Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

                          

 

         <-- Snjóflóðavarnir



vestfirskar fréttir | bb.is | 12.12.02 | 16:05



Málefnalegur fundur um snjóflóðavarnir í Bolungarvík
 

Borgarafundur um snjóflóðahættu og snjóflóðavarnir var haldinn í Víkurbæ í Bolungarvík á þriðjudagskvöld og segir Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri að fundurinn hafi verið mjög málefnalegur. „Íbúar sýndu mikinn áhuga og skilning á þessari vandasömu stöðu sem við erum í. Ég held að menn séu búnir að átta sig á þeim vanda sem við búum við og þeirri staðreynd að engin ein leið er algóð, en eitthvað verður að gera til að verja byggðina“, segir Ólafur. „Fundurinn var tvíþættur. Annars vegar var kynnt hættumat fyrir Bolungarvík, en menn þekktu almennt þessar niðurstöður og mönnum hafði verið ljóst hvar línurnar lágu. Í síðari hluta fundarins var farið yfir stöðu á hönnun væntanlegra varnarmannvirkja og kynnt hvernig hættulínur myndu breytast með tilkomu þeirra.“

Eins og komið hefur fram var á sínum tíma gert ráð fyrir því að farin yrði svokölluð leið 5 við gerð snjóflóðamannvirkja í Bolungarvík, en þar samanstanda varnir af þvergarði og leiðigarði. „Menn höfðu þó áhyggjur af snjósöfnun í krika þessara varnargarða og því fengu menn Verkfræðistofu Siglufjarðar og Árna Jónsson ráðgjafa til að meta hættu á slíku. Þessir aðilar voru sammála um að það yrði til mikilla bóta að gera þá breytingu að fella niður leiðigarð og framlengja þvergarðinn um 65 metra til vesturs. Bæjarstjórn hefur reyndar ekki tekið formlega afstöðu til þessara tilmæla en ég á von á því að við þeim verði orðið“, segir Ólafur.

Eins og áður segir þótti bæjarstjóra fundurinn vera málefnalegur og mun lítill hiti hafa verið í fundargestum. „Það var meiri hiti úti eða hátt í 10 gráður“, segir Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík.



Þessi frétt/grein er prentuð af bb.is | © H-prent 2001