SNS - Samtök náttúrustofa K.t. 660595-2449

Þann
16 maí 2002 voru Samtök náttúrustofa (SNS) stofnuð með formlegri undirritun
stofnskrár (fréttatilkynning,
stofnskrá).
Aðilar að samtökunum eru náttúrustofur, sem starfa eftir lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúrustofur:
Markmið samtakanna eru:
a) Að efla starfsemi náttúrustofanna og hlutverk þeirra í rannsóknum á náttúru Íslands.
b) Að taka til umfjöllunar sameiginleg málefni náttúrustofanna og vera vettvangur skoðana og álitsgerða.
c) Að efla samstarf náttúrustofanna, m.a. að stuðla að því að náttúrustofurnar sem heild geti tekið að sér verkefni á sem flestum fagsviðum náttúrufræða. Jafnframt að standa vörð um gæði á rannsóknum og annari vinnu náttúrustofa.
d) Að efla kynningarstarf og virkni náttúrustofanna í vísindasamfélaginu og efla fræðslu til almennings og skóla um náttúrufræði og umhverfismál. M.a. með sameiginlegri útgáfu.
e Að samræma og efla vinnu að umhverfismálum sveitarfélaganna í samvinnu við náttúruverndarnefndir og aðrar stofnanir sveitarfélaganna og að stuðla að faglegu samstarfi við umhverfisráðuneytið og aðrar stofnanir á sviði náttúrufræða og náttúruverndar.
Fréttir
Sameinast um að fjölga störfum í náttúruvísindum á landsbyggðinni. Frétt af bb.is.
28 mars 2003.
Aðalfundur Samtaka náttúrustofa var haldinn á Grand Hótel 28 mars 2003.
Á fundinum var stofnskrá samtakanna endurskoðuð og samþykkt sem lög samatakanna. Einnig var ákveðið að stofna vinnuhópa til að vinna að kynningu og starfemi stofanna í samstarfi við innlenda og erlenda aðila. (fréttatilkynning)