Grágæs (Anser anser) er farfugl sem dvelur á Bretlandseyjum yfir vetrartímann en kemur til Íslands til að dvelja hér frá mars til október. Grágæsin er stærst þeirra gæsa sem verpa og dvelja hérlendis en hún er 75-90 cm að stærð og vegur um 3,5 kg. Hun verpur í maí og þá alltaf nálægt vatni, í mýrum, hólmum, grónum eyjum, á vatnsbökkum eða í lyngmóum. Grágæsir halda sig oftast í hópum utan varptíma og fara þá um í svokölluðu oddaflugi en þær halda sig þá oft á ræktuðu landi, á ökrum, í votlendi og á túnum.
Þann 16. mars mætti Brandur á Bassastöðum við Steingrímsfjörð átta grágæsum á Þröskuldum í norðan hríðarhraglanda og þann 21. mars sá starsfmaður Náttúrustofunnar 40 grágæsir við Höfða í Dýrafirði og 18 grágæsir í Önundarfirði.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is