|
vestfirskar fréttir |
bb.is - mbl.is | 14.05.03 | 09:21
„Það kom mér á óvart að það skyldi
vera fugl inni í búri hjá okkur og ég var mjög hissa að það skyldi vera
mandarínönd," segir Finnbogi Bernódusson í Bolungarvík, en öndin er nú í
endurhæfingu í Náttúrugripasafninu í Bolungarvík. Finnbogi segir að öndin
hafi sennilega komist inn um hringlaga loftræstitúðu, sem er um fjórar
tommur í þvermál, en ristin hafi dottið úr. „Þegar konan kom til mín í
vinnuna í morgun sagði hún mér að það hefði komist fugl inn í búrið en hann
hefði sennilega farið út aftur. Við hugsuðum ekkert meira um þetta en þegar
við komum heim undir kvöld fannst henni eitthvað óþrifalegt í búrinu og
talaði um hvað hann hefði verið aðsópsmikill þessi skógarþröstur, en okkur
kom ekki annað til hugar en þarna hefði verið skógarþröstur á ferð. Hún
leitaði um allt en fann engan fuglinn og þá lagði ég til að láta
heimilisköttinn um leitina og setti hann upp á hillu. Þá kom í ljós að
eitthvað annað var þarna og síðan flaug þessi litla önd upp í efstu hillu. |
||
|
Þessi frétt/grein er prentuð af bb.is | © H-prent 2001 |