Þorskeldi á Íslandi: Stefnumörkun og upplýsingabanki
Verkefnið er samstarfsverkefni sjávarútvegsráðuneytis, sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri, Hafrannsóknastofnunarinnar og sjávarútvegsfyrirtækja.
Sjá nánar á heimasíðu verkefnissins. http://www.thorskeldi.is
Meginmarkmið verkefnisins eru að:
1. Meta samkeppnishæfni þorskeldis á Íslandi
2. Móta stefnu í rannsókna- og þróunarvinnu
3. Afla og miðla upplýsingum um þorskeldi
Sérstök verkefnisstjórn stýrir verkefninu og henni til aðstoðar eru sérfræðingar á mismunandi sviðum sem aðstoða við upplýsingaöflun og mat á stöðu einstakra þátta þorskeldis.
Þorskeldisverkefnið er fjármagnað með styrk úr ríkissjóði og með framlagi þátttakenda. Verkefnið var skipulagt á árinu 2001 með forverkefnisstyrk frá Rannsóknaráði Íslands.
Stefnumótunarfundur um þorskeldi á Íslandi var haldinn í Reykholti í Borgarfirði 17.-18. október 2002. Hægt er að kynna sér efni fyrirlestra á netinu.
Sjá nánar á heimasíðu verkefnissins. http://www.thorskeldi.is
Þorleifur Eiríksson Náttúrustofu Vestfjarða tók þátt í fundinum og fjallaði um umhverfismál þorskeldis.
Þorleifur Eiríksson. 2002. Umhverfismál þorskeldis. Fyrirlestur. Stefnumótunarfundur um þorskeldi 17-18 okt. í Reykholti í Borgarfirði. Þorskeldi á Íslandi - stefnumörkun og upplýsingabanki. (glærur)
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is