|
Fréttir
12.12.2002
Málefnalegur
fundur um snjóflóðavarnir í Bolungarvík (frétt
af BB)
15.11.2002
Hættumat fyrir
Bolungarvík tilbúið og verður kynnt á borgarafundi 10 des. 2002. (frétt af
BB)
23.10.02
„Snjótæknilegir ráðgjafar“ meti áhrif þess að sleppa leiðigarði.
(frétt af BB)
7.08.02
Snjóflóðavarnir í Bolungarvík í bið að minnsta kosti fram á haust .
(frétt
af BB)
29.4.2002
Vakin er athygli á eftirfarandi auglýsingu frá
Skipulagsstofnun.
Snjóflóðavarnir í Bolungarvík - Traðarhyrna.
Ný gögn og framlenging athugasemdafrests um mat á umhverfisáhrifum - athugun
Skipulagsstofnunar. Kynningartími tillögu að ofangreindri
framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar
hefur verið framlengdur til 14. maí 2002. Líkan af snjóflóðavarnarvirkjum
hefur verið búið til og er til sýnis á skrifstofu
Bolungarvíkurkaupstaðar. Matsskýrslan, ásamt nýju myndefni, liggja
frammi á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu
Bolungarvíkurkaupstaðar, bókasafni Bolungarvíkur, einnig
í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun í
Reykjavík. Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Náttúrustofu Vestfjarða:skýrsla
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 14. maí 2002 til
Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt
samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Skipulagsstofnun.
19.4.2002
Að beiðni bæjarstjórnar Bolungarvíkur hefur verið
ráðist í byggingu líkans af fyrirhuguðum snjóflóðavörnum í Bolungarvík í
skalanum 1:500. Bæjarstjórn Bolungarvíkur ákvað að láta smíða líkan í kjölfar
þeirra óska sem fram komu á opnum kynningarfundi sem haldinn var þann 8. apríl
s.l. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að bæta upplýsingagjöf til íbúa
Bolungarvíkur. Líkanið verður til sýnis í fundarsal bæjarstjórnar Bolungarvíkur
frá og með 22. apríl næstkomandi.
3.4.2002
Kynningarfundur um mat á umhverfisáhrifum
snjóflóðavarna í Bolungarvík verður haldinn í Víkurbæ í Bolungarvík mánudaginn
8. apríl kl 20.00. dagskrá.
12.03.2002
Bolungarvíkurkaupstaður kynnir mat á
umhverfisáhrifum snjóflóðavarna í Bolungarvík. (skýrsla)
|