|
vestfirskar fréttir |
bb.is | 23.04.03 | 11:37


Mandarínendur gleðja gesti og
gangandi á Suðureyri
|
 |
|

Mandarínendurnar í veðurblíðunni á
Suðureyri. Ljósm. Páll Önundarson

|
Súgandafjörður er vinsæll
áfangastaður farfugla og þar hefur oft mátt sjá útlenda flækingsfugla á
vappi. Undanfarna tvo daga hafa tvær endur haldið sig við tjörnina á
Suðureyri og þykjast glöggir fuglaáhugamenn þekkja að þar séu á ferðinni
mandarínendur. Er óhætt að segja að þessar endur séu komnar langt frá
náttúrulegum heimkynnum sínum sem eru í skógum Kína, Japans og austurhluta
Síberíu.
Þó þær séu þekktar fyrir að fljúga
langar vegalendir (vitað er til þess að þær hafi flogið um 800 km á einum
sólarhring), kann viðkoma andanna í Súgandafirði að eiga sér eðlilega
skýringu. Talsvert hefur verið um innflutning á mandarínöndum til
Vesturlanda enda eru þær eftirsóttar hjá fuglaræktendum og þykja sömuleiðis
prýði í almenningsgörðum og dýragörðum. Á þetta einkum við um Bretlandseyjar
og þar er til frjáls stofn mandarínanda sem komnar eru af ræktuðum öndum. Má
því teljast líklegt að fuglarnir tveir á Suðureyri séu komnir þaðan frekar
en frá Austurlöndum fjær.
Um lífshætti mandarínandarinnar er það helst að segja að hún heldur sig
aðallega við skógartjarnir og straumharða læki þar sem hún lifir einkum á
vatnaplöntum, hrísgrjónum og öðru korni. Talið er að stofninn í Asíu sé um
20 þúsund fuglar en eins og svo margar aðrar fuglategundir í heiminum hefur
mandarínöndin átt í vök að verjast þar sem maðurinn hefur verið að leggja
undir sig sífellt meira af þeim landssvæðum sem hún heldur sig á. Það hefur
þó komið mandarínöndinni til bjargar að hún þykir einstaklega bragðvond og
er því ekki veidd til matar.
|