|
1. gr.
Tilgangur laga þessara er að stuðla að verndun
Breiðafjarðar, einkum landslags, jarðmyndana, lífríkis og menningarminja
2. gr.
Ákvæði laganna taka til allra
eyja, hólma og skerja á Breiðafirði ásamt fjörum í innri hluta fjarðarins sem
markast af línu dreginni frá Ytranesi á Barðaströnd við fjörðinn norðanverðan í
Hagadrápssker um Oddbjarnarsker, Stagley og Höskuldsey í Vallabjarg að
sunnanverðu.
3. gr.
Umhverfisráðherra fer með stjórn mála er varða
vernd Breiðafjarðar samkvæmt lögum þessum. Um vernd menningarsögulegra minja fer
samkvæmt þjóðminjalögum
4. gr.
Breiðafjarðarnefnd er
umhverfisráðherra til ráðgjafar um allt það er lýtur að framkvæmd laga þessara.
Í nefndinni eiga sæti sjö menn, sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn sem
hér segir: Héraðsnefndir Dalasýslu, Austur-Barðastrandarsýslu,
Vestur-Barðastrandarsýslu og Snæfellinga tilnefna einn fulltrúa hver,
Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur á Vesturlandi og Vestfjörðum einn
sameiginlega og einn er tilnefndur af þjóðminjaráði. Umhverfisráðherra skipar
einn mann í nefndina án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu
skipaðir með sama hætti.
Nefndin skal í samráði við sveitarfélögin láta gera
verndaráætlun þar sem fram kemur hvernig ná skuli þeim markmiðum sem sett eru
með vernd svæðisins. Áætlun þessi skal send ráðherra til staðfestingar.
Í starfi sínu skal nefndin gæta samráðs við sveitarstjórnir,
náttúruverndarnefndir, [Náttúruvernd ríkisins],1)
minjaverði og yfirvöld þjóðminjavörslu.
Nefndin skal árlega gefa ráðherra skýrslu um störf sín.
1)L.
93/1996, 41. gr.
5. gr.
Umhverfisráðherra setur, að
fengnum tillögum Breiðafjarðarnefndar og umsögnum viðkomandi sveitarstjórna um
þær, reglugerð þar sem kveðið skal á um verndaraðgerðir á grundvelli laganna,
varnir gegn hvers konar mengun og aðgang ferðamanna að tilteknum stöðum á
svæðinu sem viðkvæmir eru vegna náttúrufars.
Menntamálaráðherra setur, að fengnum tillögum
Breiðafjarðarnefndar og að fenginni umsögn þjóðminjaráðs og húsafriðunarnefndar
ríkisins eftir því sem við á, reglugerð um vernd menningarsögulegra minja á
svæðinu, þar á meðal byggðarheildar gamalla húsa í Flatey og vernd sjóminja.
6. gr.
Við gerð skipulagsáætlana á
því svæði sem um getur í 2. gr. skulu sveitarfélög leita umsagnar
Breiðafjarðarnefndar. Í skipulagsáætlunum ber að taka tillit til verndaráætlunar
Breiðafjarðarnefndar.
Þar sem ekki eru fyrir hendi samþykktar skipulagsáætlanir á
því landsvæði sem um getur í 2. gr. er hvers konar mannvirkjagerð óheimil, svo
og jarðrask, nema að fengnu samþykki Breiðafjarðarnefndar.
Framkvæmdir, sem nauðsynlegar og eðlilegar teljast til
búskapar á lögbýlum, eru leyfilegar nema spjöllum valdi á menningarsögulegum
minjum, náttúruminjum eða lífríki að dómi Breiðafjarðarnefndar eða þjóðminjaráðs
þegar um fornleifar er að ræða.
7. gr.
Með rannsóknum á vegum
Náttúrufræðistofnunar Íslands, náttúrustofu Vestfjarða og náttúrustofu á
Vesturlandi, sbr.
lög nr. 60/1992, skal markvisst unnið að því að auka þekkingu á náttúru
Breiðafjarðarsvæðisins til að tryggja sem best verndun þess. Breiðafjarðarnefnd
skal í samráði við þessa aðila láta gera áætlun um æskilegar rannsóknir á
svæðinu og endurskoða hana reglulega.
Ráðherra getur með reglugerð heimilað framangreindum stofnunum að
standa sameiginlega að starfrækslu náttúrurannsóknastöðvar á svæðinu á
grundvelli laga nr.
60/1992. Rannsóknastöðin getur leitað eftir fjárstuðningi innlendra og
erlendra aðila við starfsemi sína og einstök verkefni.
8. gr.
Kostnaður við framkvæmd laga
þessara greiðist úr ríkissjóði eftir því sem fé er veitt til í fjárlögum.
9. gr.
Brot gegn lögum þessum og
reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim varða sektum [eða fangelsi allt að 2
árum].1) Sektir renna í ríkissjóð.
Beita má dagsektum er renna í ríkissjóð, allt að 50 þúsund
krónum, til að knýja menn til framkvæmda á ráðstöfunum sem þeim er skylt að
hlutast til um samkvæmt lögum þessum og reglugerðum eða láta af atferli sem er
ólögmætt.
Um rannsókn og meðferð mála vegna meintra brota á lögum
þessum fer að hætti laga um meðferð opinberra mála.
1)L.
82/1998, 222. gr.
10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
|