I. kafli.
Um Náttúrufræðistofnun
Íslands.
1. gr.
Lög þessi fjalla um
Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur …,1)
samræmingu á starfsemi þessara aðila og samvinnu um rannsóknir og fræðslu.
Ráðherra umhverfismála fer með þau málefni sem lögin taka til.
1)L.
92/2002, 1. gr.
2. gr.
Náttúrufræðistofnun Íslands er í
eigu íslenska ríkisins.
Stofnunin getur byggst upp af allt að fimm setrum sem hvert um sig hefur
sjálfstæðan fjárhag. Auk seturs í Reykjavík getur ráðherra heimilað eitt setur í
hverjum landsfjórðungi að fenginni umsögn [forstjóra]1)
stofnunarinnar og eftir því sem fé er veitt á fjárlögum.
1)L.
169/1998, 1. gr.
3. gr.
[Ráðherra skipar forstjóra
Náttúrufræðistofnunar Íslands til fimm ára í senn. Forstjóri skal hafa
háskólamenntun og þekkingu á verksviði stofnunarinnar. Forstjóri ræður
forstöðumenn setra og aðra starfsmenn stofnunarinnar.
Forstjóri fer með stjórn stofnunarinnar og ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri
hennar. Þá mótar hann stefnu hennar í samráði við forstöðumenn setra. Forstjóri
samþykkir fjárhagsáætlanir setra og fylgist með fjárreiðum þeirra og ráðstöfun
fjár. Fjármál einstakra setra eru að öðru leyti á ábyrgð forstöðumanna þeirra.
Forstjóri boðar árlega til fundar með starfsmönnum Náttúrufræðistofnunar og
forstöðumönnum náttúrustofa til að samræma starfsemina og greina frá niðurstöðum
rannsókna.
Ráðherra setur í reglugerð1)
nánari fyrirmæli um hlutverk og starfsskyldur forstjóra og forstöðumanna, svo og
um aðsetur forstjóra á hverjum tíma.]2)
1)Rg.
229/1993. 2)L.
169/1998, 2. gr.
4. gr.
Náttúrufræðistofnun Íslands
stundar undirstöðurannsóknir í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði landsins og
annast skipulega heimildasöfnun um náttúru Íslands. Hún varðveitir niðurstöður
og eintök í fræðilegum söfnum er veiti sem best yfirlit um náttúru landsins.
Aðalverkefni Náttúrufræðistofnunar eru:
a. að stunda vísindalegar rannsóknir á náttúru Íslands,
b. að varðveita náttúrugripi, ritsmíðar og önnur gögn á vísindalegum
heimildasöfnum og byggja upp aðgengilegt gagnasafn með sem fyllstum heimildum um
íslenska náttúru,
c. að skrá kerfisbundið einstaka þætti íslenskrar náttúru og sjá um gerð og
útgáfu korta, m.a. um jarðfræði og útbreiðslu tegunda,
d. að styðja við uppbyggingu sýningarsafna um náttúrufræði með upplýsingum og
ráðgjöf og miðla þekkingu um íslenska náttúru til skóla, fjölmiðla og
almennings,
e. að leiðbeina um hóflega nýtingu náttúrulegra auðlinda og aðstoða með
rannsóknum við mat á verndargildi vistkerfa og náttúruminja og áhrifum
mannvirkjagerðar og annarrar landnotkunar á náttúruna,
f. að vinna að rannsóknum á villtum stofnum spendýra og fugla í samvinnu við
embætti veiðistjóra,
g. að sjá um fuglamerkingar og hefur Náttúrufræðistofnun ein heimild til að
láta merkja villta fugla á Íslandi,
h. að greina frá niðurstöðum rannsókna í fræðslu- og vísindaritum og lýsa
meginþáttum í starfsemi stofnunarinnar í árlegri skýrslu,
[i. að skrá berg- og jarðgrunna landsins með kerfisbundnum hætti og vinna að
flokkun námasvæða eftir efni, magni, aðgengi, gæðum og verndargildi. Við mat á
verndargildi skal Náttúrufræðistofnun hafa samráð við Náttúruvernd ríkisins.]1)
1)L.
169/1998, 3. gr.
5. gr.
[Náttúrufræðistofnun Íslands er
heimilt að taka gjald til að standa straum af rekstrarkostnaði fyrir rannsóknir
og ráðgjöf sem falla undir 4. gr., greiningu vegna inn- og útflutnings á dýrum
og plöntum sem heyra undir samning um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra
og plantna sem eru í útrýmingarhættu, eftirlit vegna rannsókna og nýtingar á
hveraörverum samkvæmt lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu,
leyfisveitingar vegna útflutnings á náttúruminjum og fyrir greiningar á
náttúrusýnum. Ráðherra getur að fengnum tillögum Náttúrufræðistofnunar Íslands
sett gjaldskrá um þá starfsemi sem að framan er talin.
Náttúrufræðistofnun Íslands er heimilt að veita viðtöku fjárframlögum,
vísindastyrkjum, vísindalegum eintökum, náttúrugripum og sambærilegum gjöfum frá
einstaklingum eða öðrum.]1)
1)L.
92/2002, 2. gr.
6. gr.
Náttúrufræðistofnun skal eiga
aðgang að vísindalegum upplýsingum sem opinberar stofnanir geta í té látið og
varða starfssvið hennar. Skýrslur íslenskra og erlendra vísindamanna um
rannsóknir á náttúru landsins skulu varðveittar í heimildasafni
Náttúrufræðistofnunar.
Skylt er Náttúrufræðistofnun að varðveita vísindalegar upplýsingar og
niðurstöður rannsókna í aðgengilegu formi og veita aðgang að þeim samkvæmt
nánari reglum.
Grunngögn um íslenska náttúru í vörslu stofnunarinnar, svo sem um fuglamerkingar
og endurheimtur, upplýsingar um dreifingu plantna og dýra, sem og skrásett
safnaeintök, skulu vera aðgengileg vísindamönnum til frekari rannsókna og
flokkuð á samræmdan hátt.
Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd ákvæða samkvæmt þessari grein að
fengnum tillögum [forstjóra].1)
1)L.
169/1998, 4. gr.
7. gr.
Setur Náttúrufræðistofnunar
Íslands geta verið deildaskipt. Deildarstjórar og sérfræðingar
Náttúrufræðistofnunar Íslands skulu hafa lokið háskólaprófum á hlutaðeigandi
fræðasviði eða vera að öðru leyti viðurkenndir fræðimenn á sérsviði sínu. Kveða
skal á um starfsskyldur þeirra í reglugerð.1)
…2)
1)Rg.
229/1993. 2)L.
169/1998, 5. gr.
8. gr.
Náttúrufræðistofnun Íslands getur
með leyfi ráðherra gerst aðili að sýningarsöfnum sem rekin eru af öðrum en
ríkinu. Hún aðstoðar við gerð sýninga og henni er heimilt að lána til þeirra
gripi úr söfnum setranna um lengri eða skemmri tíma.
|