|
Ráðstefnan er haldin af Scottish Natural Heritage og er
opinber dagskrárliður í tilefni af "Alþjóðlegu ári fjallanna 2002". Hún er
haldin í samvinnu við Matvælastofnun Sameinuðu Þjóðanna og ýmsar
rannsóknastofnanir í Skotlandi.
Ráðstefnugestir koma úr hópi vísindamanna, íbúa svæðanna og
þeirra sem fara með stefnumótun í málefnum fjallahéraða.
Tilgangurinn er að tengja saman vísindalegar rannsóknir,
þarfir íbúa og stefnumótun í málefnum fjallahéraða í Norður Evrópu. Hugmyndir og
skoðanaskipti þessara hópa geta skipt miklu máli fyrir framtíð og þróun umræddra
svæða.
Arnlín Óladóttir mun taka þátt í ráðstefnunni fyrir hönd
Náttúrustofu Vestfjarða. Friðlandið á Hornströndum verður kynnt þar á
veggspjaldi; einkenni svæðisins, stjórnunarleg staða og þær rannsóknir þar sem
Náttúrustofan á hlut að máli.
(Abstract)
|