Farið var í vinnuferð í verkefninu EVEHD núna í ágúst til Englands. Í ferðinni voru tveir blessaðir brunnar lagaðir og unnið í fornleifarauppgrefti. Einn sjálfboðaliði kom með Huldu Birnu Albertsdóttir til Englands frá Vestfjörðum.
Verkefnið er samstarfsverkefni á milli 6 Evrópuþjóða: Íslands, Þýskalands, Slóvakíu, Tyrklands, Rúmeníu og Englands.
Samstarfsaðilarnir hafa sameiginlegan áhuga á því að virkja sjálfboðaliða í sögutengdum rannsóknum og/eða fornleifafræði: uppgrefti, verndun minja og endurbyggingu og/eða endurreisn heilagra og blessaðra brunna. Í hverju landi fór starfsmaður með sjálfboðaliðum til landanna sem eru í samstarfinu og unnu í verkefnunum sem voru lögð fyrir.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is