Náttúrugripasafn           

Bolungarvíkur                     

                                                                  

 

Náttúrugripasafn Bolungarvíkur var formlega opnað í maí 1998, en safnið er það fyrsta sinnar tegundar á Vestfjörðum.

Sýningarsalurinn er yfir 300m2. Við safnið er salur sem gerir það auðvelt að taka á móti hópum.  Safnið og Náttúrustofa Vestfjarða eru í samtengdu húsnæði , en Náttúrustofan sér um daglegan rekstur.

                                    

Náttúrugripasafnið er tileinkað Steini Emilsyni jarðfræðingi, sem lengi var skólastjóri í Bolungarvík.  Steinasafn hans er uppistaðan í steinasýningu safnsins.            

                                   

Spendýrum og fuglum eru gerð góð skil.  Þegar inn er komið er gestum heilsað af blöðruselsbrimli og hvítabjörninn er ekki langt undan, umkringdur selum, refum, minkum og fuglum.

 

Á stærsta vegg safnsins er veggspjaldasýning um Hornstrandafriðland.