Veggspjaldasýning um Stein Emilsson jarðfræðing 2009 - 2010
Með skráningu jarðfræðisafns Steins Emilssonar árið 2007 kom upp sú hugmynd að sýna og fræða fólk um líf og verk þessa athafnamanns (1893-1975) sem m.a var skólastjóri í Bolungarvík og ritstjóri tímaritsins „Vesturlands“.
Á veggspjaldasýningunni verður m.a. fjallað um jarðvegsrannsóknir Steins á Íslandi sem hann borgaði nú yfirleitt úr eigin vösum, um tillögur hans um jarðfræði Íslands og áhrif verkefna hans á vísindin og þjóðfélagið.
Steinn Emilsson, jarðfræðingur (Ársrit Sögufélags Ísfirðinga 1999).
Stuðst er við greinar sem hann samdi sjálfur og hafa verið skrifaðar um hann en ekki síður Steina- og jarðfræðisafnið hans og dagbækur sem erfingjar Steins afhentu Náttúrugripasafni Bolungarvíkur árið 1998. Áætlað er að sýningin verði farandssýning sem hægt verði að sýna bæði í skólum og söfnum á Vestfjörðum.
Sýningin var sett upp í Náttúrugripasafni Bolungarvíkur.
Farið verður með sýninguna í skóla á Vestfjörðum veturinn 2010- 2011.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is