|
Árið 1997 hófu Náttúrustofa
Vestfjarða, Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða og Heilbrigðiseftirlit norðurlands
vestra samstarf um að athuga skólpmengun við þéttbýlisstaði við sjávarsíðuna.
Árið 2000 var samstarfið aukið
og er nú samstarf náttúrustofa og heilbrigðiseftirlits á Vestfjörðum,
Norðurlandi vestra og Austurlandi.
Valdir voru sjö staðir til að
byrja athuganir á. Þeir eru: Tálknafjörður, Bolungarvík, Ísafjörður,
Hvammstangi, Skagaströnd, Sauðárkrókur og Siglufjörður.
Á hverjum stað voru athugaðir
nokkrir þættir á völdum stöðum. þ.e. gerlar, heildarkolefni, köfnunarefni,
fosfór og lífríki botnsins.
Verkefnið er m.a. styrkt af sveitarfélögum,
Sambandi íslenskra sveitarfélaga og framlagi á fjárlögum. Auk þess aðstoðuðu
fjölmargir aðrir aðilar við verkið.
Verkefnið var fyrst kynnt með veggspjaldi á
Afmælisráðstefnu Líffræðifélagsins í Reykjavík 1999.
Anton Helgason1,
Sigurjón Þórðarson2
og Þorleifur Eiriksson3.
1999, Umhverfisáhrif skólps frá litlum sveitarfélögum á síður viðkvæmum
svæðum. Veggspjald á Afmælisráðstefnu Líffræðifélagssins 1999. 1Heilbrigðiseftirlit
Vestfjarða, 2Heilbrigðiseftirlit
Norðurlands vestra, 3Náttúrustofu
Vestfjarða. (útdráttur,
veggspjald)
Fyrsta skýrslan um verkefnið er nú komin út.
Anton Helgason, Sigurjón
Þórðarson og Þorleifur Eiríksson. 2002. Athugun á skólpmengun við sjö
þéttbýlisstaði. Áfangaskýrsla 1. Náttúrustofa Vestfjarða. NV nr. 3-02. 41 bls. (útdráttu.pdf,
útdráttur.doc,
skýrsla.pdf)
|