
í
yfirborðsvatn) Rg. 804/1999 (um varnir gegn mengun vatns af völdum
köfnunarefnissambanda frá landbúnaði og öðrum atvinnurekstri), sbr.
592/2001.
Rg.
536/2001 (um neysluvatn). 10)Rg.
230/1998 (um efni sem stuðla að gróðurhúsaáhrifum),
sbr.
888/2002.
Rg.
252/1999.
Rg.
787/1999 (um loftgæði).
Rg.
788/1999 (um varnir gegn loftmengun af völdum hreyfanlegra uppsprettna).
Rg.
251/2002 (um brennisteinsdíoxíð og fleiri efni í andrúmsloftinu og
upplýsingar til almennings), sbr.
288/2002.
Rg.
255/2002 (um takmörkun á útstreymi rokgjarnra lífrænna efna), sbr.
1024/2005.
Rg.
817/2002 (um mörk fyrir fallryk úr andrúmslofti).
Rg.
745/2003 (um styrk ósons við yfirborð jarðar).
11)Rg.
1000/2005 (um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir).
Rg.
724/2008 (um hávaða). 12)L.
87/2001, 2. gr. 13)Rg.
851/2002 (um grænt bókhald).
14)Rg.
236/1990 (um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna,
hættulegra efna og vörutegunda, sem innihalda slík efni), sbr.
348/1990,
664/1997,
459/1998,
460/1998,
639/1998,
77/1999,
150/1999,
548/1999,
754/1999,
613/2000,
921/2000,
380/2001,
197/2002,
579/2002,
442/2004 og
995/2006.
Rg.
946/1999 (um rafhlöður og rafgeyma með
tilteknum hættulegum efnum). Rg. 155/2000 (um öryggislok og áþreifanlega
viðvörun), sbr.
354/2002.
Rg.
196/2000 (um takmörkun á framleiðslu, innflutningi og dreifingu leikfanga og
hluta sem í eru þalöt).
Rg.
419/2000 (um notkun og bann við notkun tiltekinna efna við meðhöndlun á
textílvörum).
Augl. 940/2000 (um gildistöku EES-reglugerða um inn- og útflutning tiltekinna
hættulegra efna).
Rg.
751/2002 (um tilteknar epoxý afleiður til notkunar í efni og hluti sem ætlað
er að snerta matvæli), sbr.
924/2004.
Rg.
111/2003 (um efni og hluti úr plasti sem er ætlað að snerta matvæli), sbr.
504/2005.
Rg.
396/2003 (um takmörkun efna í vélknúnum ökutækjum).
Rg.
828/2003 (um hollustuhætti og mengunarvarnir á varnarsvæðum).
Rg.
405/2004 (um náttúrulegt ölkelduvatn og átappað lindarvatn), sbr.
1097/2004.
Rg.
411/2004 (um ýmis aðskotaefni í matvælum), sbr.
56/2005.
Rg.
624/2004 (um fæðubótarefni), sbr.
684/2005.
Rg.
697/2004 (um takmörkun tiltekinna efna í raftækjum), sbr.
545/2006.
Rg.
728/2004 (um fljótandi eldsneyti), sbr.
1154/2005.
Rg.
1101/2004 (um markaðssetningu sæfiefna), sbr.
243/2007,
150/2008,
520/2008,
1234/2008 og
15/2009.
Rg.
331/2005 (um kjöt og kjötvörur).
Rg.
439/2005 (um gildistöku tiltekinna gerða Evrópusambandsins um aðskotaefni í
matvælum).
Rg.
508/2005 (um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni
í matvælum).
Rg.
681/2005 (um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um merkingu matvæla
og innihaldsefna matvæla með viðbættum jurtasterólum, jurtasterólestrum,
jurtastanólum og/eða jurtastanólestrum). Rg. 1289/2007 (um gildistöku
tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum). Rg. 1307/2007
(um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum).
Rg. 303/2008 (um úrvinnslu ökutækja). Rg. 410/2008 (um arsen, kadmíum,
kvikasilfur, nikkel og fjölhringa arómatísk vetniskolefni í andrúmslofti).
[5. gr. a. Allur atvinnurekstur sem haft getur í för
með sér mengun skal hafa gilt starfsleyfi, sbr. 6. gr. Óheimilt er að hefja
starfsleyfisskyldan atvinnurekstur hafi starfsleyfi ekki verið gefið út.
Ráðherra er heimilt, ef ríkar ástæður mæla með og að fenginni umsögn
[Umhverfisstofnunar]1) og eftir atvikum
heilbrigðisnefndar, að veita tímabundna undanþágu frá starfsleyfi.
Gefa skal út starfsleyfi til tiltekins
tíma. Útgefanda starfsleyfis er heimilt að endurskoða starfsleyfi áður en
gildistími þess er liðinn vegna breyttra forsendna, svo sem ef mengun af völdum
atvinnurekstrar er meiri en búist var við þegar leyfið var gefið út, ef
breytingar verða á rekstrinum sem varðað geta ákvæði starfsleyfis, vegna
tækniþróunar eða breytinga á reglum um mengunarvarnir.
Í starfsleyfi skal tilgreina
rekstraraðila og staðsetningu starfsemi, tegund hennar og stærð, skilyrði,
gildistíma og endurskoðun starfsleyfis, auk ákvæða um viðmiðunarmörk,
orkunýtingu, meðferð úrgangs, mengunarvarnir, tilkynningarskyldu vegna óhappa
eða slysa, innra eftirlit, vöktun, eftirlitsmælingar og rannsóknir, svo og
rekstur og viðhald mengunarvarnabúnaðar, eftir því sem við á hverju sinni.
Krafist skal bestu fáanlegrar tækni við mengunarvarnir í þeim atvinnugreinum þar
sem slíkt hefur verið skilgreint og skulu ákvæði um mengunarvarnir taka mið af
því.]2)
1)L.
164/2002, 14. gr. 2)L.
98/2002, 4. gr.
6. gr. [Umhverfisstofnun]1)
gefur út starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem haft getur í för með sér mengun og
talinn er upp í fylgiskjali með lögum þessum.
Heilbrigðisnefndir gefa út starfsleyfi
fyrir atvinnurekstur sem haft getur í för með sér mengun og ekki er talinn upp í
fylgiskjali, sbr. 1. mgr., eftir því sem mælt er fyrir um í reglugerð.
[Umhverfisstofnun]1)
skal vinna tillögur að starfsleyfi skv. 1. mgr. og auglýsa opinberlega hvers
efnis þær eru og hvar megi nálgast þær. Heimilt er að gera skriflegar
athugasemdir við tillögur [Umhverfisstofnunar]1)
innan átta vikna frá auglýsingu.
[Umhverfisstofnun]1)
skal innan fjögurra vikna frá því að frestur til að gera athugasemdir við
tillögur að starfsleyfi rann út taka ákvörðun um útgáfu starfsleyfis. Skal
umsækjanda um starfsleyfi og þeim sem athugasemdir hafa gert tilkynnt um
afgreiðsluna.
Auglýsa skal í B-deild Stjórnartíðinda
útgáfu og gildistöku starfsleyfa sem [Umhverfisstofnun]1)
gefur út.
1)L.
164/2002, 14. gr.
[6. gr. a. Umhverfisstofnun veitir starfsleyfi fyrir
atvinnurekstur vegna rannsókna og vinnslu kolvetnis sem getur haft í för með sér
mengun í hafi eða á hafsbotni innan efnahagslögsögu og landgrunnsmarka. Áður en
Umhverfisstofnun tekur ákvörðun varðandi leyfisumsókn skal stofnunin afla
umsagna Hafrannsóknastofnunarinnar, Orkustofnunar og Brunamálastofnunar.
Umhverfisstofnun annast eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum vegna
starfsleyfisskyldrar starfsemi samkvæmt þessari grein. Ráðherra setur reglugerð
samkvæmt tillögum Umhverfisstofnunar um framkvæmd hollustuhátta- og
mengunarvarnaeftirlits varðandi mannvirki sem reist eru vegna rannsókna eða
vinnslu kolvetnis í jörðu.]1)
1)L.
166/2008, 15. gr.
[[6. gr. b.]1) Færa
skal grænt bókhald fyrir atvinnustarfsemi sem háð er starfsleyfi skv. 5. gr. og
nánar greinir í fylgiskjali II með lögum þessum.
Í grænu bókhaldi skulu koma fram
upplýsingar um hvernig umhverfismálum er háttað í viðkomandi starfsemi, þ.m.t.
tölulegar upplýsingar um meginnotkun hráefnis, orku og vatns til starfseminnar,
sem og helstu tegundir og magn mengandi efna sem losuð eru í loft, láð eða lög,
koma fram í framleiðsluvöru eða falla til sem úrgangur. Ekki er þó skylt að
setja í skýrslu um grænt bókhald upplýsingar sem starfsleyfishafi telur vera
framleiðsluleyndarmál, enda séu slík atriði tilgreind og ekki gerðar
athugasemdir við það af hálfu útgefanda starfsleyfis.
Starfsleyfishafi ber ábyrgð á þeim
upplýsingum sem fram koma í skýrslu um grænt bókhald. Skýrsla um grænt bókhald
skal endurskoðuð á sambærilegan hátt og fjárhagsbókhald fyrirtækja.
Senda skal útgefanda starfsleyfis árlega
skýrslu um grænt bókhald. Útgefandi starfsleyfis skal kanna hvort skýrsla um
grænt bókhald fullnægi þeim formkröfum sem gerðar eru til skýrslna um grænt
bókhald. Sé heilbrigðisnefnd útgefandi starfsleyfis skal hún því næst senda
skýrsluna áfram til [Umhverfisstofnunar].2)
[Umhverfisstofnun]2)
annast birtingu skýrslna um grænt bókhald og gerð leiðbeininga um grænt bókhald.
Birting skýrslu um grænt bókhald felur ekki í sér viðurkenningu
[Umhverfisstofnunar]2) á þeim upplýsingum sem
þar koma fram.]3)
1)L.
166/2008, 15. gr. 2)L.
164/2002, 14. gr. 3)L.
87/2001, 3. gr.
7. gr. Þegar sérstaklega stendur á getur ráðherra, að
fenginni umsögn heilbrigðisnefndar eða [Umhverfisstofnunar],1)
veitt undanþágu frá einstökum greinum reglugerða sem settar eru skv. 4. og 5.
gr.
Ráðherra setur almenn ákvæði í reglugerð
um valdsvið, skyldur og starfstilhögun heilbrigðisnefnda og heilbrigðisfulltrúa,
þar með talið um þátttöku í eftirlits-, rannsóknar- og vöktunarverkefnum.
1)L.
164/2002, 14. gr.
[7. gr. a. Þegar sérstaklega stendur á getur
ráðherra, að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar eða [Umhverfisstofnunar],1)
veitt undanþágu frá skyldu um færslu græns bókhalds skv. [6. gr. b].2)]3)
1)L.
164/2002, 14. gr. 2)L.
166/2008, 16. gr. 3)L.
87/2001, 4. gr.
8. gr. Sveitarstjórnir, byggingarnefndir og önnur
yfirvöld sveitarfélaganna, sem og ríkisstofnanir, skulu leita álits
heilbrigðisnefndar um hvers konar ráðstafanir vegna framkvæmda sem lög þessi
taka til.
II. kafli. Stjórn, skipan og starfsmenn.
9. gr. Umhverfisráðherra fer með
yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum. Á varnarsvæðum fer utanríkisráðherra með
lögsögu samkvæmt
lögum nr. 106/1954 og skal hann semja við þar til bæra aðila samkvæmt mati
[Umhverfisstofnunar]1) um framkvæmd eftirlits á
varnarsvæðum. Utanríkisráðherra skal hafa samráð við umhverfisráðherra um alla
framkvæmd eftirlits á varnarsvæðum og gilda lög þessi eftir því sem við á.
Landlæknir er ráðgjafi ráðherra um það er að
lögum þessum lýtur og undir embætti hans fellur.
Við setningu reglugerða samkvæmt lögum
þessum skal haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga um atriði er varða
skyldur sveitarfélaga.
1)L.
164/2002, 14. gr.
10. gr. Ekkert sveitarfélag skal vera án
heilbrigðiseftirlits og greiða sveitarfélögin kostnað við eftirlitið að svo
miklu leyti sem lög mæla ekki fyrir á annan veg.
11. gr. [Landið skiptist í eftirlitssvæði og skal
heilbrigðisnefnd, kosin eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar, starfa á hverju
svæði. Í hverri nefnd skulu eiga sæti sex menn, fimm kosnir af hlutaðeigandi
sveitarstjórnum, þar af skal einn vera formaður, og einn tilnefndur af samtökum
atvinnurekenda á eftirlitssvæðinu. Atkvæði formanns ræður úrslitum ef atkvæði
falla jafnt í nefndinni. Náttúruverndarnefndir sveitarfélaga á eftirlitssvæðinu
eiga rétt á að tilnefna einn fulltrúa í nefndina til viðbótar en hann hefur ekki
atkvæðisrétt við afgreiðslu mála í nefndinni. Sömu reglur gilda um varamenn.]1)
Eftirlitssvæði skv. 1. mgr. eru:
1. Reykjavíkursvæði.
Starfssvæði: Reykjavíkurborg.
2. Vesturlandssvæði.
Starfssvæði: Vesturlandskjördæmi.
3. Vestfjarðasvæði.
Starfssvæði: Vestfjarðakjördæmi.
4. Norðurlandssvæði vestra.
Starfssvæði: Norðurlandskjördæmi vestra.
5. Norðurlandssvæði eystra.
Starfssvæði: Norðurlandskjördæmi eystra.
6. Austurlandssvæði.
Starfssvæði: Austurlandskjördæmi.
7. Suðurlandssvæði.
Starfssvæði: Suðurlandskjördæmi.
8. Suðurnesjasvæði.
Starfssvæði: Reykjanesbær, Grindavíkurkaupstaður, Sandgerðisbær, Gerðahreppur og
Vatnsleysustrandarhreppur.
9. Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæði.
Starfssvæði: Hafnarfjarðarkaupstaður, Bessastaðahreppur, Garðabær og
Kópavogsbær.
10. Kjósarsvæði.
Starfssvæði: Seltjarnarneskaupstaður, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.
Umhverfisráðherra getur í reglugerð, að
höfðu samráði við hlutaðeigandi sveitarfélög og að fenginni umsögn
[Umhverfisstofnunar],2) kveðið á um sameiningu
eftirlitssvæða.
Heimilt er heilbrigðisnefndum að gera
samkomulag um annað fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits á milli eftirlitssvæða. Í
slíkum tilvikum hafa heilbrigðisfulltrúar sama rétt til afskipta þar og á eigin
svæði.
1)L.
59/1999, 1. gr. 2)L.
164/2002, 14. gr.
12. gr. Heilbrigðisnefndir skulu fyrir 1. nóvember ár
hvert gera fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár þar á eftir, innan fjárhagsramma
sem sveitarfélög setja, og senda hana til viðkomandi sveitarfélaga til
umfjöllunar og afgreiðslu. Sveitarfélög bera ábyrgð á fjármálum og rekstri
heilbrigðiseftirlits á viðkomandi svæði. Þau hafa umsjón með fjármálum þess,
skiptingu kostnaðar milli sveitarfélaga og álagningu eftirlitsgjalda. Við
kostnaðarskiptingu skal miða við að allar tekjur af eftirlitsskyldri starfsemi á
svæðinu renni í sameiginlegan sjóð til greiðslu rekstrarkostnaðar
heilbrigðiseftirlits á svæðinu. Sá kostnaður sem eftirlitsgjöld standa ekki
undir greiðist af sveitarfélögunum í samræmi við íbúafjölda næstliðins árs.
Náist ekki samkomulag milli sveitarfélaga
innan eftirlitssvæðis um hvaða sveitarfélag annist fjárreiður fyrir
heilbrigðiseftirlitið skal umhverfisráðherra úrskurða hvert þeirra skuli annast
fjárreiðurnar að fenginni umsögn hlutaðeigandi sveitarfélaga.
[Heimilt er sveitarfélögum að setja
gjaldskrá og innheimta gjald fyrir eftirlitsskylda starfsemi, svo sem fyrir
eftirlit, útgáfu starfsleyfa og vottorða, sé eftirlitið á vegum sveitarfélaga.
Leita skal umsagnar hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar …1)
áður en gjaldskrá er sett. Upphæð gjaldsins skal byggð á rekstraráætlun þar sem
þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds við viðkomandi eftirlit byggist á og
má gjaldið ekki vera hærra en sá kostnaður. Hvert eftirlitssvæði skal hafa
sameiginlega gjaldskrá og skal hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd láta birta hana í
B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld má innheimta með fjárnámi. Gjöld skulu tryggð með
lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga þegar leyfi eða
þjónusta er tengd notkun fasteignar. Heimilt er utanríkisráðherra að setja
gjaldskrá og innheimta gjald á varnarsvæðum. Umhverfisráðherra skal gefa út
leiðbeinandi reglur um uppbyggingu gjaldskráa sveitarfélaga.]2)
1)L.
150/2004, 1. gr. 2)L.
59/1999, 2. gr.
13. gr. Heilbrigðisnefnd ber að sjá um að framfylgt
sé ákvæðum laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim, samþykktum
sveitarfélaga og ákvæðum í sérstökum lögum eða reglum sem nefndinni er eða kann
að vera falið að annast um framkvæmd á. Nefndin skal vinna að bættu
heilbrigðiseftirliti á svæði sínu, annast fræðslu fyrir almenning og efla
samvinnu við önnur yfirvöld og aðila sem vinna að þessum málum.
14. gr. Heilbrigðisnefnd skiptir með sér verkum og
ræður meiri hluti atkvæða afgreiðslu máls. Telst afgreiðsla fullnægjandi séu
þrír atkvæðisbærra nefndarmanna viðstaddir. Um vanhæfi nefndarmanna til
afgreiðslu mála gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga.
Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits eða
heilbrigðisfulltrúi í umboði hans skal sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og
tillögurétti. Hann getur krafist þess að fundir verði haldnir og að tekin verði
þar fyrir tiltekin mál.
Fulltrúar [Umhverfisstofnunar]1)
eiga rétt til setu á fundum heilbrigðisnefnda með tillögurétti og málfrelsi.
[Yfirlæknir heilsugæslu á viðkomandi
eftirlitssvæði, tilnefndur af landlækni],2)
skal vera ráðgjafi og heilbrigðisnefndum til aðstoðar um heilbrigðisþjónustu.
[Yfirlæknir heilsugæslu]2) á seturétt á fundum
heilbrigðisnefndar með málfrelsi og tillögurétti. [Yfirlæknir heilsugæslu]2)
getur krafist þess að haldinn verði fundur í heilbrigðisnefnd.
1)L.
164/2002, 14. gr. 2)L.
98/2002, 5. gr.
15. gr. Heilbrigðisnefndir á hverju eftirlitssvæði
ráða heilbrigðisfulltrúa til að annast eftirlit sveitarfélaganna með þeim
viðfangsefnum sem undir lögin falla. Starfi einungis einn heilbrigðisfulltrúi á
eftirlitssvæði skal hann jafnframt vera framkvæmdastjóri eftirlitsins. Ef
heilbrigðisfulltrúarnir eru tveir eða fleiri skal einn úr hópi þeirra jafnframt
ráðinn framkvæmdastjóri eftirlitsins. [Starfi að minnsta kosti fimm
heilbrigðisfulltrúar á viðkomandi eftirlitssvæði í fullu starfi er heimilt að
víkja frá því skilyrði að framkvæmdastjóri hafi réttindi sem
heilbrigðisfulltrúi, enda sé hann í fullu starfi sem framkvæmdastjóri
heilbrigðiseftirlits og hafi, auk háskólaprófs, staðgóða þekkingu á
heilbrigðiseftirliti.]1) Sveitarstjórnir setja
þeim starfslýsingar að fengnum tillögum heilbrigðisnefndar og ákveða í samráði
við heilbrigðisnefnd aðsetur þeirra. Eingöngu má ráða í starf
heilbrigðisfulltrúa þá sem fengið hafa leyfi umhverfisráðherra til starfans.
Heilbrigðisfulltrúar starfa í umboði heilbrigðisnefndar.
Umhverfisráðherra setur reglugerð2)
um menntun, réttindi og skyldur heilbrigðisfulltrúa.
1)L.
87/2001, 5. gr. 2)Rg.
571/2002.
16. gr. Þeir sem starfa samkvæmt lögum þessum eru
bundnir þagnarskyldu um atriði er varða framleiðslu- og verslunarleynd. Sama
gildir um atriði sem þeir fá vitneskju um og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða
eðli máls.
Upplýsingar og tilkynningar
heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga til fjölmiðla skulu vera efnislega rökstuddar
og þess gætt að einstakar atvinnugreinar, stofnanir eða fyrirtæki bíði ekki tjón
og álitshnekki að óþörfu. Sama gildir um aðra sem starfa samkvæmt lögum þessum.
17. gr. …1)
1)L.
150/2004, 2. gr.
III. kafli. [Umhverfisstofnun.]1)
1)L.
164/2002, 14. gr.
18. gr. [Umhverfisstofnun annast
eftirlit með framkvæmd laga þessara og er stjórnvöldum til ráðuneytis um málefni
er undir lögin falla.]1)
Stofnunin hefur yfirumsjón með
heilbrigðiseftirliti og skal sjá um vöktun og að rannsóknir þessu tengdar séu
framkvæmdar. Í yfirumsjón felst samræming heilbrigðiseftirlits þannig að
framkvæmdin sé með sama hætti á landinu öllu.
Stofnunin fer því aðeins með beint
eftirlit að lög mæli svo fyrir eða ráðherra ákveði það með reglugerð að höfðu
samráði við stofnunina þegar um landið allt er að ræða og við heilbrigðisnefndir
þegar um einstök svæði er að ræða. Öll starfsemi stofnunarinnar, sem er í
samkeppnisrekstri, skal vera fjárhagslega aðgreind frá annarri starfsemi hennar.
Undir þetta fellur m.a. sala á þjónustu, ráðgjöf, rannsóknum og prófunum og
hvers konar eftirlitsstarfsemi sem þar kann að vera stunduð.
Stofnunin skal sjá um gerð fræðsluefnis
og upplýsa og fræða þá er starfa að heilbrigðiseftirliti.
1)L.
164/2002, 15. gr.
19. gr. [Umhverfisstofnun]1)
skal vinna að samræmingu heilbrigðiseftirlits í landinu og koma á samvinnu
þeirra er að málum þessum starfa og skal í slíkum tilvikum sérstaklega gæta að
hagkvæmni í eftirliti og fyrirbyggja tvíverknað og skörun eftir því sem frekast
er unnt. Stofnunin skal hafa nána samvinnu við heilbrigðisnefndir og
heilbrigðisfulltrúa og veita þá ráðgjöf og þjónustu varðandi heilbrigðiseftirlit
sem hún getur og aðstæður krefjast. Þá skal stofnunin vinna að samræmingu krafna
sem gerðar eru til starfsemi á sviði heilbrigðiseftirlits og að því að slíkum
kröfum sé framfylgt. Til þess að stuðla sem best að þessu markmiði gefur
stofnunin út leiðbeiningar og viðmiðunarreglur um framkvæmdina [sem
heilbrigðisnefndum ber að fylgja].2)
1)L.
164/2002, 14. gr. 2)L.
98/2002, 6. gr.
20. gr. …1)
1)L.
90/2002, 4. gr.
21. gr. Ráðherra setur, að fengnum tillögum
[Umhverfisstofnunar],1) gjaldskrá fyrir veitta
þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða stofnunin tekur að
sér, sbr. 18. gr. Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við þjónustu og
framkvæmd einstakra verkefna og skal byggð á rekstraráætlun þar sem þau atriði
eru rökstudd sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá
kostnaður. Gjaldskrá skal birt í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld má innheimta með
fjárnámi.
1)L.
164/2002, 14. gr.
IV. kafli. Faggilding og innra eftirlit.
22. gr. Ráðherra getur, að höfðu
samráði við [Umhverfisstofnun],1) ákveðið með
reglugerð að stofnunin skuli hljóta faggildingu vegna rannsóknar á vegum
stofnunarinnar. Ráðherra er jafnframt heimilt að ákveða með reglugerð, að höfðu
samráði við [Umhverfisstofnun],1) að starfsemi
heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga skuli hljóta faggildingu vegna rannsóknar og
eftirlits og þá hvernig að henni skuli staðið. Um faggildingu fer samkvæmt
lögum nr. 100/1992,
um vog, mál og faggildingu.
1)L.
164/2002, 14. gr.
23. gr. [Ráðherra ákveður í reglugerð kröfur um
gæðastjórnun og innra eftirlit í fyrirtækjum sem eru eftirlitsskyld samkvæmt
lögum þessum. Heimilt er ráðherra að kveða þar á um að innra eftirlit skuli að
hluta eða í heild sæta úttekt faggilts aðila. Þar skal einnig m.a. kveðið á um
umfang opinbers eftirlits og ákvörðun eftirlitsgjalda sem taka mið af innra
eftirliti þeirra fyrirtækja sem eftirlitið beinist að.]1)
1)L.
125/2005, 1. gr.
24. gr. Heilbrigðisnefndum og [Umhverfisstofnun]1)
er heimilt að fela tiltekna þætti heilbrigðiseftirlitsins faggiltum
skoðunaraðilum. Skal í slíkum tilvikum gerður sérstakur samningur við hinn
faggilta skoðunaraðila, sbr.
30. gr. laga um
fjárreiður ríkisins, nr. 88/1997. Heimild til að knýja á um framkvæmd
ráðstöfunar og annað sem greint er frá í VI. kafla er þó eingöngu í höndum
heilbrigðisnefndar eða [Umhverfisstofnunar]1)
eftir því sem við á.
1)L.
164/2002, 14. gr.
V. kafli. Samþykktir sveitarfélaganna.
25. gr.1)
[Sveitarfélög geta sett sér eigin samþykktir um atriði sem ekki er fjallað um í
reglugerðum eða gert um einstök atriði ítarlegri kröfur en fram koma í þeim,
enda falli þau undir lögin. Heimilt er auk annars að setja í slíkar samþykktir
ákvæði um:
1. bann eða takmörkun gæludýrahalds og húsdýrahalds,
2. meðferð úrgangs og skolps,
3. gjaldtöku fyrir leyfi, leigu eða veitta þjónustu,
4. ábyrgðartryggingar.
Heilbrigðisnefnd semur drög að samþykktum
og breytingum á þeim og leggur fyrir viðkomandi sveitarstjórn sem afgreiðir þau
í formi samþykktar til ráðherra. Sé um að ræða nýmæli í samþykktum sveitarfélaga
skal ráðherra leita umsagnar [Umhverfisstofnunar]2)
áður en hann staðfestir samþykktina.
Synji ráðherra staðfestingar endursendir
hann samþykktina til sveitarstjórnar með leiðbeiningum um hvað þurfi til að til
staðfestingar komi.
Samþykktir samkvæmt þessari grein skulu
birtar í B-deild Stjórnartíðinda á kostnað hlutaðeigandi sveitarfélaga.
Heimilt er sveitarfélögum að setja
gjaldskrá um innheimtu gjalda skv. 1. mgr. að fenginni umsögn hlutaðeigandi
heilbrigðisnefndar. Gjöld mega aldrei vera hærri en sem nemur rökstuddum
kostnaði við veitta þjónustu eða framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum. Gjöld
skulu tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga þegar
leyfi, leiga eða þjónusta er tengd notkun fasteignar. Sveitarfélag skal láta
birta gjaldskrá í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld má innheimta með fjárnámi.]3)
1)Greininni var
breytt með
l.
20/2006, 43. gr. Breytingin tekur gildi 1. júlí 2010,
sbr. 42. gr. s.l.
2)L.
164/2002, 14. gr. 3)L.
59/1999, 3. gr.
VI. kafli. Valdsvið og þvingunarúrræði.
26. gr. Til að knýja á um framkvæmd
ráðstöfunar samkvæmt lögum þessum, reglugerðum, samþykktum sveitarfélaga eða
eigin fyrirmælum samkvæmt þessum ákvæðum geta heilbrigðisnefnd og
heilbrigðisfulltrúi beitt eftirfarandi aðgerðum:
1. veitt áminningu,
2. veitt áminningu og tilhlýðilegan frest til úrbóta,
3. stöðvað eða takmarkað viðkomandi starfsemi eða
notkun, þar með lagt hald á vörur og fyrirskipað förgun þeirra.
Stöðvun starfsemi og förgun á vörum skal
því aðeins beitt að um alvarlegri tilvik eða ítrekað brot sé að ræða eða ef
aðilar sinna ekki úrbótum innan tiltekins frests og er heimilt að leita aðstoðar
lögreglu ef með þarf. Sé um slík brot að ræða getur heilbrigðisnefnd afturkallað
starfsleyfi viðkomandi reksturs.
Þar sem innsiglun er beitt við stöðvun
skal nota sérstök innsigli er auðkenni viðkomandi eftirlitssvæði
heilbrigðisfulltrúa.
27. gr. Þegar aðili sinnir ekki fyrirmælum innan
tiltekins frests getur heilbrigðisnefnd ákveðið honum dagsektir þar til úr er
bætt. Dagsektir renna til rekstraraðila heilbrigðiseftirlits og skal hámark
þeirra ákveðið í reglugerð1) sem ráðherra
setur. Jafnframt er heilbrigðisnefnd heimilt að láta vinna verk á kostnað hins
vinnuskylda ef fyrirmæli um framkvæmd eru vanrækt og skal kostnaður þá greiddur
til bráðabirgða af viðkomandi heilbrigðiseftirliti en innheimtast síðar hjá
hlutaðeigandi. Kostnað og dagsektir má innheimta með fjárnámi.
Þegar verk það sem heilbrigðisnefnd lætur
vinna er komið til vegna vanhirðu og óþrifa eða heilsuspillandi aðstæðna í húsi,
á lóð eða í farartæki er kostnaður tryggður með lögveðsrétti í viðkomandi húsi,
lóð eða farartæki tvö ár eftir að greiðslu er krafist.
1)Rg.
786/1999.
28. gr. Heilbrigðisnefndum og heilbrigðisfulltrúum
skal heimill aðgangur til skoðunar og eftirlits, þar á meðal töku sýna og
myndatöku, að öllum þeim stöðum sem lög þessi, reglugerðir og samþykktir ná yfir
og er heimilt að leita aðstoðar lögreglu ef með þarf. Sama gildir um starfsmenn
[Umhverfisstofnunar]1) þegar um er að ræða
starfsemi sem stofnunin hefur eftirlit með.
Fulltrúum [Umhverfisstofnunar]1)
er heimilt í samráði við heilbrigðisnefndir að taka sýni þar sem starfsemi fer
fram og lög þessi, reglugerðir settar samkvæmt þeim og samþykktir sveitarfélaga
ná til. [Í þeim tilvikum þar sem [Umhverfisstofnun]1)
fer með eftirlit fer um valdsvið og þvingunarúrræði stofnunarinnar í samræmi við
þennan kafla laganna.]2)
Eftirlitsskyldum aðilum er skylt að veita
allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna eftirlits með framkvæmd laganna og
ber þeim endurgjaldslaust að afhenda sýni sem talin eru nauðsynleg vegna
eftirlits.
1)L.
164/2002, 14. gr. 2)L.
87/2001, 7. gr.
29. gr. Telji [Umhverfisstofnun]1)
svo alvarlega hættu stafa af tiltekinni starfrækslu eða notkun að aðgerð þoli
enga bið er henni heimilt til bráðabirgða að stöðva starfsemi eða notkun þegar í
stað, með aðstoð lögreglu ef þurfa þykir, en tilkynna skal það hlutaðeigandi
heilbrigðisnefnd.
[Umhverfisstofnun]1)
skal sjá um samhæfingu aðgerða þegar upp koma bráð eða alvarleg mengunarslys …2)
eða önnur vá svipaðs eðlis. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga skal þegar í stað
tilkynna [Umhverfisstofnun]1) um slík mál og
skal stofnunin að höfðu samráði við viðkomandi heilbrigðisnefnd taka ákvörðun um
nauðsynlegar ráðstafanir.
1)L.
164/2002, 14. gr. 2)L.
167/2007, 55. gr.
30. gr. Við meðferð mála samkvæmt þessum kafla skal
fylgja ákvæðum stjórnsýslulaga.
VII. kafli. Málsmeðferð og úrskurðir.
31. gr. Rísi ágreiningur um
framkvæmd laganna, reglugerða settra samkvæmt þeim eða heilbrigðissamþykkta
sveitarfélaga eða um ákvarðanir yfirvalda er heimilt að vísa málinu til
sérstakrar úrskurðarnefndar. Þetta gildir þó ekki í þeim tilvikum þegar
umhverfisráðherra fer með úrskurðarvald samkvæmt lögunum, sbr. ákvæði 32. gr.,
eða þegar ágreiningur rís vegna ákvörðunar um útgáfu starfsleyfis samkvæmt
ákvæðum 6. gr.
Í úrskurðarnefnd skv. 1. mgr. eiga sæti
þrír lögfræðingar sem uppfylla skulu starfsgengisskilyrði héraðsdómara, formaður
tilnefndur af Hæstarétti, einn tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og
einn án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar
nefndina til fjögurra ára í senn.
Nefndin skal kveða upp úrskurð svo fljótt
sem auðið er og eigi síðar en fjórum vikum eftir að henni berst mál í hendur. Sé
mál viðamikið og fyrirsjáanlegt að afgreiðsla taki lengri tíma skal nefndin
tilkynna hlutaðeigandi það og tiltaka afgreiðslufrest sem aldrei skal þó vera
lengri en átta vikur.
Úrskurðir nefndarinnar eru
fullnaðarúrskurðir innan stjórnsýslunnar.
32. gr. Rísi ágreiningur milli heilbrigðisnefndar og
sveitarstjórna um framkvæmd laga þessara skal vísa málinu til fullnaðarúrskurðar
ráðherra. Sama gildir um ágreining milli [Umhverfisstofnunar]1)
og heilbrigðisnefnda um framkvæmd laganna.
Ákvarðanir [Umhverfisstofnunar]1)
og heilbrigðisnefnda um útgáfu starfsleyfa skv. 6. gr. má kæra til
fullnaðarúrskurðar ráðherra innan tveggja vikna frá ákvörðun
[Umhverfisstofnunar]1) eða heilbrigðisnefnda.
[Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu leyfis skv. 6. gr. a er heimilt að kæra
til umhverfisráðherra. Um aðrar ákvarðanir Umhverfisstofnunar fer skv. 31. gr.]2)
Ráðherra skal kveða upp úrskurð svo
fljótt sem auðið er og eigi síðar en fjórum vikum eftir að honum berst mál í
hendur. Sé mál viðamikið og fyrirsjáanlegt að afgreiðsla taki lengri tíma skal
tilkynna hlutaðeigandi það og tiltaka afgreiðslufrest sem aldrei skal þó vera
lengri en átta vikur.
1)L.
164/2002, 14. gr. 2)L.
166/2008, 17. gr.
VIII. kafli. Viðurlög.
33. gr. Brot gegn ákvæðum laga þessara,
reglum settum samkvæmt þeim og samþykktum sveitarfélaga varða sektum hvort sem
þau eru framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð
ásetningsbrot að ræða skulu þau að auki varða fangelsi allt að fjórum árum.
34. gr. Sektir má ákvarða lögaðila
þó að sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá
einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til
hagsbóta fyrir lögaðilann. Þó skal lögaðili ekki sæta refsingu ef um óhapp er að
ræða. Einnig má, með sama skilorði, gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða
starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa gerast sekir um
brot.
…1)
1)L.
88/2008, 233. gr.
IX. kafli. Gildistaka.
35. gr. Lögin öðlast þegar gildi. …
Ákvæði til bráðabirgða.
I. …
II. Þær reglugerðir, sem í gildi eru samkvæmt
lögum nr. 81/1988,
með áorðnum breytingum, skulu halda gildi sínu þar til þeim hefur verið breytt,
að svo miklu leyti sem þær fara ekki í bága við ákvæði þessara laga.
III. Þrátt fyrir breytingar á eftirlitsstarfsemi
Hollustuverndar ríkisins1) varðandi
innflutningseftirlit með …2) eiturefnum skal
starfsemin haldast óbreytt þar til reglugerð hefur verið sett sem kveður á um
eftirlitshlutverk aðila.
1)Nú
Umhverfisstofnunar, sbr.
l.
164/2002, 14. gr. 2)L.
167/2007, 54. gr.
IV. [Fyrsta bókhaldsár græns bókhalds skal vera árið 2003.
Ráðherra getur með reglugerð heimilað
[Umhverfisstofnun]1) að semja við
starfsleyfishafa sem skuldbinda sig til að taka upp viðurkennd
umhverfisstjórnunarkerfi um frest til að taka upp grænt bókhald. Fyrsta
bókhaldsár skal þó eigi verða síðar en árið 2006.]2)
1)L.
164/2002, 14. gr. 2)L.
87/2001, 8. gr.
[V. Allar olíubirgðastöðvar sem eru starfandi við
gildistöku laga þessara skulu hafa gilt starfsleyfi eigi síðar en 31. desember
2005.]1)
1)L.
98/2002, 7. gr.
Fylgiskjal I.
…1)
1)Um efni
fylgiskjals sem geymir lista yfir atvinnurekstur sem Hollustuvernd ríkisins (nú
Umhverfisstofnun, sbr.
l. 164/2002, 14. gr.)
veitir starfsleyfi fyrir vísast til Stjtíð. A 1998, bls. 35. Breytt með
l. 98/2002, 8. gr.,
sbr. Stjtíð. A 2002, bls. 286, og
l. 166/2008, 18. gr.
[Fylgiskjal II.
…]1)
1)L.
87/2001, 9. gr. Um efni fylgiskjalsins, sem geymir
lista yfir starfsemi sem færa skal grænt bókhald, vísast til Stjtíð. A 2001,
bls. 172–174. Breytt með
l. 166/2008, 19. gr.
[Fylgiskjal III.
…]1)
1)L.
98/2002, 9. gr. Um efni fylgiskjalsins, sem geymir
lista yfir starfsemi sem skal hafa starfsleyfi skv.
4. gr. a, vísast til
Stjtíð. A 2002, bls. 286.
|
|