Breiðavík, Hvallátrar og Keflavík, Vesturbyggð (áður
Rauðasandshr.), V-Barðastrandasýslu. (1) Svæðið markast af línu úr Stöð í
Keflavík, um Kjöl (385 m y.s.), þaðan bein lína í Kóngshæð (402 m y.s.) og í
Landamerkjahlein við Breið milli Breiðuvíkur og Vatnsdalsbótar. Látrabjarg,
Bæjarbjarg, Breiðavíkurbjarg og Keflavíkurbjarg. (2) Stórkostleg fuglabjörg, hin
mestu við Norður-Atlantshaf. Vel grónar bjargbrúnir og heiðar. Fjöldi þjóðminja.
Hafnarvaðall í Örlygshöfn, Vesturbyggð (áður Rauðasandshr.),
V-Barðastrandarsýslu. (1) Hafnarvaðall og Tungurif. (2) Leirur og
skeljasandsfjörur, fjölskrúðugt lífríki.
Þórishlíðarfjall, Vesturbyggð (áður Bíldudalshr.),
V-Barðastrandarsýslu. (1) Setlög með blaðförum í Þórishlíðarfjalli við Selárdal.
(2) Meðal elstu minja um gróðurfar hérlendis á tertíer.
Geirþjófsfjörður, Vesturbyggð (áður Bíldudalshr.),
V-Barðastrandarsýslu. (1) Geirþjófsfjörður innan Krosseyrartanga og Ófæruness.
Að norðan ráða sýslumörk, að suðaustan hreppamörk og vatnaskil að sunnan. (2)
Fjölbreytt og fagurt landslag, ríkulegur gróður, skóglendi.
Skaginn milli Arnarfjarðar og
Dýrafjarðar, Þingeyrarhreppi, V-Ísafjarðarsýslu. (1) Allur skaginn utan ræktaðs
lands og þéttbýlis ásamt löndum Hrafnseyrar og Gljúfurár í Arnarfirði. Til
austurs ráða mörk svæðis nr. 313 í fjallið Sjónfríð, þaðan lína í upptök Hofsár
í Borgarfirði og með henni til sjávar. (2) Fjölbreytt landslag, gróðursælar
hlíðar og dalir, umgirt stórskornu fjallendi. Framhlaup og jökulminjar.
Hrafnseyri er fjölsóttur ferðamannastaður með söguminjum.
Ketilseyri í Dýrafirði,
Þingeyrarhreppi, V-Ísafjarðarsýslu. (1) Jarðlög með plöntusteingervingum í
norðurhlíð fjallsins Töflu, við bæinn Ketilseyri. (2) Einstæður fundarstaður
plöntuleifa í rauðu millilagi frá tertíer.
Lambadalsfjall, Botn í Dýrafirði og
Hestfjarðarbrúnir við Hestfjörð, Mýrahreppi, Þingeyrarhreppi, Súðavíkurhreppi,
V- og N-Ísafjarðarsýslu. (1) Mörk að sunnan frá Bæjará fylgja hreppamörkum um
fjallið Sjónfríð, þaðan liggja austurmörk eftir hreppamörkum í botn Hestfjarðar,
þá eftir ströndinni í Vatnsdalsá í botni Seyðisfjarðar. Í Hestfirði fylgja mörk
300 m hæðarlínu að Lambagilsá, þaðan í Lambadalsskarð eftir Lambadalsá í
Lambadalsodda. (2) Stórbrotið land, jökulhvilftir og árgljúfur. Fjölskrúðugur
gróður, kjarr- og skóglendi. Söguminjar í Dýrafirði.
Holtsengi og Vöð í Önundarfirði,
Mosvallahreppi, V-Ísafjarðarsýslu. (1) Fjörur og grunnsævi í innsta hluta
Önundarfjarðar, innan Holtsodda, ásamt mýrlendi milli Þórustaða og óss
Bjarnardalsár. (2) Fjölbreytt lífríki.
Botn í Súgandafirði,
Seljalandsdalur og Tungudalur, Ísafjarðarkaupstað, Suðureyrarhreppi,
V-Ísafjarðarsýslu. (1) Ysti hluti Botnslands ásamt hlíðum. Að norðan ráða
sýslumörk að Gyltuskarði, þá eggjar Eyrarfjalls. Að sunnan frá Hafradal ráða
hreppamörk að Botnsheiði, þá um Austmannafall og Hnífa yfir Tunguá við Tunguskóg
og þaðan á Skíðaveg. (2) Fjölbreytt landslag, gil, ár og fossar. Sérstætt
gróðurfar, vöxtulegur birkiskógur. Fundarstaður surtarbrands og annarra
steingerðra plöntuleifa, meðal elstu minja um gróðurfar hérlendis.
Gil í Syðridal, Bolungarvík. (1)
Surtarbrandslög við Gilsá upp af Syðridal. (2) Fundarstaður surtarbrands frá
tertíer.
Fjörur í botni Skutulsfjarðar,
Ísafjarðarkaupstað. (1) Fjörur í botni Skutulsfjarðar frá ósi Tunguár að vestan
að syðri enda flugvallar á Skipeyri að austan. (2) Víðáttumiklar, lífauðugar
leirur, mikið fuglalíf.
Arnarnes, Ísafjarðarkaupstað (1)
Strandlengjan ásamt fjörum, frá Stóra-Bási í Skutulsfirði, um Arnarnes og inn
fyrir Arnarneshamar. (2) Sérkennileg klettaströnd, lífauðug fjara og mikið
fuglalíf.
Mjóifjörður, Súðavíkurhreppi (áður
Reykjafjarðarhr.), N-Ísafjarðarsýslu. (1) Vestanverður Mjóifjörður, Heydalur,
Gljúfradalur, Seljadalur og Látur, ásamt aðliggjandi fjalllendi. Suðurmörk
liggja um Botnsfjall, Grímshól og í hreppamörk vestan Djúpavatns, þaðan um
hreppamörk allt norður að Digranesi. (2) Fjölbreytt landslag, fagurt og
gróskumikið kjarrlendi.
Botn Ísafjarðar, Súðavíkurhreppi
(áður Reykjafjarðarhr.), N-Ísafjarðarsýslu. (1) Dalbotninn vestan hreppamarka
upp að efstu klettabrúnum, frá Hestakleif suður á móts við Torfadal. (2)
Sérstætt gróðurfar.
Reykjanes við Ísafjörð,
Súðavíkurhreppi (áður Reykjafjarðarhr.), N-Ísafjarðarsýslu. (1) Allt nesið
norðan Rauðagarðs. (2) Eitt mesta hverasvæði á Vestfjörðum. Sérkennilegar
sjávarrofsmyndanir, sérstætt gróðurfar og fjölskrúðugt fuglalíf.
Vatnsfjarðarnes, Súðavíkurhreppi
(áður Reykjafjarðarhr.), N-Ísafjarðarsýslu. (1) Vatnsfjarðarnes allt og fjörur
norðan botns Vatnsfjarðar og Saltvíkur í Mjóafirði. Tilheyrir landi Vatnsfjarðar
og Skálavíkur. (2) Fagurt og fjölbreytt land, sérstæðar sjávarrofsmyndanir.
Kaldalón, Ísafjarðarkaupstað (áður
Snæfjallahr.), Hólmavíkurhreppi (áður Nauteyrarhr.), Strandasýslu. (1)
Undirlendi, fjörur og grunnsævi sunnan og austan Lónseyrar og Jökulholts. (2)
Fjölbreytt og mikilfenglegt landslag. Ýmsar berggerðir, jökulgarðar, óshólmar,
leirur og surtarbrandur. Fjölskrúðugur gróður og dýralíf.
Snæfjallahreppur hinn forni,
Ísafjarðarkaupstað (áður Snæfjallahr.). (1) Snæfjallahreppur hinn forni, utan
Hornstrandafriðlands og svæðis nr. 323, Kaldalóns. (2) Fjölbreytt og
mikilfenglegt landslag með hrikalegum fjöllum, ýmsum berggerðum, jökulgörðum og
óshólmum. Fjölskrúðugur gróður og dýralíf.
Drangaskörð, Árneshreppi,
Strandasýslu. (1) Hrikalegur klettarani austur úr Drangahálsi norðan Drangavíkur
ásamt undirlendi. (2) Stórskorinn klettarani með djúpum skörðum, mótaður af rofi
jökla frá ísöld.
Grásteinn (Silfursteinn),
Árneshreppi, Strandasýslu. (1) Stór granítsteinn í landi Stóru-Ávíkur. (2) Talið
er líklegt að steinninn hafi borist til landsins með hafís undir lok ísaldar.
Veiðileysa og Kaldbaksdalur,
Árneshreppi, Kaldranahreppi, Strandasýslu. (1) Fjalllendið milli Veiðileysu og
Kaldbaksdals ásamt honum. Að sunnan ræður lína úr Kaldbakshorni um Sandfell að
þríhyrningamælistað (674 m) suðvestan við Hveratungu, þaðan um Strýtu að Bæjará.
Norðurmörk fylgja Bæjará í botn Veiðileysu. Fjörur, strandlengja og grunnsævi
frá ósi Bæjarár í Veiðileysu að Brimnesi undan Kaldbakshorni. (2) Stórskorið og
margbreytilegt landslag. Sjávarlón.
Húsavíkurkleif, Kirkjubólshreppi,
Strandasýslu. (1) Opna í millilagi í blágrýtismyndun rétt við þjóðveginn nærri
bænum Húsavík. (2) Fundarstaður plöntusteingervinga frá tertíer. Afsteypur og
för eftir trjáboli.
Tröllatunga, Kirkjubólshreppi,
Strandasýslu. (1) Steingervingalög við Grýlufoss og í Hrafnsklettum í
Tröllatungu við Steingrímsfjörð. (2) Setlög með steingerðum plöntum frá tertíer.
Mókollsdalur, Broddaneshreppi (áður
Fellshr.), Strandasýslu. (1) Steingervingalög í Hrútagili í Mókollsdal, í landi
Þrúðardals. (2) Setlög með steingerðum plöntum og skordýrum frá tertíer.
Nákuðungslögin við Bæ í Hrútafirði,
Bæjarhreppi, Strandasýslu. (1) Malarkambur við Bæjará niður af Bæ. (2) Merk
sjávarsetlög með skeldýraleifum frá nútíma. Lögin bera vitni um hærri
sjávarstöðu á miðbiki nútíma, fyrir 4000-5000 árum.
Hergilsey, Reykhólahreppi,
A-Barðastrandarsýslu. (1) Eyjan öll. (2) Óbyggð eyja, fjölbreytt að landslagi,
stuðlabergsmyndanir. Mikið og fjölskrúðugt fuglalíf. Söguminjar.
Stagley, Reykhólahreppi,
A-Barðastrandasýslu. (1) Eyjan öll. (2) Mikið fuglalíf.
Klofningur við Flatey,
Reykhólahreppi, A-Barðastrandarsýslu. (1) Klofningur er rétt vestan við Flatey.
(2) Sérstætt landslag og mikið fuglalíf.
Diskæðarsker, Reykhólahreppi,
A-Barðastrandarsýslu. (1) Eyjan tilheyrir Flateyjar-löndum. (2) Jarðfræðilega
sérstæð eyja.
Langey við Flatey, Reykhólahreppi,
A-Barðastrandarsýslu. (1) Eyjan tilheyrir Flateyjarlöndum. (2) Eyja með
gróskumiklum gróðri og fjölbreyttu fuglalífi.
Oddbjarnarsker, Reykhólahreppi,
A-Barðastrandarsýslu. (1) Lítil eyja um 11 km vestur af Flatey. (2) Sérstætt
landslag, jarðhiti, auðugt lífríki. Söguminjar.
Barmahlíð við Berufjörð,
Reykhólahreppi, A-Barðastrandarsýslu. (1) Hlíðin frá Hlíðarhálsi vestan megin
við botn Berufjarðar, suður að Börmum. (2) Gróskumiklar blóma- og kjarrbrekkur.
Sauðeyjar, Vesturbyggð,
V-Barðastrandasýslu. (1) Eyjaklasi undan Vatnsfirði, sunnan frá Flötuflögu
norður fyrir Æðarsker. (2) Fagrar og sérstæðar eyjar hvað varðar landslag og
lífríki.
Ketildalir í Arnarfirði,
Vesturbyggð, V-Barðastrandarsýslu. (1) Mörk liggja frá Hólnatöngum sunnan
Kópavíkur upp á topp Nyrðra-Lágnafjalls og þaðan til suðausturs um vatnaskil
milli Arnarfjarðar og Tálknafjarðar. Í austri liggja mörk eftir vatnaskilum um
Hest og Hvestunúp og þaðan niður í sjó við Gölt. Mörkin liggja að mestu um
hreppamörk hins forna Ketildalahrepps (2) Sérkennilegt og óvenjulegt landslag.
Grunnir dalir milli hárra, þverhníptra hamrafjalla, sem ganga fram undir sjó.
Fallegar skeljasandsfjörur með auðugu fuglalífi.
Borgarey í Ísafjarðardjúpi,
Súðavíkurhreppi, N-Ísafjarðarsýslu. (1) Borgarey öll ásamt hólma norðan við
eyna. (2) Grösug eyja með fjölskrúðugu fuglalífi.
Strandlengjan frá Sýruvíkurgjá að
Rauðuskriðu, Broddaneshreppi, Strandasýslu. (1) Svæði frá sjó að klettabrún,
strandlengja, fjara og grunnsævi frá Sýruvíkurgjá í landi Broddadalsár að
Rauðuskriðu í landi Skriðnesennis. (2) Strandlengja með fallegum jarðmyndunum,
mikið fuglalíf og selalátur.
Hveravík, Kaldrananeshreppi,
Strandasýslu. (1) Strandlengja, fjara og grunnsævi frá Reykjanesi að Akranesi.
(2) Sérstætt dýralíf vegna jarðhita í sjó.