Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

                          

 

 

Lög um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi,  nr. 61/1992


1. gr.

Óheimilt er að brenna sinu nema á jörðum sem eru í ábúð eða nýttar af ábúendum lögbýla og þá samkvæmt leyfi sýslumanns og að fylgt sé ákvæðum í reglugerð, sbr. 4. gr.

 

2. gr.

Aldrei má brenna sinu þar sem almannahætta stafar af eða tjón getur hlotist af á náttúruminjum, fuglalífi, mosa, lyng- eða trjágróðri og mannvirkjum.
 

3. gr.

Ábúendur jarða geta einir fengið leyfi til að brenna sinu á jörðum, sbr. 1. gr., enda sé það gert fyrir 1. maí ár hvert að uppfylltum skilyrðum í reglugerð, sbr. 4. gr. Eftir þann tíma er hvarvetna óheimilt að brenna sinu. Þó getur sýslumaður, að höfðu samráði við umhverfisráðuneytið, ákveðið aðra dagsetningu ef sérstakar veðurfarslegar ástæður gefa tilefni til.
 

4. gr.

Í reglugerð,1) sem umhverfisráðherra setur að fenginni umsögn [Bændasamtaka Íslands]2) og [Náttúruverndar ríkisins],3) skal mælt fyrir um hver skilyrði ábúanda, sbr. 3. gr., skuli sett, m.a. um skyldu til að tilkynna hlutaðeigandi slökkviliðsstjóra, eftirlit með brennu og annað sem nauðsynlegt þykir.
   
1)
Rg. 157/1993, sbr. 273/1994. 2)L. 73/1996, 27. gr. 3)L. 44/1999, 79. gr.

 

5. gr.

Óheimilt er að kveikja eld á víðavangi þar sem almannahætta getur stafað af eða hætt er gróðri, dýralífi eða mannvirkjum.
Skylt er hverjum þeim sem ferðast um að gæta ýtrustu varkárni í meðferð elds.
Sá sem verður þess var að eldur er laus á víðavangi skal svo fljótt sem auðið er gera aðvart umráðamanni lands eða hlutaðeigandi yfirvaldi.
 

6. gr.

Sá sem veldur tjóni með sinubrennu eða meðferð elds á víðavangi þannig að saknæmt sé ber fébótaábyrgð á því tjóni sem af hlýst.
 

7. gr.

Með mál út af brotum á lögum þessum eða reglugerð samkvæmt þeim skal farið að hætti opinberra mála.
 

8. gr.

Brot gegn ákvæðum laga þessara varða sektum.

 

9. gr.

Lög þessi öðlast gildi þegar í stað …