Farið var í síðustu ferð í verkefninu EVEHD núna í September til Slóvakíu og fer verkefninu að ljúka. Í ferðinni var farið í sameiginlega menningarþætti sem hafa uppgötvast af sjálfboðaliðum síðastliðin tvö ár og dregið saman í sýningu í safninu í Lišov. Einn sjáflboðaliði fór í ferðina frá Íslandi með starfsmanni Náttúrustofunnar.
Verkefnið er samstarfsverkefni á milli 6 Evrópuþjóða: Íslands, Þýskalands, Slóvakíu, Tyrklands, Rúmeníu og Englands.
Samstarfsaðilarnir hafa sameiginlegan áhuga á því að virkja sjálfboðaliða í sögutengdum rannsóknum og/eða fornleifafræði: uppgrefti, verndun minja og endurbyggingu og/eða endurreisn heilagra og blessaðra brunna. Í hverju landi fór starfsmaður með sjálfboðaliðum til landanna sem eru í samstarfinu og unnu í verkefnunum sem voru lögð fyrir.
Vestfirskir sjálfboðaliðar voru mjög ánægðir að taka þátt í þessu verkefni og vonandi gefst okkur á Náttúrustofunni tækifæri á því að halda áfram að sinna áhugasömum sjálfboðaliðum í framtíðinni.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is