Farfuglar hafa verið að koma síðustu viku. Krían sást víða á Vestfjörðum þann 13. maí en hafði sést áður töluvert fyrr t.d. á Bíldudal. Óðinshani sást 16. maí í Önundarfirði en hann er að venju sá síðasti sem kemur til landsins. Rauðbrystingar koma við á Vestfjörðum á leið til Grænlands og Kanada og er líklega hámarkið í fjölda þeirra núna á þessum dögum.
Þó farfuglar séu enn að koma til landsins og þá margir af íslenskum varpfuglum byrjaðir í varpi. Tjaldurinn byrjar venjulega um mánaðarmótin apríl/maí en er reyndar frekar seinn þetta árið. Hrafninn byrjaði í apríl og var Náttúrustofan að kanna ábúð hjá þeim í Djúpinu í maí. Þeir taka þessum heimsóknum misjafnlega, sumir kvarta en aðrir fara hljóðlega í burtu á meðan. Það má sjá myndir af einni fjölskyldu hér til hliðar en þessir foreldrar voru frekar ósáttir.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is