|
1. gr. Ríkið starfrækir stofnun
sem nefnist Umhverfisstofnun. Stofnunin hefur aðsetur á höfuðborgarsvæðinu
en getur rekið hluta af starfsemi sinni annars staðar á landinu.
Hlutverk stofnunarinnar er:
a. að annast starfsemi sem Hollustuvernd ríkisins er
falin samkvæmt
lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari
breytingum, lögum
nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum,
lögum nr. 32/1986,
um varnir gegn mengun sjávar, með síðari breytingum,
lögum nr. 93/1995,
um matvæli, með síðari breytingum,
lögum nr. 18/1996,
um erfðabreyttar lífverur, með síðari breytingum,
lögum nr. 67/1985,
um veitinga- og gististaði, með síðari breytingum,
lögum nr. 74/1984,
um tóbaksvarnir, með síðari breytingum,
lyfjalögum, nr.
93/1994, með síðari breytingum,
sóttvarnalögum, nr.
19/1997, með síðari breytingum,
lögum nr. 17/2000,
um framkvæmd samnings um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun
efnavopna og um eyðingu þeirra, og
lögum nr. 75/2000,
um brunavarnir,
b. að annast starfsemi sem Náttúruvernd ríkisins er
falin samkvæmt
lögum nr. 44/1999, um náttúruvernd, með síðari breytingum,
lögum nr. 36/1974,
um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu, með síðari breytingum,
lögum nr. 61/1992,
um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi, með síðari breytingum,
lögum nr. 64/1994,
um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari
breytingum, lögum
nr. 54/1995, um vernd Breiðafjarðar, með síðari breytingum,
lögum nr. 32/1986,
um varnir gegn mengun sjávar, með síðari breytingum,
lögum nr. 52/1988,
um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum,
lögum nr. 54/1990,
um innflutning dýra, með síðari breytingum,
lögum nr. 60/1992,
um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, með síðari breytingum,
lögum nr. 117/1994,
um skipulag ferðamála, með síðari breytingum, og
lögum nr. 18/1996,
um erfðabreyttar lífverur, með síðari breytingum,
c. að annast starfsemi sem embætti veiðistjóra er falin
samkvæmt lögum
nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum
spendýrum, með síðari breytingum,
d. að annast starfsemi hreindýraráðs samkvæmt
lögum nr. 64/1994,
um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari
breytingum,
e. að annast starfsemi dýraverndarráðs og framkvæmd
laga um dýravernd,
nr. 15/1994, með síðari breytingum.
2. gr. Við stofnunina starfar
forstjóri skipaður af umhverfisráðherra til fimm ára í senn. Forstjóri skal
hafa háskólamenntun og þekkingu á verksviði stofnunarinnar. Forstjóri fer
með stjórn stofnunarinnar, mótar stefnu í störfum hennar og ber ábyrgð á
fjárhagslegum rekstri hennar.
Stofnuninni er skipt í fagsvið og starfar
forstöðumaður yfir hverju sviði. Forstöðumenn skulu hafa háskólamenntun og
sérþekkingu eða starfsreynslu á viðkomandi sviði. Forstjóri ræður
forstöðumenn. Einn forstöðumanna gegnir starfi staðgengils forstjóra.
Forstjóri ræður jafnframt annað starfsfólk stofnunarinnar.
Ráðherra setur í reglugerð, að fengnum tillögum
forstjóra, nánari ákvæði um skipulag stofnunarinnar.
3. gr. Lög þessi öðlast gildi
1. janúar 2003.
4. gr. …
Ákvæði til bráðabirgða.
1. Starfsmenn stofnana sem sinnt hafa þeim verkefnum
sem munu heyra undir Umhverfisstofnun samkvæmt lögum þessum skulu eiga
forgangsrétt til starfa þar á fyrsta starfsári stofnunarinnar. Ákvæði
7. gr. laga nr.
70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda ekki um
störf sem ráðið er í samkvæmt þessum tölulið.
2. Þegar lög þessi hafa verið samþykkt skal
umhverfisráðherra skipa starfshóp sem í eiga sæti auk fulltrúa ráðuneytisins
forstjóri Hollustuverndar ríkisins, forstjóri Náttúruverndar ríkisins og
veiðistjóri. Starfshópurinn skal undirbúa gildistöku laganna.
3. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. skal forstjóri
Umhverfisstofnunar skipaður frá 1. ágúst 2002 og skal hann frá þeim tíma
taka þátt í starfshópi skipuðum skv. 2. tölul.
Taka gildi 1. janúar 2003. |
|