Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík

Sími: 4567005, fax: 4567351

Netfang:  nave@nave.is

Kennitala: 610397-2209


 

 Forsíða

  Veftré

  Um stofuna

  Fréttir

  Skýrslur NV

  Bókasafn

  Náttúruminjar

  Verkefni

  Tenglar

 

                          

 

Veggspjaldasýning um Stein Emilsson jarðfræðing 2009

mynd.JPGMeð skráningu jarðfræðisafns Steins Emilssonar árið 2007 kom upp sú hugmynd að sýna og fræða fólk um líf og verk þessa athafnamanns (1893-1975) sem m.a var skólastjóri í Bolungarvík og ritstjóri tímaritsins „Vesturlands“.

Á veggspjaldasýningunni verður m.a. fjallað um jarðvegsrannsóknir Steins á Íslandi sem hann borgaði nú yfirleitt úr eigin vösum, um tillögur hans um jarðfræði Íslands og áhrif verkefna hans á vísindin og þjóðfélagið.    

Steinn Emilsson, jarðfræðingur (Ársrit Sögufélags Ísfirðinga 1999).

Stuðst er við greinar sem hann samdi sjálfur og hafa verið skrifaðar um hann en ekki síður Steina- og jarðfræðisafnið hans og dagbækur sem erfingjar Steins afhentu Náttúrugriðasafni Bolungarvíkur árið 1998. Áætlað er að sýningin verði farandssýning sem hægt verði að sýna bæði í skólum og söfnum á Vestfjörðum.