Lítill fálki, líklegast turnfálki (Falco tinnunculus), settist á rannsóknaskipið Árna Friðriksson á milli Grænlands og Íslands á dögunum. Kristján Kristinnsson tók fálkann og hlúði af honum, þvoði meðal annars grút úr stélinu og gaf honum að éta. Þegar reynt var að sleppa fálkanum vildi hann ekki yfirgefa skipið, svo ákveðið var að koma með hann til Náttúrustofu Vestfjarða, þar sem skipið var á leið til Ísafjarðar. Fálkinn verður vistaður á Náttúrustofunni þangað til að hann fær smá hold á sig og hægt verður að sleppa honum.
Turnfálki er stéllangur, lítill fálki sem er lítið eitt stærri en smyrill. Turnfálkar eru algengir flækingar við Ísland og er algengastur hér á haustin, frá síðla í ágúst fram eftir október.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is